• 01.jpg
  • 02.jpg
  • 03.jpg
  • 04.jpg
  • 01.jpg
  • 02.jpg
  • 03.jpg
  • 04.jpg
  • 01.jpg
  • 02.jpg
  • 03.jpg
  • 04.jpg
  • 01.jpg
  • 02.jpg
  • 03.jpg
  • 04.jpg

AMA SX 2012 - ROUND 2 - PHOENIX - TRACK

Hér er sýnishorn af brautinni fyrir supercross keppnina í Phoenix sem fer fram um helgina í USA ! Þessi braut virðist mun hraðari en sú sem við sáum um síðustu helgi og vonandi fáum við meiri spennu í þetta þá !

AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM

Um helgina fór fram fyrsta umferðin í AMA Supercross-inu 2012 og eins og síðustu ár var keppt í Anaheim. Allir topparnir voru mættir til leiks fyrir utan Trey Canard sem horfði á af hliðarlínunni vegna meiðsla. Brautin þessa helgina var mjög ólík því sem við höfum séð, mikið af skrítnum pöllum og beygjum og lítill hraði, margir voru í erfiðleikum með að byggja upp "rythma" í henni en það var alveg klárt að hún hristi upp dæminu fyrir áhorfendur ! En án þess að ljóstra neinu upp þá ætla ég bara að segja að þessi keppni sveik engann og klárt að þetta verður spennandi tímabil ! Eins og alltaf eru úrslitin falin fyrir þá sem eiga eftir að horfa á keppnina en fyrir hina þá er þetta allt handan við hornið...

AMA Supercross 2012 - Round 1 - AnaheimAMA Supercross 2012 - Round 1 - AnaheimAMA Supercross 2012 - Round 1 - Anaheim

Myndir frá TWMX

Smellið á "Lesa meira..." til að sjá úrslitin frá Anaheim !

Lesa meira...

AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM - TORRENT

Fyrsta umferðin af supercrossinu 2012 er komin inn á The Pirate Bay, maður getur alltaf treyst á "slicknick" að plögga þessu fyrir okkur sem höfum ekki aðgang að Speed TV ! Útsendingin var "Live" í gær og því er öll veislan saman í einum pakka ! Þetta er stundin sem við höfum öll beðið eftir ;) !

AMA Supercross 2012 - Round 1 - Anaheim - 250 & 450:

http://thepiratebay.org/torrent/6941255/

SX 2012 UPPHITUN !

Kvöldið er runnið upp, fyrsta umferðin á nýju tímabili í Supercrossinu fer fram í kvöld í Anaheim ! Eftir síðasta tímabil sem fór í sögubækurnar sem mest spennandi tímabil allra tíma þá er ekki annað hægt en að vera spenntur fyrir komandi tímabili ! Allir topparnir eru klárir í slaginn og hver öðrum hungraðari í titilinn !

Sem upphitun tók ég hérna saman flott video af helstu köppunum til að lifa af þar til "Slicknick" goð allra Supercross áhugamanna utan ameríku smellir keppninni inn á netið !

Hver ætli starti þessu tímabili með fyrsta sigrinum ?

Ryan Villopoto #1

Chad Reed #22

Ryan Dungey #5

James Stewart #7

Trey Canard #41

AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM - TRACK

Nú fer þetta allt að nálgast, fyrsta sýnishornið komið á netið af brautinni í Anaheim 1 Supercross-inu sem fer fram um helgina í USA ! Það er margt nýtt í þessari braut eins og önnur beygjan sem fer næstum því í hring, fullt af nýjum pöllum og því verður spennandi að sjá hvernig ökumennirnir tækla þetta !