8. umferðin af 12 í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Washougal í Washington. Það var gríðarlegur hiti um helgina en ekki jafn kæfandi raki og í síðustu keppnum sem gerði leikinn aðeins viðráðanlegri fyrir keppendur. Þessi helgi markaði fyrsta skiptið sem sami keppandi í báðum flokkum vann bæði moto-in, þið spyrjið ykkur hver það er...! Núna er komið að 2ja helga pásu í AMA Motocrossinu og næsta keppne er í Unadilla 14. ágúst ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
Á föstudaginn fór fram fjórða viðureignin í Red Bull X-Fighters seríunni 2010 og núna var keppt á fæðingarstað seríunnar í Madrid á Spáni. Eins og áður var keppnin í hinum magnaða nautaatshring Plaza del Toro og áhorfendurnir alveg brjálaðir eins og venjulega á Spáni. Dany Torres sem vann keppnina í Madrid í fyrra var í algeru uppáhaldi hjá áhorfendum en það stöðvaði þó ekki Ástralann Robbie Maddison því hann kom sá og sigraði fyrstu keppnina sína og er greinilega búinn að uppfæra "trick" listann hjá sér því það sáust stökk sem hafa aldrei sést í X-Fighters seríunni áður ! Annar varð svisslendingurinn Mat Rebaud og í þriðja endaði Norðamaðurinn Andre Villa sem leiðir þó seríuna áfram !Næsta umferð fer svo fram 14. ágúst við Battersea raforkuverið í London í Bretlandi !
1. Robbie Maddison (AUS)
2. Mat Rebeaud (SUI)
3. Andre Villa (NOR)
4. Dany Torres (ESP)
5. Levi Sherwood (NZL)
6. Adam Jones (USA)
7. Mike Mason (USA)
8. Maikel Melero (ESP)
9. Jackson Strong (AUS)
10. Cameron Sinclair (AUS)
Stigastaðan í Red Bull X-Fighters 2010:
1. André Villa (NOR) 310 p.
2. Robbie Maddison (AUS) 265 p.
3. Nate Adams (USA) 225 p.
4. Levi Sherwood (NZL) 220 p.
5. Adam Jones (USA) 190 p.
6. Dany Torres (ESP) 145 p.
7. Eigo Sato (JAP) 130 p.
8. Mat Rebeaud (SUI) 95 p. & Jim McNeil (USA) 95 p.
9. Cameron Sinclair (AUS) 50 p.
10. Mike Mason (USA) 30 p.
Í gærkvöldi fóru fram undanrásir fyrir Red Bull X-Fighters keppnina í Madrid en aðalkeppnin fer fram núna í kvöld ! Það var nóg að gerast í undanrásunum og sá sem endaði efstur var Norðmaðurinn Andre Villa á undan Svisslendingnum Mat Rebaud og heimamanninum Spánverjanum Dany Torres ! En það sem þótti þó mest áhugavert var þegar Ástralinn Clinton Moore tók sig til og lenti "Volt" trikkinu í fyrsta skipti í keppni en þetta er trikk sem Kyle Loza vann Best Trick á X-Games 2007 og er alveg fáránlegt ! Kíkið á video-ið og verið klár á að missa ekki af keppninni í kvöld...
Bein útsending frá keppninni er á Red Bull Web TV og byrjar útsendingin kl: 20.30 á íslenskum tíma, ekki missa af því !
Annað kvöld fer fram 4. umferðin í Red Bull X-Fighters túrnum 2010 og verður keppt í Madrid á Spáni. En það eru núna 10 ár síðan Red Bull X-Fighters fór af stað einmitt á Spáni. Í fyrra var það heimamaðurinn Dany Torres sem sigraði fyrir framan brjálaða spænska aðdáendur sem allir keppendurnir eru sammála um að séu þeir klikkuðustu !
Hægt verður að horfa "Live" á keppnina á Red Bull Web TV og byrjar útsendingin kl: 20.30 á íslenskum tíma !
Endurocrosskeppni / sýning verður haldin á Neistaflugi í Neskaupstað laugardaginn 31 Júlí. Skráning fer fram í síma 868-3512 (Ísak) og á netfanginu isakfannar@gmail.com.
Keppnisgjaldið er 3000 kr. og rennur það í peningaverðlaun til keppenda.
Þáttur um aðra umferð Íslandsmótsins í Motocross sem fram fór á Álfsnesi þann 3. júlí síðastliðin verður sýndur í Sjónvarpinu í boði Púkans og Snæland videó, í kvöld, 22. júlí kl. 00:00 og endursýndur á laugardaginn kl. 13:00.
Monster Energy TV eru mættir aftur með Adam Cianciarulo í Kawasaki Team Green en núna ber þátturinn nafnið "Are You Smarter Than A Homeskooled 8th Grader ?" þar sem Adam er á leið í 8. bekk núna ! Í þessum þætti mætir Adam liðsfélaga sínum Nick Way...
Um helgina skelltum við okkur á LungA á Seyðisfirði og vááá hvað þessi hátíð er alltaf geðveik ! Ég, Arna Benný, Signý, Gígja og Bjarki Sig skelltum okkur öll af stað á Napoleon á föstudeginum eftir að hafa hrúgað öllu dóti og drasli í bílinn og fyllt alla skápa og kælinn af mat ! Við rúlluðum í þvílíkri blíðu austur og vorum komin á Seyðisfjörð rétt fyrir 8. Við hittum Gumma Skúla og vini hans úr Mosó en þeir gistu allir í bryggjuhúsi sem fjölskylda Einars Roth á. Við fengum svo að koma okkur fyrir á flottum grasbletti rétt hjá bryggjuhúsinu og sluppum þarmeð bæði við að borga tjaldstæði og lætin sem fylgja tjaldstæðinu, vorum samt ekki nema í 5 mín göngufjarlægð frá bænum ! Þegar við vorum búin að koma Napo fyrir og tjalda og græja hentum við borgurum á grillið og Konni kærasti Gígju kom í heimsókn og stuttu seinna komu Hilli og Hjalti líka ! Við kíktum svo öll í bryggjuhúsið og þar var næg vitleysa í gangi áður en við héldum í bæinn ! Við kíktum á tjaldstæðið og hittum mann og annan og enduðum svo kvöldið í bullandi dans svitabaði í Herðubreið á trylltu DJ brjálæði ! Geðveikt kvöld !
Á laugardeginum sváfum við bara út og eftir morgunmatinn og gott tjill skelltum við Arna Benný og Signý okkur í göngutúr að skoða allt sem var í gangi í bænum ! Þar voru allskyns snilldar listagjörningar í gangi og við skemmtum okkur konunglega. Við fórum svo og fengum armböndin okkar fyrir tónleikaveislu kvöldsins áður en við héldum út í bíl að fá okkur snarl ! Eftir snarlið var enginn annar en ofurhuginn Guðmundur Skúlason mættur og ætlaði nú að fara og fleyta á vélsleða í kringum hólmann miðbænum á Seyðisfirði. Við skelltum okkur auðvitað með og fylgdumst með. Fyrst gekk vel að fleyta yfir í hólmann en um leið og Gummi reyndi að beygja og fara hringinn komst vatn á reimina og hann sökkti sleðanum. En sem betur fer var hann ekki langt frá bakkanum og við drógum hann leikandi upp eftir að björgunarmennirnir Snævar og Guðni Rúnar höfðu komið bandi í sleðann ! Eftir þetta ævintýri héldum við út í bíl og græjuðum fyrir svaka grillveislu en Kristó, Hilli, Hjalti, Ingþór og Elli mættu allir og Gígja og Konni og Einar Óli líka og það var svaka stuð í Napo og í sérútbúna fortjaldinu á meðan við átum á okkur gat ! Þegar við vorum búin að ganga frá héldum við inn í bæ á útitónleikana sem voru alveg geðveikir, hittum fullt af vinum okkar og dönsuðum tryllt undir tónum Hjaltalín, Retro Stefson og aðallega þá Bloodgroup sem voru vangefin ! Eftir að útitónleikunum lauk héldum við inn í Herðubreið þar sem Hjálmar spiluðu fram á nótt en þá kvíslaðist hópurinn og við Arna Benný, Signý og Bjarki héldum heim um 3 leytið !
Á sunnudeginum þurftum við að vakna á skikkanlegum tíma en Arna Benný og Gígja þurftu að vera komnar á AK á æfingu kl hálf 6 svo við gengum frá öllu og sóttum Gígju heim til Konna og vorum lögð í hann rétt um 1 ! Þegar við komum að Eyvindaránni voru Hilli og Kristó og allir strákarnir stopp þar og þeir tveir stukku af brúnni út í, sé pínu eftir að hafa ekki verið með en eftir að hafa fylgst með því brunuðum við heim í sveit í þvílíka veðurblíðu !
Fáránlega góð helgi með æðislegu fólki á enn einni snilldar LungA hátíð ! Tjékkið á myndaalbúminu frá helginni á myndasíðunni eða með því að smella hér !
Um síðustu helgi fór fram 1. umferðin í AMA Endurocrossinu 2010 í USA og var keppt í Las Vegas. Taddy Blazusiak var mættur til að verja titili sinn frá því í fyrra en núna er Geoff Aaron mættu til keppni aftur eftir meiðsli og var greinilega hungraður í að þagga niður í hinum ósigraða Taddy ! Honum tókst það reyndar ekki um helgina en hann sýndi hrikalega baráttu og ekki mátti muna miklu að hann hefði sigur úr bítum en Taddy tókst með sínum fáránlega og mistakalausa akstri að sigra eftir eina mest spennandi keppni sem ég hef séð ! Þriðji var svo Cory Graffunder á Husqvarna en hann keyrði gríðarlega flott og var ekki langt undan ! Tjékkið endilega á video samantektinni frá keppninni hér að neðan, getið spólað á 4.44 til að fara beint í Main Event ! Næsta keppni fer fram 14. ágúst í Oklahoma !
7. umferðin af 12 í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Spring Creek í Minnesota. Það voru frábærar aðstæður, þrátt fyrir að seinna moto-ið hjá 250 flokknum hafi fengið smá bleytu. Um helgina var keppt í 450 flokknum og 250 flokknum en einnig mætti WMA (kvennaflokkur) til keppni. Það voru líka gamlar kempur sem mættu til leiks í 450 flokknum og sýndu alveg hvað í þeim býr, nefni engin nöfn... Næsta keppni fer svo fram um næstu helgi í Washougal 24. júlí ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...