22.07.2010
 Endurocross á Neistaflugi um Verslunarmannahelgina
Endurocrosskeppni / sýning verður haldin á Neistaflugi í Neskaupstað laugardaginn 31 Júlí. Skráning fer fram í síma 868-3512 (Ísak) og á netfanginu isakfannar@gmail.com.

Keppnisgjaldið er 3000 kr. og rennur það í peningaverðlaun til keppenda.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 22.07.2010
 Motocross á RÚV í kvöld
Tekið af www.motocross.is:

Þáttur um aðra umferð Íslandsmótsins í Motocross sem fram fór á Álfsnesi þann 3. júlí síðastliðin verður sýndur í Sjónvarpinu í boði Púkans og Snæland videó, í kvöld, 22. júlí kl. 00:00 og endursýndur á laugardaginn kl. 13:00.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 21.07.2010
 Are You Smarter Than A Homeskooled 8th Grader ?
Monster Energy TV eru mættir aftur með Adam Cianciarulo í Kawasaki Team Green en núna ber þátturinn nafnið "Are You Smarter Than A Homeskooled 8th Grader ?" þar sem Adam er á leið í 8. bekk núna ! Í þessum þætti mætir Adam liðsfélaga sínum Nick Way...



Bookmark and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 20.07.2010
 LungA 2010
Um helgina skelltum við okkur á LungA á Seyðisfirði og vááá hvað þessi hátíð er alltaf geðveik ! Ég, Arna Benný, Signý, Gígja og Bjarki Sig skelltum okkur öll af stað á Napoleon á föstudeginum eftir að hafa hrúgað öllu dóti og drasli í bílinn og fyllt alla skápa og kælinn af mat ! Við rúlluðum í þvílíkri blíðu austur og vorum komin á Seyðisfjörð rétt fyrir 8. Við hittum Gumma Skúla og vini hans úr Mosó en þeir gistu allir í bryggjuhúsi sem fjölskylda Einars Roth á. Við fengum svo að koma okkur fyrir á flottum grasbletti rétt hjá bryggjuhúsinu og sluppum þarmeð bæði við að borga tjaldstæði og lætin sem fylgja tjaldstæðinu, vorum samt ekki nema í 5 mín göngufjarlægð frá bænum ! Þegar við vorum búin að koma Napo fyrir og tjalda og græja hentum við borgurum á grillið og Konni kærasti Gígju kom í heimsókn og stuttu seinna komu Hilli og Hjalti líka ! Við kíktum svo öll í bryggjuhúsið og þar var næg vitleysa í gangi áður en við héldum í bæinn ! Við kíktum á tjaldstæðið og hittum mann og annan og enduðum svo kvöldið í bullandi dans svitabaði í Herðubreið á trylltu DJ brjálæði ! Geðveikt kvöld !

   
   
   

Á laugardeginum sváfum við bara út og eftir morgunmatinn og gott tjill skelltum við Arna Benný og Signý okkur í göngutúr að skoða allt sem var í gangi í bænum ! Þar voru allskyns snilldar listagjörningar í gangi og við skemmtum okkur konunglega. Við fórum svo og fengum armböndin okkar fyrir tónleikaveislu kvöldsins áður en við héldum út í bíl að fá okkur snarl ! Eftir snarlið var enginn annar en ofurhuginn Guðmundur Skúlason mættur og ætlaði nú að fara og fleyta á vélsleða í kringum hólmann miðbænum á Seyðisfirði. Við skelltum okkur auðvitað með og fylgdumst með. Fyrst gekk vel að fleyta yfir í hólmann en um leið og Gummi reyndi að beygja og fara hringinn komst vatn á reimina og hann sökkti sleðanum. En sem betur fer var hann ekki langt frá bakkanum og við drógum hann leikandi upp eftir að björgunarmennirnir Snævar og Guðni Rúnar höfðu komið bandi í sleðann ! Eftir þetta ævintýri héldum við út í bíl og græjuðum fyrir svaka grillveislu en Kristó, Hilli, Hjalti, Ingþór og Elli mættu allir og Gígja og Konni og Einar Óli líka og það var svaka stuð í Napo og í sérútbúna fortjaldinu á meðan við átum á okkur gat ! Þegar við vorum búin að ganga frá héldum við inn í bæ á útitónleikana sem voru alveg geðveikir, hittum fullt af vinum okkar og dönsuðum tryllt undir tónum Hjaltalín, Retro Stefson og aðallega þá Bloodgroup sem voru vangefin ! Eftir að útitónleikunum lauk héldum við inn í Herðubreið þar sem Hjálmar spiluðu fram á nótt en þá kvíslaðist hópurinn og við Arna Benný, Signý og Bjarki héldum heim um 3 leytið !

   
   
   
   

Á sunnudeginum þurftum við að vakna á skikkanlegum tíma en Arna Benný og Gígja þurftu að vera komnar á AK á æfingu kl hálf 6 svo við gengum frá öllu og sóttum Gígju heim til Konna og vorum lögð í hann rétt um 1 ! Þegar við komum að Eyvindaránni voru Hilli og Kristó og allir strákarnir stopp þar og þeir tveir stukku af brúnni út í, sé pínu eftir að hafa ekki verið með en eftir að hafa fylgst með því brunuðum við heim í sveit í þvílíka veðurblíðu !

   

Fáránlega góð helgi með æðislegu fólki á enn einni snilldar LungA hátíð ! Tjékkið á myndaalbúminu frá helginni á myndasíðunni eða með því að smella hér !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 20.07.2010
 AMA Endurocross 2010 - Round 1 - Las Vegas
Um síðustu helgi fór fram 1. umferðin í AMA Endurocrossinu 2010 í USA og var keppt í Las Vegas. Taddy Blazusiak var mættur til að verja titili sinn frá því í fyrra en núna er Geoff Aaron mættu til keppni aftur eftir meiðsli og var greinilega hungraður í að þagga niður í hinum ósigraða Taddy ! Honum tókst það reyndar ekki um helgina en hann sýndi hrikalega baráttu og ekki mátti muna miklu að hann hefði sigur úr bítum en Taddy tókst með sínum fáránlega og mistakalausa akstri að sigra eftir eina mest spennandi keppni sem ég hef séð ! Þriðji var svo Cory Graffunder á Husqvarna en hann keyrði gríðarlega flott og var ekki langt undan ! Tjékkið endilega á video samantektinni frá keppninni hér að neðan, getið spólað á 4.44 til að fara beint í Main Event ! Næsta keppni fer fram 14. ágúst í Oklahoma !


Myndir frá Motorcycle USA

Hér er video samantekt frá keppninni í boði Shotmaker Productions:


Úrslit úr AMA Endurocross Pro Class 2010 - Las Vegas:
1. Taddy Blazusiak (KTM)
2. Geoff Aaron (KTM)
3. Cory Graffunder (HSQ)
4. Mike Brown (KAW)
5. Justin Soule (KAW)
6. Gary Sutherlin (KAW)
7. Kyle Redmond (KAW)
8. Jamie Lanza (KAW)
9. Destry Abbott (KAW)
10. Cody Webb (GAS)

Staðan í AMA Endurocross Pro Class 2010:
1. Taddy Blazusiak (30)
2. Geoff Aaron (25)
3. Cory Graffunder (21)
4. Mike Brown (18)
5. Justin Soule (16)
6. Gary Sutherlin (15)
7. Kyle Redmond (14)
8. Jamie Lanza (13)
9. Destry Abbott (12)
10. Cody Webb (11)

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 19.07.2010
 AMA Motocross 2010 - Round 7 - Spring Creek
7. umferðin af 12 í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Spring Creek í Minnesota. Það voru frábærar aðstæður, þrátt fyrir að seinna moto-ið hjá 250 flokknum hafi fengið smá bleytu. Um helgina var keppt í 450 flokknum og 250 flokknum en einnig mætti WMA (kvennaflokkur) til keppni. Það voru líka gamlar kempur sem mættu til leiks í 450 flokknum og sýndu alveg hvað í þeim býr, nefni engin nöfn... Næsta keppni fer svo fram um næstu helgi í Washougal 24. júlí ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Spring Creek motocrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Spring Creek
!

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 15.07.2010
 Ćfingaferđ í Sólbrekku 12-14.07.10
Við Signý syss ákváðum að skella okkur suður í tveggja daga æfingaferð í Sólbrekku á mánudaginn eins og við gerðum fyrir Álfsnes um daginn nema núna flæktist einn pungur með okkur sjálfur B Sig ! Hann er viðbeinsbrotinn eins og alkunnugt er og hefur því ekkert að gera í lífinu greyið ! Við skelltum okkur því öll saman á Napoleon suður seint á mánudagskvöld og vorum í þvílíku flippi á leiðinni ! Vorum ekki komin út í Sólbrekku fyrr en um 4 um nóttina ! Þá skelltum við rúminu niður, mynd í tækið og steinsofnuðum í þreföldu spúni !

 
 

Við rumskuðum svo fyrst um 10 og þá var án alls spaugs að rigna gírkössum og okkur datt ekki í hug að hreyfa okkur undan sænginni ! Svo þegar klukkan var rétt skriðin yfir 12 hætti rigningin að mestu og við rifum okkur á lappir ! Jói Kef mætti svo út eftir og Krissi litli og Jói tók okkur þrjú í allskyns æfingar, beygju, stökk, klemma og fleira ! Næstu 5 tímana stóðu svo yfir æfingar á milli þess sem Jói stýrði ýtumanninum við að laga kafla í brautinni og vááá hvað brautin var geðveik ! Þegar leið á daginn kom þessi svaka rjómablíða og eftir að formlegum æfingum með Jóa lauk tókum við okkur góða sólarpásu þar til Kári mætti á svæðið ! Þá skelltum við Kári okkur út og hjóluðum slatta saman, djöfull sem það var geðveikt ! Þegar við vorum orðnir góðir var planið að skella sér í Bláa Lónið en svo komumst við að því að það lokaði bara eftir klukkutíma svo við fórum að athuga með sundlaugar í nágrenninu og ákváðum svo að bruna til Njarðvíkur öll á sendlanum hans Kára ! Þegar þangað var komið hafði Já.is sagt okkur einhverja tóma þvælu og allt lokað ! Við enduðum því bara með búðarferð í 10 11 og svo héldum við aftur út í braut ! Kári tjillaði aðeins hjá okkur á meðan við elduðum svakalegan kvöldmat en svo dreif hann sig heim ! Svoleiðis var eldamennskan hjá okkur að matarlyktina lagði yfir brautina og menn komu úr öllum áttum að tjékka á þessu ! Svo var borið á borð, sænskar kjötbollur í súrsætri og hrísgrjón og kjúklinganaggar með kokteilsósu í viðbót ! Við Signý og Bjarki settumst öll við borðið og hentum ræmu í fartölvuna á meðan við hámuðum í okkur og mikið hrikalega var það gott ! Þegar búið var að ganga frá öllu hentum við sófanum í kósýstellingu og kláruðum myndina. Þá bjuggum við bara um okkur og vorum komin í rúmið rétt fyrir miðnætti og sofnuðum yfir enn einni frábærri ræmu í fartölvunni !

 
 

Á miðvikudeginum vaknaði ég svo í steikjandi hita í Napo og opnaði út til að fá súrefni inn til okkar, en fljótlega gat ég ekki legið lengur og skellti mér á lappir ! Það var komið slatti af liði í brautina en Gulli og Helgi voru mættir með námskeiðið sitt þarna úteftir. Ég skellti mér út og tók smá session áður en ég fór upp í Napo og rak svefnpurkurnar á lappir ! Við Signý tókum svo ágætis hjólun og tókum fyrir nokkra palla og sem Signý langaði að stökkva betur ! Þegar klukkan var að nálgast 2 ákváðum við að slútta þessu og pökkuðum saman ! Við fengum okkur snarl í bænum og kíktum á Kára áður en við brunuðum norður í sveitina góðu !

 

Geðveik æfingaferð í geggjuðum aðstæðum !

Bookmark
and
Share


Nánar / Tjá skoðun  
 15.07.2010
 X Games 16 - SX and FMX Course
Nú er óðum að styttast í X-Games 16 sem fara fram um Versló í Los Angeles ! Nýlega var gefin út teikning af brautinni fyrir Supercross og Freestyle og reyndar er Big Air rampurinn fyrir Skate líka þarna inná, öllu er þessu pakkað inn í hið fræga Los Angeles Coliseum. Brautirnar eru allar fléttaðar saman og sem dæmi má nefna að í Freestyle brautinni eru fimm rampar með mismunandi löngum stökkum, hellingur af moldar pöllum, wall ride, quarter pipe, og regnboga rail/jib box. Í Supercross brautinni er á nógu að taka og helst má nefna hrikalegt downhill start sem hefur aldrei sést áður, hrikalegir pallar sem minna helst á freestyle palla og göng þar sem keppendur þurfa að þrykkja í gegnum quarter pipe-inn á big air pallinum ! Það er allavega klárt að stjórnendur X-Games halda áfram að toppa sig ár eftir ár ! Kíkið á þessar teikningar af þessu öllu saman...


Myndir frá EXPN

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 15.07.2010
 KKA heimbođ um Verslunarmannahelgina
Frá KKA:

KKA býður hjólafólki að eiga góða hjólahelgi um verslunarmannahelgina á Akureyri. KKA mun eftir fremsta megni reyna að gera þessa helgi skemmtilega fyrir þá sem vilja koma og eiga góða helgi á aksturssvæði KKA. Motocrossbrautin mun verða í toppformi svo og endurosvæðið.
Ekki er búið að teikna endanlega dagskrá en hún fer m.a. eftir veðri og þátttöku.

En hugsanlegir viðburðir eru:
Hardenduro sýningin klofinn mótor. (keppni)
Endurotúr í nágrenni Akureyrar. (2-3 tímar)
Hjólatorfærukeppnin gamla góða.
Motocross æfingar alla helgina.
Kynning á sportinu fyrir byrjendur. Umhirða hjóla, búnaður o.fl.

Annað:
Frítt verður í motocrossbrautina á laugardeginum.
Geymsla inni fyrir hjól verður í boði þessa helgi.
Nítró verslunin á Akureyri verður með bakvakt alla helgina.
Gasgrill verða við félagsheimili KKA. Allir að grilla saman?

Nánari upplýsingar um tímasetningar o.fl verða þegar nær dregur.

F.h. KKA. Sig B.(Nítró) Unnar H og Stebbi Gull.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 06.07.2010
 Úlfaldi úr Mýflugu 2010
Um næstu helgi fer hin stórmerkilega tónlistarveisla "Úlfaldi úr Mýflugu" hér í Mývatnssveit og er þetta orðinn árlegur viðburður síðan 2008 ! Þessi viðburður samanstendur af tveggja daga tónleikaveislu sem fer fram í gamalli hlöðu við þorpið í Reykjahlíð og er þetta eitthvað sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Í ár verður eins og áður frábær listi af hljómsveitum og núna ætla tónleikahaldararnir að bjóða uppá tjaldsvæði fyrir gesti á litlar 1000 kr. rétt við hlöðuna. Þannig að nú er um að gera að skella sér norður í Mývatnssveit og sletta ærlega úr klaufunum ! Frekari upplýsingar um hátíðina á www.ulfaldinn.is !


Dagskrá fyrir hátíðina 2010:

Föstudagur 9. júlí - hefst kl. 19:00
Tom Hannay (UK)
Árstíðir
Kiriyama family
Nögl
Thingtak
Endless dark

Laugardagur 10. júlí - hefst kl 18:00
Baggabandið
Of monsters and men
Some shape to enter (DK)
Bróðir Svartúlfs
Nevolution
Cliff Clavin
Jan Mayen
Agent Fresco

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat