KLAUSTRI FRESTAÐ VEGNA ELDGOSSINS !
Tekið af www.mbl.is:
Keppni í þolakstri á vélhjólum sem átti að fara fram á Kirkjubæjarklaustri nk. laugardag hefur verið frestað um ótilgreindan tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum.
Karl Gunnarsson, formaður mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands, segir í samtali við mbl.is að keppnisstjórn Vélhjólaíþróttaklúbbsins, sem stendur fyrir keppninni, hafi tekið þessa ákvörðun í morgun.
„Það er ekki forsvaranlegt að fara inn á þetta svæði. Menn eru að hjóla í sex tíma í öskuryki. Svo er sveitin varla tilbúin að taka við okkur,“ segir Karl. Menn vonist til þess að hægt verði að halda keppnina í september.
Um 430 keppendur voru skráðir til leiks, þar af 12 erlendir keppendur frá Svíþjóð og Kanada. „Okkur reiknaðist til að þetta gæti verið á bilinu 1.500 til 2.000 manns sem fylgja mótinu,“ segir Karl og bætir við að erlendir blaðamenn hafi verið búnir að boða komu sína hingað til lands.
Karl segir að gosið í Eyjafjallajökli í fyrra hafi ekki haft þessar afleiðingar og keppnin hafi því verið haldin án vandræða. „En eins og staðan er núna þá er þetta náttúrulega bara „disaster“.“
Keppnin kallast á ensku Trans Atlantic Off-Road Challenge, en er kölluð Klausturskeppnin. Hún byrjar ávallt klukkan 12 á hádegi og lýkur kl. 18. Hjá flestum er keppnisfyrirkomulagið þannig að tveir eru saman í liði og skiptast þeir á að hjóla.
AMA SX 2013 - TRAILER
Nú styttist óðum í það sem við bíðum öll spennt eftir í hvers árs, nýtt Supercross tímabil ! Spennan stigmagnast eftir því sem Anaheim 1 færist nær og öll stóru nöfnin eru á fullu að æfa og reyna að gera sig klára fyrir stóru stundina ! Svo stóra spurningin er bara, hver verður það í ár ? Mætir James Stewart helillur á Súkkunni ? Heldur Ryan Dungey áfram að sigra allt fyrir KTM ? Mun Ryan Villopoto mæta sterkur inn eftir fráveruna ? Eða einhver annar ? Kíkið á "trailer-inn" hér fyrir neðan til að kynda enn meira undir spennunni og svo höldum við bara áfram að telja niður dagana, 5. janúar er stóri dagurinn !
AMA SX 2012 - ROUND 13 - HOUSTON - TRACK
Sýnishorn af brautinni sem verður í 13. umferðinni í Supercrossinu í Houston um helgina í USA ! Þeir slá sko ekki slöku við í brautargerðinni en í brautinni eru tveir "vúppsa" kaflar og alveg rosalega flottir "rythma" kaflar ! Þetta verður klárlega spennandi keppni !
AMA SX 2012 - ROUND 12 - TORONTO - TORRENT
Tólfta umferðin af supercrossinu 2012 er komin inn á netið, "slicknick" alltaf klár í að plögga þetta fyrir okkur sem höfum ekki aðgang að Speed TV ! Þessa helgina var keppt í Toronto, "Live" útsending af öllu fjörinu og því allt í einum pakka !
AMA SX 2012 - ROUND 11 - INDIANAPOLIS - TORRENT
Ellefta umferðin af supercrossinu 2012 er komin inn á netið, "slicknick" alltaf klár í að plögga þetta fyrir okkur sem höfum ekki aðgang að Speed TV ! Þessa helgina var keppt í Indianapolis, "Live" útsending af öllu fjörinu og því allt í einum pakka !
Fleiri greinar...
- AMA SX 2012 - ROUND 9 - ST. LOUIS - TORRENT
- AMA SX 2012 - ROUND 9 - ST. LOUIS - TRACK
- AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA
- AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA - TORRENT
- AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA - TRACK
- AMA SX 2012 - ROUND 7 - DALLAS - TORRENT
- AMA SX 2012 - ROUND 7 - DALLAS - TRACK
- AMA SX 2012 - ROUND 6 - SAN DIEGO - TORRENT
- AMA SX 2012 - ROUND 6 - SAN DIEGO - TRACK
- AMA SX 2012 - ROUND 5 - ANAHEIM