25.06.2009
 Freecaster.tv með meiri umfjöllun um baráttuna í MX1
Annað video frá Freecaster.tv sem fjallar enn betur um baráttuna í MX1 í Þýskalandi um síðustu helgi !

MX1

Cairoli wins in Teutschenthal and extends his lead in the World Championship standing. But, almost... just almost Max Nagl had beaten him to it. Max was fighting heavily but in the end, he had to give in to the superiority of the Sicilian.
Nánar / Tjá skoðun  
 23.06.2009
 Freecaster.tv með flotta umfjöllun um baráttuna í FIM Heimsmeistaramótinu í MX
Freecaster.tv sem er heimili heimsmeistaramótsseríunnar í Motocrossi birti í dag flotta umfjöllun um baráttuna sem stendur yfir í MX1, MX2 og hjá stelpunum ! Þetta eru hrikalega flott video og gaman að fá smá svonna "innsæd" í spennuna sem magnast óðum eftir því sem líður á sumarið ! Ég smellti öllum þremur video-unum inn hér að neðan svo þið getið tjékkað á þessu !

MX1

We followed KTM rider Max Nagl at his home GP track in Germany. Join us.

MX2

The MX2 races were both spectacular and sensational! Although Musqvin and Frossard fought hard, it was young gun Ken Roczen who took his first ever GP win at Teutschenthal. And that at only 15 years of age!

Women

The WMX in Teuthschenthal looked almost like a nice little gathering of the German girls as all 3 place on the box were theirs. Unfortunate luck for Livia Lancelot who had to drop out due to a dislocated shoulder. Is her season over?
Nánar / Tjá skoðun  
 23.06.2009
 Úlfaldi úr Mýflugu 2009 - Tónlistarveisla í Mývatnssveit 10.-12. júlí
Já, í sumar verður aftur efnt til einnar svakalegustu tónlistarveislu sumarsins hér á Mývatni. Úlfaldi úr Mýflugu er framtak sem nokkrir heimamenn réðust í síðasta sumar og tókst alveg frábærlega hjá þeim. Núna verður þessi viðburður enn stærri og flottari og er úrval hljómsveita og tónlistarmanna alveg frábært ! Til að nefna nokkra þá verða þarna Brain Police, Lights on the Highway, Árstíðir, Agent Fresco, Vicky, Múgsefjun og Thingtak ! En hægt er að skoða nánari dagskrá á www.ulfaldinn.is !



Mæli eindregið með að fólk skelli sér í sveitina og sletti úr klaufunum þessa aðra helgi júlímánaðar, ég get fullyrt það að enginn verður svikinn !

Jonni
Nánar / Tjá skoðun  
 23.06.2009
 8th Transatlantic Offroad Challenge - Iceland
Þá er stóru 6 tíma keppninni lokið á þessu ári, reyndar var hún bara rétt tæpir 5 tímar en það þurfti að stytta keppnina vegna veðursins sem herjaði á okkur. Það var bálhvasst og grenjandi rigning og það setti sko sinn svip á keppnina. Þetta var alveg frábær keppni í alla stað, brautin var mjög skemmtileg þrátt fyrir að bleytan hafi aðeins skreytt hana þegar leið á. Þannig fór að í heildina voru það þremenningarnir á KTM, Gulli, Gunni og Einar sem unnu. Í öðru var þremenningssveit Yamaha þeir Valdi, Gulli og Bjöggi og svo urðum við Markus Olsen í þriðja en við urðum fyrstir í tvímenningnum. Í einmenningnum var það Orri Péturs sem sigraði með glæsibrag og var 13. yfir heildina, en gamli jálkurinn hann pabbi náði að hampa öðru sætinu í einmenningnum og var 15. yfir heildina, góður kallinn ! Í feðga/feðgina flokknum voru það sveitungar mínir, Krissi og Steingrímur sem unnu og voru í 14. sæti yfir heildina !

Þvílík snilldar keppni og ég vill þakka öllum þeim sem gerðu þessa keppni að veruleika kærlega fyrir frábæra skemmtun !


Hér má svo skoða nánari úrslit:

Heildarúrslit

Millitímar

Hringir

Flokkar

Bestu millitímar
Nánar / Tjá skoðun  
 23.06.2009
 FIM Motocross 2009 Grand Prix - Round 9 - Teutschenthal, Germany
Um helgina fór fram áttunda umferðin í FIM heimsmeistaramótinu í Motocross og var keppt í Teutschenthal í Þýskalandi. Á ráslínuna voru mættir strákarnir í MX1 og MX2 ásamt stelpunum. Í MX1 heldur Cairoli stigaforskotinu þrátt fyrir meiðsli sem hafa hægt á honum, það var því spennandi að sjá hvað hann myndi gera um helgina ! Í MX2 er Marvin Musquin með stigaforskotið en ýmsir hafa verið að stríða honum og ekki síst hinn 15 ára gamli Ken Roczen sem keppti einmitt á sínu heimasvæði um helgina, það var því einnig rosalega spennandi að sjá hvað myndi gerast þar ! Hjá stelpunum hefur Livia Lancelot verið á toppnum en hún þurfti að hverfa frá vegna meiðsla um helgina og stóð því allt galopið og mjög spennandi að fylgjast með baráttunni þar. Signý systir stóð sig hrikalega vel og náði 20. sæti og krækti með því í fyrstu 2 stigin sín og Íslands í heimsmeistaramótinu í MX. Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá keppninni og "highlights" frá hverjum flokki.


Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Þýskalandi !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Germany !
Nánar / Tjá skoðun  
 22.06.2009
 Signý systir búin að skora fyrstu stigin fyrir Ísland á heimsmeistaramótinu !
Já, ef þið hafið ekki frétt það nú þegar þá stóð Signý systir sig með þvílíkri prýði um helgina í Þýskalandi. Þar fór fram 5. umferðin í heimsmeistaramótinu í Motocross hjá konum. Hún púslaði öllu saman og varð í 20. sæti í báðum moto-um helgarinnar sem þýddi að hún hlaut fyrstu tvö stigin sín og þar með fyrstu tvö stig sem Ísland hefur hlotið í heimsmeistaramótinu í Motocrossi ! Hún var að vonum alveg hrikalega glöð og gleðin skilaði sér sko vel í gegnum símann þegar ég heyrði í henni í gær ! Nú er bara að litla syss haldi þessari gleði eftir helgina og gangi eins vel næst !

Bryndís Einarsdóttir tók einnig þátt í þessu móti um helgina og var það í fyrsta skiptið sem hún keppir í heimsmeistaramótinu. Henni gekk ekki alveg eins vel og varð í 32. sæti í fyrra moto-inu og í því seinna varð hún fyrir því óhappi að olían fór af mótornum hjá henni og þurfti hún því að hætta keppni. En hún ætlar að keppa í þeim keppnum sem eru eftir í mótaröðinni og vonum við að henni gangi betur næst !

Mamma er með Signý úti og ætla þær núna að taka tveggja daga pásu í Berlín og halda svo áfram áleiðis til Svíþjóðar og taka æfingar í brautum á leiðinni. Næsta mót hjá Signý er í Uddevalla í Svíþjóð fyrstu helgina í Júlí !

Til hamingju syss,
Jonni
Nánar / Tjá skoðun  
 20.06.2009
 Miðnæturkeppni 2009
Nánar / Tjá skoðun  
 14.06.2009
 AMA Motocross 2009 - Round 4 - High Point
Um helgina fór fram 4. umferðin í AMA Motocrossinu í USA. Það hefur verið frekar gremjulegt að sjá hvern toppinn á fætur öðrum þurfa að hætta keppni vegna meiðsla en nú þegar hafa hátt í tíu manns fallið út vegna einhversskonar meiðsla. En núna um helgina var keppt í High Point brautinni og var þetta víst hörkuspennandi keppni. En ég hef úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda í spennuna og horfa á keppnina...


Myndir frá RacerX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin úr High Point Motocrossinu !

Press "
Nánar / Tjá skoðun" for the results from High Point !
Nánar / Tjá skoðun  
 13.06.2009
 Enduro Ísland 2009 - 3. & 4. umferð - Akureyri
Jaaaaháaa ! Þvílík hamingja eftir svona keppni ! Í dag fóru semsagt fram 3. og 4. umferðirnar í Íslandsmótinu í Enduro á Akureyri og þeir félagarnir í KKA buðu upp á hrikalega krefjandi og skemmtilega braut ! Það var brekkuspól, mýrar, drulla, lækir, stórgrýti og allskyns sæla ! Kári kallinn Jónsson grillaði gjörsamlega Meistaraflokkinn og var algerlega í sérflokki. Í E1 sem er sérflokkur innan Meistaradeildarinnar fyrir litlu hjólin náði ég að sigra aftur og varð fimmtii í heildina. Í tvímenningnum unnu Bjarki Sig og Ágúst og voru að keyra gríðarlega flott. Í Baldursdeildinni var hörkubarátta á milli Hákons og Haffa Grant en svo fór að þeir unnu sitthvora umferðina en Hákon vann daginn þar sem hann vann þá seinni. Í +40 flokki innan Baldursdeildarinnar vann Ragnar Ingi Stefánsson. Í 85cc flokki vann Guðbjartur Magnússon og í Kvennaflokknum vann Aníta Hauksdóttir.

Arna Benný smellti af nokkrum myndum, valdi nokkrar flottar hér í fréttina ! Fín mynd af drullusvaðinu þarna ! Djöfull var þetta gaman ! Takk KKA fyrir frábæra keppni !



Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:

Meistaraflokkur:
1 46 Kári Jónsson 200 100 100
2 42 Björgvin Sveinn Stefánsson 152 85 67
3 4 Einar Sverrir Sigurðarson 150 75 75

E1 flokkur:
1 24 Jónas Stefánsson 114 60 54
2 690 Kristófer Finnsson 87 45 42
3 100 Árni Gunnar Gunnarsson 45 0 45

E2 flokkur:
1 46 Kári Jónsson 200 100 100
2 42 Björgvin Sveinn Stefánsson 152 85 67
3 4 Einar Sverrir Sigurðarson 150 75 75

Tvímenningur:
1 371T Bjarki Sigurðsson 185 85 100
2 3T Finnur Aðabjörnsson 185 100 85
3 2T Ásgeir Elíasson 150 75 75

Baldursdeild:
1 212 Hákon Andrason 185 85 100
2 430 Hafþór Ágústsson 185 100 85
3 291 Þorri Jónsson 150 75 75

+40 flokkur:
1 0 Ragnar Ingi Stefánsson 185 85 100
2 50 Hrafnkell Sigtryggsson 185 100 85
3 287 Víðir Ólafsson 142 75 67

85cc flokkur:
1 102 Guðbjartur Magnússon 185 85 100
2 910 Haraldur Örn Haraldsson 100 100 0
3 367 Ingvi Björn Birgisson 85 0 85

Kvennaflokkur:
1 31 Aníta Hauksdóttir 200 100 100
2 688 Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir 160 75 85
3 235 Guðfinna Gróa Pétursdóttir 160 85 75

Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is
Nánar / Tjá skoðun  
 11.06.2009
 Video frá Sumarjamboree 2009
Jebb, ég er búinn að dunda í þeim litla frítíma sem ég hef haft að klippa alveg fáránlega skemmtilegt video frá helginni þó ég segi sjálfur frá ! Held að þessi klippa nái að lýsa ótrúlega vel stemningunni sem var við völd um helgina og vonandi fá bros á andlitið á ykkur ! Videoið er að sjálfsögðu á videosíðunni líka ! Svo nú er bara að smella á "play" og njóta...


Ef þið viljið pósta videoinu á síðuna hjá ykkur þá er ég búinn að setja kóðann í kommentin !

Það væri svo geggjað að fá komment á þetta, hvað ykkur fannst um klippuna eða helgina eða hvað sem er ! Látið það flakka !
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annað sé tekið fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat