ISOC SNOX 13/14 - ROUND 3/4 - BLACKJACK
Um síðustu helgi fór fram önnur keppnishelgin í ISOC Snocrossinu á tímabilinu 2013/2014 og fór keppnin fram á Blackjack skíðasvæðinu í Michigan í gríðarlegum kulda allt að -20° frosti. Á föstudeginum fór fram þriðja umferðin og á laugardeginum sú fjórða. Brautin var alveg fyrsta flokks, löng og gríðarlega krefjandi með svakalegum "vúppsum", pöllum og brekkum sem bauð uppá gríðarlega flotta keppni !
Myndir frá ISOC
Pro Open - Round 3 - Final: Það kom svo sem ekki á óvart að það var Tucker Hibbert á Arctic Cat sem var efstur eftir undanrásirnar en þegar kom að úrslitahítinu tókst honum að þjófstarta ásamt Kody Kamm á Polaris og voru þeir báðir sendir á aðra ráslínu. Það var svo Jake Scott á Polaris sem tók holuskotið og leiddi fyrstu hringina þar til að hann klúðraði sér í beygju. Þá ætlaði Ross Martin á Polaris að grípa forystuna en honum að óvörum kom Tucker Hibbert inná hann og stakk sér í forystuna. Þess má geta að Tucker tók framúr 7 ökumönnum á fyrsta hring og eftir að hann náði forystunni var ekki aftur snúið og því þrír sigrar í höfn hjá honum á þessu tímabili, Ross Martin keyrði hinsvegar mjög vel og endaði annar og í þriðja sæti endaði Kody Kamm.
Pro Open - Round 4 - Final: Undanrásir laugardagsins sáu Ross Martin efstann fyrir úrslitahítið og Tucker Hibbert í þriðja sæti. Þegar kom að startinu var Tucker hinsvegar heppinn þar sem Robbi Malinoski á Ski Doo þjófstartaði við hlið hans og því sendur á næstu ráslínu. Tucker hafði því gott pláss útúr startinu og nýtti sér það til fulls þar sem hann kom út annar á eftir Kyle Pallin á Polaris sem tók holuskotið. Tucker var þó ekki lengi að ná forystunni og þaðan var greið leið fyrir hann til sigurs. Ross Martin og Kody Kamm lentu í krassi eftir startið og börðust við að ná sér á strik eftir það. En að lokum var það þá Tucker Hibbert fyrstur, Kyle Pallin hélt öðru sætinu og í þriðja endaði Tim Tremblay á Ski Doo.
Það er ljóst að Tucker Hibbert setur markið hátt strax eftir þessar tvær keppnishelgar í ISOC Snocrossinu 2013/2014, næsta keppni fer svo fram í Shakopee, Minnesota þann 3-5. janúar !
Smellið á "Lesa meira..." til að sjá heildarúrslitin frá Blackjack og stigastöðuna
ISOC SNOX 13/14 - ROUND 3/4 - BLACKJACK - LIVE
Um helgina fer fram önnur keppnishelgin í ISOC snocross seríunni 2013/2014 og fer keppnin fram á Blackjack skíðasvæðinu í Michigan. Þessa helgina verður keppt föstudag og laugardag. Eins og venjulega verður öll þessi veisla í beinni útsendingu á netinu svo ekki missa af brjálaðri snocross spennu í beinni !
Minni á að hér fyrir neðan eru tímasetningar á helstu hítum á íslenskum tíma !
ISOC Snocross 13/14 - Round 3/4 - Blackjack - Dagskrá (íslenskur tími):
Föstudagur:
22:55 - Pro Lite #1 - Round 1
00:20 - Pro Open - Round 1
00:40 - Pro Lite #1 - Round 2
01:35 - Pro Open - Round 2
01:55 - Pro Lite #1 - LCQ
02:20 - Pro Open - LCQ
02:35 - Pro Lite #1 - Final
02:55 - Pro Open - Final
Laugardagur:
23:00 - Pro Lite #2 - Round 1
00:20 - Pro Open - Round 1
00:40 - Pro Lite #2 - Round 2
01:25 - Pro Open - Round 2
01:45 - Pro Lite #2 - LCQ
02:15 - Pro Open - LCQ
02:50 - Pro Lite #2 - Final
03:10 - Pro Open - Final
Heildardagskrá má finna á síðu ISOC hér !
LYNX RAVE RS 600 2014
Fyrr í haust fjallaði ég um snocross sleðana fyrir komandi keppnistímabil frá Polaris, Ski-Doo og Arctic Cat en þá var ekki búið að gefa út neinar upplýsingar og ófétið frá Finnlandi eða Lynx-inn ! Nú fyrir stuttu var kvikindið svo frumsýnt og það er alveg óhætt að segja að þetta sé helvíti eiguleg græja ! Búið er að uppfæra boddý-ið og kallast það REX2, framfjöðrunin er eins og í frændanum Ski-Doo en Lynxinn er áfram með KYB demparana, eins og allir hinir framleiðendurnir er Lynx-inn kominn með 128" belti en Lynx keppnissleðinn var með 130" belti 2012 og 2013, PPS búkkinn er ennþá á sínum stað enda ljósárum á undan öðrum búkkum í virkni, sleðinn kemur með svokölluðu "svía-moddi" en það eru einskonar krækjur eða stopparar fremst í stigbrettunum til að færa akstursstöðu ökumannsins aftar og þetta getur hjálpað til við höndlun í beygjum, svo eru auðvitað þessar standard uppfærslur á vél, kúplingum o.fl.
Lynx Rave RS 600 2014
Hér má nálgast nánari upplýsingar um sleðann - Lynx Rave RS 600 2014 Specsheet
Hvað finnst ykkur ?
ISOC SNOX 13/14 - ROUND 1/2 - DULUTH
Um helgina fór fram fyrsta keppnishelgin í ISOC Snocrossinu á tímabilinu 2013/2014 og eins og venjulega byrjaði ballið í Duluth, Minnesota. Á föstudeginum fór fram í þriðja sinn Amsoil Dominator en það er æsispennandi útsláttarkeppni þar sem einn sigurvegari stendur eftir, það var Tim Tremblay á Ski Doo sem sigraði þessa keppni í ár eftir gríðarlega spennandi baráttu í undanrásunum. Á laugardeginum var svo komið að fyrstu umferð í ISOC Snocrossinu og á sunnudeginum fór fram önnur umferð. Brautin í Duluth að þessu sinni var sú lengsta sem hefur verið þar og bauð uppá mjög spennandi keppni með miklum tilþrifum !
Myndir frá ISOC
Pro Open - Round 1 - Final: Eftir mjög spennandi undanrásir á laugardeginum voru menn slegnir með rothöggi í úrslitahítinu þegar Tucker Hibbert á Arctic Cat tók holuskotið og gerði lítið úr hinum þar sem að á síðasta hring náði hann að hringa alla keppinauta sína ! Tim Tremblay á Ski Doo og Ross Martin á Polaris sem menn höfðu talið líklegasta til að standa í Tucker lentu báðir í veseni, Tim með bilaðann sleða og Ross í krassi. Á eftir Tucker voru það hinsvegar Cody Thomsen í öðru og Kyla Pallin í þriðja.
Pro Open - Round 2 - Final: Á sunnudeginum þegar kom að úrslitahítinu voru það liðsfélagarnir Levi LaVallee og Kyle Pallin á Polaris sem tóku holuskotið en fast á hæla þeirra var Tucker Hibbert sem gerði sér lítið fyrir og tók framúr Levi á fyrsta hring, í lok annars hrings klemmdi hann svo Kyle Pallin af eftir endastökkspallinn og þaðan var það greið leið til sigurs fyrir T-lestina. Hann hringaði ekki alla að þessu sinni en var samt með um 20 sekúndna forskot á næsta mann í braut sem var að meðaltali um 28 sekúndur. Kyle Pallin hélt sínu striki og endaði annar en á eftir honum var það Ross Martin sem náði að bæta aðeins upp fyrir klúður laugardagsins og endaði þriðji.
Hrikalega spennandi byrjun á ISOC Snocrossinu 2012/2013, næsta keppni fer svo fram strax um næstu helgi í Blackjack, Michigan þann 6-7. desember !
Smellið á "Lesa meira..." til að sjá heildarúrslitin frá Duluth og stigastöðuna
ISOC SNOX 13/14 - ROUND 1/2 - DULUTH - LIVE
Um helgina fer fram fyrsta keppnishelgin í ISOC Snocross seríunni 2013/2014 og eins og alltaf fer keppnin fram í Duluth, Minnesota. Þessa helgina verður keppt föstudag, laugardag og sunnudag. Á föstudeginum fer fram svokallað Amsoil Dominatior sem er æsispennandi útsláttarkeppni og hefur farið fram síðustu ár. Á laugardeginum er svo 1. umferð tímabilsin og 2. umferðin á sunnudeginum. Öll þessi veisla verður í beinni útsendingu á netinu svo ekki missa af brjálaðri Snocross spennu í beinni !
ISOC Snocross 13/14 - Round 1/2 - Duluth - Dagskrá (íslenskur tími):
Föstudagur:
20:40 - Amsoil Dominatior - Seeding
21:50 - Amsoil Dominatior - Seeding
23:20 - Amsoil Dominatior - Round 1
01:00 - Amsoil Dominatior - Round 2
01:00 - Amsoil Dominatior - Semi-Final
01:00 - Amsoil Dominatior - Final
Laugardagur:
21:20 - Pro Lite #1 - Round 1
23:20 - Pro Open - Round 1
23:40 - Pro Lite #1 - Round 2
00:45 - Pro Open - Round 2
01:05 - Pro Lite #1 - LCQ
01:35 - Pro Open - LCQ
01:50 - Pro Lite #1 - Final
02:10 - Pro Open - Final
Sunnudagur:
16:30 - Pro Lite #2 - Round 1
18:20 - Pro Open - Round 1
18:40 - Pro Lite #2 - Round 2
19:25 - Pro Open - Round 2
19:45 - Pro Lite #2 - LCQ
20:15 - Pro Open - LCQ
20:30 - Pro Lite #2 - Final
20:50 - Pro Open - Final
Heildardagskrá má finna á síðu ISOC hér !
Fleiri greinar...
- 2014 SNOCROSS SLEÐARNIR
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 5/6 - CANTERBURY - LIVE
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 3/4 - BLACKJACK
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 3/4 - BLACKJACK - LIVE
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 1/2 - DULUTH
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 1/2 - DULUTH - LIVE
- 2013 SNOCROSS SLEÐARNIR
- ISOC SNOX 2012 - ROUND 12/13 - ELK RIVER - LIVE
- ISOC SNOX 2012 - ROUND 10/11 - FARGO - LIVE
- FIM WC SNX 2012 - SEMIGORJE, RUSSIA