TIL SÖLU - KXF250 OG KX125
Kawasaki KXF 250 2011:
Keyrði þetta hjól í sumar í MX og Enduro, er keyrt um 100 tíma. Var farið í allsherjar upptekt í lok ágúst, stimpilskipti og allt skoðað. Hjólið er endurotjúnnað, ljós frá KTM framan og aftan, Trailtech Vapor mælaborð og hraðamælir og svo 18" SM afturgjörð (hægt að fá 19" gjörðina frekar ef þannig vill til). Aðrir aukahlutir eru One/N1 límmiðakit, blátt Renthal stýri, Zeta óbrjótanleg handföng, Acerbis handahlífar, ál tanklok, FMF púst, O-hringja keðja, Ironman tannhjól, TM Designworks keðjusleði, Lightspeed Carbon Fiber bremsudiskahlífar framan og aftan og svo ál hlífðarpanna með foam á milli vélar og pönnu til að hrinda drullu frá. Plöst fyrir MX notkun fylgja og eitthvað af aukadóti getur fylgt með.
Þetta er alveg snilldar hjól í toppstandi, búið að reynast mér svakalega vel og alltaf skilað sínu !
Verðmiði: 990.000 kr.
Kawasaki KX 125 2008:
Hjól sem Tedda kona Hauks Þorsteins átti á undan mér, hún fékk það nýtt. Ég hef lítið notað hjólið, Arna Benný hefur hjólað aðeins á því og svo hef ég notað það í Endurocross-ið. Hjól sem er alveg 100%, gerði stimpilskipti í byrjun árs, hefur lítið verið notað í ár, einn og einn endurotúr og smölun. Aukahlutir eru One límmiðakit, extra sterkt sætisáklæði, Zeta óbrjótanlegt bremsuhandfang, loftblæðarar á framdempurum, FMF kraftpúst, Ironman tannhjól, TM Designworks keðjusleði og Pro Moto Kick It standari. Á handahlífar og eitthvað af aukaplöstum sem geta fylgt með.
Þetta "konuhjól" er alveg í toppstandi, ótrúlega skemmtileg græja sem leynir á sér !
Verðmiði: 490.000 kr.
Áhugasamir hafið samband við mig í síma: 7718024 eða sendið póst á Þetta netfang er varið gegn ruslpósts þjörkum. Þú verður að hafa JavaScript virkt til að skoða það. !
YOUTUBE TEST
Bara prufa hvort youtube virki svona á síðunni ;) !
SKÁLAFELL 03.03.12
Vinahópurinn fjölmennti í Skálafell í gær í geggjað rennsli ! Snilld að geta loksins rennt sér um þetta svæði aftur enda eyddi maður ófáum dögunum þarna uppfrá þegar maður var yngri ! Það var geggjað veður, ágætis færi og að sjálfsögðu hrikaleg stemning ! Smellti nokkrum römmum af og henti saman albúmi á myndasíðunni !
HJÓLUN Í SANDVÍK 25.02.12
Við skelltum okkur saman Suzuki strákarnir í Sandvík á laugardaginn í hjólun. Keyrðum mjög skemmtilegann hring og tókum vel á því í þungum sandinum. Ég greip að sjálfsögðu myndavélina með og við smelltum af fullt af römmum og ég henti þeim flottustu saman í albúm hérna á myndasíðunni, endilega tjékkið á því !
JONNI PRODUCTIONS - ALLT AÐ SKE !
Þá er komið að því, nú er vinnslan formlega hafin og fyrstu límmiðakittin eru klár og mikil ánægja með útkomuna.
Til að gera pöntun er best að senda mér póst á Þetta netfang er varið gegn ruslpósts þjörkum. Þú verður að hafa JavaScript virkt til að skoða það. . Takið fram hvaða tegund, gerð og árgerð tækið er, ef þið eruð með einhverjar litahugmyndir og eins ef þið hafið séð eitthvað flott á netinu sem þið viljið nota sem hugmynd látið þá endilega mynd af því fylgja með.
Eins vildi ég láta vita að ég get tekið að mér að setja settin á tækin líka, er með aðstöðu til að taka á móti þeim eða get komið heim í skúr og gert það.
Hér fyrir neðan er verðlistinn. Vonast til að heyra frá sem flestum og koma settum frá Jonni Productions á sem flestar græjur hérna á klakanum !
Jonni Productions
Verðlisti á grafík settum (01/12)
| Sleðar - Grafík sett (þekur plöst sleðans) | 52.000 m/vsk |
| Sleðar - Ef bæta á skúffu við | 10.000 m/vsk |
| Sleðar - Ásetning | 9.500 m/vsk |
| Hjól - Grafík sett (þekur allt hjólið) | 36.000 m/vsk |
| Hjól - Ásetning | 7.500 m/vsk |
JONNIPRODUCTIONS
SÍMI 7718024
PÓSTUR
Þetta netfang er varið gegn ruslpósts þjörkum. Þú verður að hafa JavaScript virkt til að skoða það.
VEFUR PRODUCTIONS.JONNI.IS










