Þriðji endurodagurinn var í gær og þá tók rigning og þoka við keppendum. Leiðirnar í gær voru frekar krefjandi með nokkrum virkilega erfiðum köflum. Þegar líða tók á daginn lagaðist veðrið heldur og sólin skein fram en ennþá var jörðin blaut og slatti af drullu ! Nýsjálendingurinn Chris Birch lenti í miklum vandræðum með hjólið sitt og var í miklu brasi með rafkerfið sem stal af honum helling af tíma. Sá sem kom fyrstur í mark í Pro flokknum var Englendingurinn Graham Jarvis á undan landa sínum Paul Bolton og Þjóðverjanum Andreas Lettenbichler. "Unofficial" staðan í heildina eftir daginn er að Chris Birch hangi tæpt á fyrsta sætinu, Graham Jarvis annar og Andreas Lettenbichler rétt á eftir í þriðja. Einn dagur eftir af keppninni og það getur allt gerst ! Skoðið video-ið frá deginum og ekki láta heimasíðu Red Bull Romaniacs fara framhjá ykkur www.redbullromaniacs.com !
Annar endurodagurinn fór fram í gær og það var allt annar heimur sem tók við keppendum þennan daginn, það var þurrt og sólin braust fram þegar líða tók á daginn. Leiðirnar þennan dag voru mun hraðari og auðveldari en fyrri daginn og virtust ökumennirnir vera fegnir því og brostu hringinn þegar þeir komust í endamark. Sá sem kom fyrstur í mark var Þjóðverjinn Andreas Lettenbichler á undan Bretanum Paul Bolton og Svíanum Joakim Ljunggren. Tjékkið á video-inu frá deginum og ekki láta heimasíðu Red Bull Romaniacs fara framhjá ykkur www.redbullromaniacs.com !
Það virðist sanna sig núna að þessi keppni er erfiðasta enduro keppni heims því aðstæðurnar sem ökumenn þurftu að kljást við í dag voru hreint út sagt hrikalegar. Rigningin var búin að gera drullu úr öllu hvort sem það voru græn tún eða þröngir stígar inni í skógum. En Chris Birch byrjaði daginn fyrstur og hélt forystunni fram að "Checkpoint 3" en þar var Graham Jarvis búinn að taka forystuna, Taddy Blazusiak villtist strax í upphafi og missti marga frá sér. Eftir "Checkpoint 6" komst Chris Birch framúr Graham Jarvis í örskamma stund en missti hann svo aftur framúr. Þegar endamarkinu var náð eftir hrikalega krefjandi dag var það Graham Jarvis sem kom fyrstur og Chris Birch heilum 40 mínútum á eftir. Þriðji var Andreas Lettenbichler en sama sagan virðist ætla að endurtaka sig hjá Taddy Blazusiak en hann hefur ákveðið að hætta eftir að hann krassaði, hann hefur verið í vandræðum með öxlina á sér og hættir því eftir daginn þrátt fyrir að hafa klárað í 8. sæti ! Það sést greinilega á mönnum í video-inu að þessi dagur var ekki beint auðveldur, þvílík átök sem menn ganga í gegnum ! Ekki láta heimasíðu Red Bull Romaniacs fara framhjá ykkur www.redbullromaniacs.com !
Erfiðasta Enduro keppni í heimi byrjaði í gær en það er að sjálfsögðu Red Bull Romaniacs 2010 ! Eins og áður fer keppnin fram í Rúmeníu uppi í Carpathian fjöllunum umhverfis bæinn Sibiu. Fyrsti keppnisdagurinn fór fram í gær en þá fór fram svokallað "Prologue" þar sem menn þurftu að kljást við krefjandi þrautabraut á miðri aðalgötunni í Sibiu. Sá sem sigrar "Prologue-ið" fær ráspól daginn eftir og því til mikils að vinna. Ekki auðveldaði það mönnum að það rigndi eldi og brennisteini allan gærdaginn og urðu þrautirnar margar ótrúlega sleipar og erfiðar. En það virtist ekki skipta neinu máli fyrir Nýsjálendinginn Chris Birch sem endaði keppnina annar í fyrra. Chris fór létt með að sigra "Prologue-ið" og byrjaði því fyrstur í morgun þegar raunverulega enduro-ið hófst um fjöllin kringum Sibiu. Það verður spennandi að sjá hvernig mönnum gengur en enn rignir mikið og er brautin víst svakaleg á köflum ! Látið svo ekki heimasíðu Red Bull Romaniacs fara framhjá ykkur www.redbullromaniacs.com !
Hér er video samantekt frá Red Bull Romaniacs 2010 - Prologue:
Úrslitin frá Red Bull Romaniacs 2010 - Prologue:
1. BIRCH Chris - NZL - KTM
2. JARVIS Graham - ENG - SHERCO 300
3. BLAZUSIAK Taddy - POL - KTM 250 EXC
4. LETTENBICHLER Andreas - DEU - BMW G 450 X
5. GUTZEIT Jade - RSA - KTM 300
Þórir Tryggvason sendi mér link á þetta video af Reykjavíkurkaflanum í endurobrautinni á AK á meðan keppninni stóð um helgina ! Þarna er ég akkurat stopp með slitna keðju og allt í rugli ! Takk fyrir þetta Þórir ;)
Í dag fór fram 9. umferðin í FIM heimsmeistaramótinu í motocrossi og var keppt í Kegumst í Lettlandi. Þar var keppt í MX1 og MX2 flokkunum ásamt Veterans og var hrikaleg barátta í gangi. Ég hafði loksins tíma til að fylgjast aðeins með keppninni í dag á Red Bull Web TV og það var geðveikt að fylgjast með ! Fyrir keppnina voru það Antonio Cairoli sem leiddi MX1 og Marvin Musquin sem leiddi MX2 og báðir með þó nokkru forskoti, það er spurning hvort einhver nær að höggva til þeirra í þeim keppnum sem eru eftir, allavega er allt galopið svo er víst ! Næsta umferð fer fram um næstu helgi í Uddevalla í Svíþjóð ! Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá hverjum flokki.
5. umferðin í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Thunder Valley í Colorado. Það var síbreytilegt veðrið og alltaf yfirvofandi rigning sem slapp þó til en allir keppendurnir mættu mjög ákveðnir til leiks og var mikil spenna í loftinu. Þessa helgina mættu líka WMA (kvennaflokkur) til leiks og var gríðarlega hörð keppni þar. En næsta keppni er svo í RedBud um næstu helgi ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
Í gær fór fram þriðja viðureignin í Red Bull X-Fighters seríunni 2010 og að þessu sinni var keppt á hinu sögufræga Rauða Torgi í Moskvu í Rússlandi. Þar var búið að keyra 250 vörubílshlössum af mold og búa til heimsklassa freestyle motocross braut. Það voru hvorki meira né minna en 40.000 áhorfendur sem mættu á svæðið og horfðu á bestu freestyle motocross ökumenn heims sýna ótrúlega takta. Þegar allt kom til alls var það ungliðinn frá Nýja Sjálandi, Levi Sherwood sem sigraði sína aðra keppni á ferlinum með flottum og öruggum stökkum sem geisluðu af stíl ! Levi vann með því að slá Bandaríkjamanninn Nate Adams út í úrslitunum. Norðmaðurinn Andre Villa endaði svo þriðji. Næsta umferð fer svo fram 22. Júlí í Las Ventas nautaatshringnum í Madrid á Spáni !
1. Levi Sherwood - NZL
2. Nate Adams - USA
3. Andre Villa - NOR
4. Eigo Sato - JAP
5. Robbie Maddison - AUS
6. Dany Torres - ESP
7. Adam Jones - USA
8. Cam Sinclair - AUS
9. Jim McNeil - USA
10. Mat Rebeaud - CH
11. Alex Kolesnikov - RUS
Stigastaðan í Red Bull X-Fighters 2010:
1. Andre Villa (NOR) 245 p.
2. Nate Adams (USA) 225 p.
3. Levi Sherwood (NZL) 175 p.
4. Robbie Maddison (AUS) 165 p.
5. Adam Jones (USA) 155 p.
6. Eigo Sato (JAP) 125 p.
7. Jim McNeil (USA) 95 p.
8. Dany Torres (ESP) 90 p.
9. Cameron Sinclair (AUS) 35 p.
10. Libor Podmol (CZE) 25 p.
Já á næstu 10 dögum er sko nóg að gerast í hjólaheiminum og auðvitað stendur Red Bull á bakvið þetta alltsaman ! Á næstu dögum fara nefnilega fram atburðir á borð við Red Bull X-Fighters, Red Bull Romaniacs, Red Bull Rampage, Moto GP og FIM Motocross ! Til að fagna öllu þessu verður spes þema á Red Bull Web TV sem þeir kalla "10 Days of Dirt - Let There Be Wheels" ! En ef þið hafið ekki uppgötvað Red Bull Web TV þá eruð þið búin að missa af miklu því þarna er sjónvarpsstöð sem gengur 24/7 bara með heitasta jaðarsportinu ! Tjékkið á Red Bull Web TV með því að smella hér ! Það verður því alltaf eitthvað fyrir okkar augu á Red Bull Web TV næstu daga en þeir munu bæði vera með Live útsendingar af viðburðum og svo samantektir úr öðrum !
Hér er video sem Red Bull hefur sett saman til að auglýsa brjálæðið !
LEX Games 2010 verða haldnir um næstu helgi og það er að sjálfsögðu þétt pökkuð dagskrá og nú bæði á laugardeginum og sunnudeginum. Smellið á auglýsingarnar fyrir neðan til að skoða meira um þennan magnaða viðburð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara !