09.08.2010
FIM Motocross 2010 Grand Prix - Round 12 - Loket, Czech Republik
Í gær fór fram 12. umferðin af 17 í FIM heimsmeistaramótinu í motocrossi og var keppt í Loket í Tjékklandi. Þar var keppt í MX1 og MX2 flokkunum ásamt WMX eða kvennaflokki og það voru erfiðar aðstæður þar sem að það rigndi gríðarlega á laugardeginum. En það var gríðarleg spenna í gangi en ég hafði loks tíma til að horfa á þessa keppni í gær og ég var gersamlega á nálum að horfa á seinna hítið hjá MX2 og svo var líka hrikaleg spenna í seinna hítinu hjá WMX ! Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá hverjum flokki.

Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Tjékklandi !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Czech Republik !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun
06.08.2010
Motocross á RÚV - Sólbrekka
Tekið af www.motocross.is:

Við eru svo heppin að hafa sportið okkar á RÚV. En útsendingin var á frekar óhentugum tíma í gærkvöldi.

En það er ekkert mál. HÉR er beinn tengill á RÚV.

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun
03.08.2010
4. umferđ Íslandsmótsins í Motocross á Akureyri
Tekið af www.kka.is:

Laugardaginn næstkomandi eða þann 07.08.2010 fer fram 4. umferð íslandsmóts í motocross. Keppnin verður haldin á Akureyri.

Skráning fer fram á www.msisport.is Tímatökur hefjast kl: 09:25 en fyrstu moto hefjast kl: 11:25 þegar B-flokkur byrjar. Keppnin endar síðan um kl: 16:00 og verðlaunaafhending eftir það. nánar um dagskrá mótsins er inná www.msisport.is

Búast má við skemmtilegri keppni enda veðurspá góð og brautin verður í toppformi.

KKA hvetur hjólara til að vera með í skemmtilegri keppni.

Valið verður í landslið íslands sem fer á MXON í haust. Það má því búast við látum í þessari keppni.

Mótsstjóri: Stefán Golden. Brautarstjóri: Gunnar H. Öryggisfulltrúi: Guðmundur Hannesson.

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun
03.08.2010
Unglingalandsmót UMFÍ 2010 - Motocross
Motocrossið á Unglingalandsmótinu tókst alveg frábærlega í góðu veðri og geggjaðri braut. Klúbburinn á Akranesi á heiður skilinn fyrir að bregðast við með svo skjótum fyrirvara og var öll aðstaða til mikillar fyrirmyndar. Jarðýta var ræst strax á föstudaginn og brautin var öll rippuð og í topplagi á sunnudag.

Einn ökumaður vakti athygli öðrum fremur, en það var Guðbjartur Magnússon # 12 sem gerði sér lítið fyrir og keppti í báðum flokkum og keyrði því nánast í þrjá klukkutíma samfleytt. Það var hins vegar annar nýfermdur sem sigraði unglingaflokkinn, en það var Ingvi Björn Birgisson # 19 sem sýndi alveg gríðarlega flottann akstur og er að stimpla sig inn sem einn okkar efnilegasti ökumaður. Signý Stefánsdóttir # 34 rúllaði kvennaflokknum upp og var að stríða strákunum, endaði m.a. í þriðja sæti í unglingaflokki í seinna mótoinu.

Annars urðu úrslit sem hér segir:

85cc flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Aron Örn Gunnarsson
3. Bjarki Lárusson

Kvennaflokkur
1. Signý Stefánsdóttir
2. Andrea Dögg Kjartansdóttir
3. Ásdís Elva Kjartansdóttir

Unglingaflokkur
1. Ingvi Björn Birgisson
2. Kristján Daði Ingþórsson
3. Guðbjartur Magnússon

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun
02.08.2010
FIM Motocross 2010 Grand Prix - Round 11 - Lommel, Belgium
Í gær fór fram 11. umferðin í FIM heimsmeistaramótinu í motocrossi og var keppt í Lommel í Belgíu. Þar var keppt í MX1 og MX2 flokkunum og var allt að gerast eftir pásuna á tímabilinu. Núna eru bara 4 umferðir eftir og því spennan sífellt að magnast... Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá hverjum flokki.

Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Belgíu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Belgium !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun
02.08.2010
X Games 16 - Day 4
Síðasti dagurinn á X-Games 16 fór fram í gær og hann gaf hinum fyrri ekkert eftir ! Þeir viðburðir sem fóru fram í gær voru BMX Freestyle Street, Skateboard Park Adaptive Jam, Women's Skateboard Street, Skateboard Park Legends, Skateboard Women's Park Jam, Game of SK8, Skateboard Park og Moto X Speed & Style !

Dagurinn byrjaði á BMX Freestyle Street en þar var það Garrett Reynolds sem sigraði í fáránlegri keppni, djöfull sem þeir geta gert á þessum BMX hjólum ! Í Women's Skateboard Street var hörku keppni en það var Alexis Sablone sem sigraði að lokum ! Game of SK8 var mjög skemmtilegt en það er svona leikur eins og "asni" nema á hjólabretti, þú verður að gera sama trick og maðurinn á undan annars færðu staf og það var Tommy Sandoval sem náði stjórn á leiknum og sigraði með fáránlegum trick-um ! Í Skateboard Park var geðveikt að fylgjast með því þar mættist nýja kynslóðin og old school kynslóðin en það voru tveir ungir drengir sem var geðveikt að fylgjast með þegar þeir sýndu gömlum hundunum eins og Bucky Lasek í tvo heimana en þetta voru þeir Pedro Barros 15 ára frá Brasilíu og Curren Caples 14 ára frá USA, svo fór að Pedro Barros sigraði á sínum fyrstu X-Games með hrikalegum run-um ! Lokaviðburður leikanna var svo Moto X Speed & Style og ég get sagt ykkur að ég nötraði af spenningi að horfa á þetta alveg geðveik grein, en að lokum voru það Nate Adams og Travis Pastrana sem kepptu til sigurs og Travis hafði meiri hraða sem dugði honum til að sigra Nate sem fékk aðeins hærra Style score ! En það var þó einn skemmtilegast að fylgjast með Jeremy "Twitch" Stenberg þegar hann og Ronnie Faisst kepptu um bronsið, þvílíkt rugl !

En hér eru video frá öllu því helsta sem gerðist á síðasta deginum á X...

X Games 16 - BMX Freestyle Street Garrett Reynolds Gold

X Games 16 - Skateboard Street Alexis Sablone Gold

X Games 16 - Tommy Sandoval Game of SK8 Gold

X Games 16 - Skateboard Park Pedro Barros Gold

X Games 16 - Travis Pastrana Moto X Speed & Style Gold

X Games 16 - Rollout

Vægast sagt geðveikir X-Games 16 komnir í sögubækurnar, vona að ykkur hafi líkað fréttaflutningurinn !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun
02.08.2010
X Games 16 - LIVE
Fann loksins stream á X-Games aftur þar sem að síðasti dagurinn er víst sýndur á ESPN2 en ekki ESPN sem hitt stream-ið sem ég fann var á ! Vona að einhver verði glaður...

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun
01.08.2010
X Games 16 - Day 3
Dagur 3 af 4 á X Games 16 fór fram í gær eða nótt á okkar tíma og það var allt að gerast ! Í gær fóru fram úrslit í BMX Freestyle Park, Skateboard Street Men's, Rally Car Racing, BMX Freestyle Big Air, SuperRally og Skateboard Big Air Rail Jam !

Dagurinn byrjaði á BMX Freestyle Park en þar var það Daniel Dhers sem kom og sýndi hinum hvernig ætti að gera þetta og sigraði með svakalegum run-um ! Í Skateboard Street var það undrabarnið Ryan Sheckler sem sýndi að hann kann þetta ennþá og sigraði ! Í Rally Car Racing var mikil eftirvænting en þar skipti sköpum að gera ekki mistök og þegar allt kom til alls var það Tanner Foust sem sigraði með flottum akstri ! Í BMX Freestyle Big Air sást allskyns brjálæði en það var Chad Kagy sem sigraði með fáránlegu run-i ! Í SuperRally var það svo Tanner Foust sem tók annað gullið sitt þetta kvöldið ! Þegar það var komið að síðasta viðburði dagsins Skateboard Big Air Rail Jam sem er náttúrulega bara geðveiki var það Bob Burnquist sem sigraði !

En hér eru video frá öllu því helsta sem gerðist á degi þrjú...

X Games 16 - Daniel Dhers BMX Freestyle Park Gold

X Games 16 - Ryan Sheckler Skateboard Street Gold

X Games 16 - Tanner Foust Rally Car Racing Gold

X Games 16 - Chad Kagy BMX Freestyle Big Air Gold

X Games 16 - Tanner Foust SuperRally Gold

X Games 16 - Bob Burnquist Skateboard Big Air Rail Jam Gold

Í kvöld er svo komið að BMX Freestyle Street, Skateboard Park Adaptive Jam, Women's Skateboard Street, Skateboard Park Legends, Skateboard Women's Park Jam, Game of SK8, Skateboard Park og Moto X Speed & Style ! Brjálæðið byrjar svo á ESPN2 kl: 17.00 og svo aftur kl: 23.00 ! Er ekki búinn að finna netútsendingu frá ESPN2 en ég set það inn um leið ef ég finn eitthvað !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun
31.07.2010
Endurocross Neistaflug 2010
Í dag fór fram Endurocross á Neskaupsstað í tilefni Neistaflugs 2010 og ég ákvað að skella mér austur og kíkja á viðburðinn ! Heimamennirnir höfðu búið til mjög skemmtilegan hring sem var með drumbum, olíutank, dekkjum, kapalkeflum, vúppsum, stökkpalli og skemmtilegum beygjum, stuttur en mjög skemmtilegur hringur ! Það voru 9 manns sem mættu til leiks og þó nokkuð af áhorfendum sem fylgdust með þrátt fyrir þykka þoku sem lá yfir fyrðinum ! Keppendur borguðu 3000 kr í pott sem átti svo að skipta í verðlaunafé á milli efstu þriggja ! Það var skipt niður í 3 undanhít þar sem fyrsti maður komst beint í úrslit, úr undanhítunum voru það ég, Ingvar frá Egilsstöðum og heimamaðurinn Ármann Örn sem komust áfram. Stuttu seinna fór restin saman í Last Chance og þar komust tveir áfram, úr varð svakalegt race þar sem Brói leiddi framanaf en svo gerði hann nokkur mistök sem kostuðu hann 2 sæti svo það voru þeir Benni og Eyþór sem komust áfram ! Þá var komið að úrstum og þegar flaggað var af stað náði ég hörku starti en fljótlega var flaggað af og vildu menn meina að um þjófstart hefði verið að ræða, við stilltum okkur því aftur upp og þá náði Ármann Örn startinu og ég alveg í rassgatinu á honum ! Ég hékk í rassgatinu á honum marga hringi og var tvisvar við það að ná honum en gekk ekki, svo þegar við fórum að hringa menn varð ég mjög óheppinn og lenti á eftir manni sem datt og það tvisvar og þá var Ármann kominn með smá forskot sem ég náði ekki að vinna á. Það fór því svo að Ármann Örn sigraði, ég endaði annar og Ingvar endaði þriðji ! Hörkuskemmtileg keppni sem mér heyrðist heimamenn vera ólmir í að halda aftur að ári !

Ég var svo heppinn að hitta á Hörð Finnboga sem var á fullu að ljósmynda og hann sendi á mig nokkrar flottar myndir sem ég læt fylgja hérna !

Myndir Hörður Finnboga

Endurocross Neistaflug 2010 - Úrslit:
1. Ármann Örn
2. Jonni
3. Ingvar
4. Benni
5. Eyþór

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun
31.07.2010
X Games 16 - Day 2
Dagur 2 af 4 á X Games 16 var í gær eða nótt á okkar tíma og það var nóg um tilþrif þennan daginn ! Þennan daginn fóru fram undanrásir í Skateboard Park og BMX Street en svo fóru fram úrslit í Adaptive Super X, Women's Skate Vert, BMX Vert, Moto X Step Up, Skate Vert, Moto X Best Whip, Moto X Best Trick og Skateboard Vert Best Trick !

Fyrstu úrslit dagsins komu frá Adaptive Super X en þar var það Íslandsvinurinn og Snocross keyrarinn Mike Schultz sem sigraði með svakalegum akstri. Í Women's Skate Vert sigraði Gaby Ponce og í BMX Vert var það svo Jamie Bestwick sem kom sá og sigraði. Næst var komið að Moto X Step Up sem varð að einvígi milli Matt Buyten og Ronnie Renner, en Buyten hafði þó betur og sigraði. Í Skate Vert var svo mikil eftirvænting eftir Shaun White og eftir frábæran árangur í undanrásunum kom hann sterkur inn í úrslitunum en það var þó titil verjandinn Pierre Luc Gagnon sem kom sá og sigraði með svakalegu run-i ! Þegar kom að Best Whip átti enginn roð í fáránlegar halaskvetturnar frá Todd Potter sem sigraði með yfirburðum ! Svo var komið að því, Moto X Best Trick og það var goðið Cam Sinclair sem mætti með svakalegasta "comeback" í manna minnum eftir að hafa næstum drepið sig við að reyna double backflip þá kom hann og lenti því alveg fullkomið og sigraði ! Síðasta keppni kvöldsins var Skateboard Vert Best Trick og þar var það Pierre Luc Gagnon sem náði í annan sigur sinn þetta kvöldið !

En hér eru video frá öllu því helsta sem gerðist á degi tvö...

X Games 16 - Gaby Ponce Skateboard Vert Gold

X Games 16 - Jamie Bestwick BMX Vert Gold

X Games 16 - Matt Buyten Moto X Step Up Gold

X Games 16 - Pierre Luc Gagnon Skate Vert Gold

X Games 16 - Todd Potter Moto X Best Whip Gold

X Games 16 - Cam Sinclair Moto X Best Trick Gold

X Games 16 - Pierre Luc Gagnon Skateboard Vert Best Trick Gold

Í kvöld er svo komið að BMX Freestyle Park Final, Skateboard Street Men's Final, Rally Car Racing Final, BMX Freestyle Big Air Final, SuperRally Final, Skateboard Big Air Rail Jam ! Brjálæðið byrjar kl: 18.00 og svo aftur kl: 23.00 ! Linkur á netútsendingu í fréttinni "X-Games LIVE" hér aðeins neðar !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat