13.08.2009
 FIM Motocross 2009 Grand Prix - Round 13 - Loket, Czech Republik
Úff, ég ætti að skammast mín að koma svona seint með úrslitin frá helginni... En þið gefið mér kannski slaka þar sem þetta er nú í fyrsta skiptið í sumar sem ég gleymi mér svona, hehe ! En um helgina fór fram 13. umferðin í FIM Motocrossinu og var keppt í Loket í Tjékklandi. Það var mikil barátta og sumir sýndu svakaleg tilþrif og þá bæði í akstri og öðru... En þetta verður alltaf meira og meira spennandi þar sem við nálgumst óðum endalok tímabilsins ! Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá keppninni og "highlights" frá hverjum flokki.

Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Tjékklandi !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Czech Republik !
Nánar / Tjá skoðun  
 09.08.2009
 Motocross Ísland 2009 - 4. umferð - Sólbrekka
Um helgina fór fram 4. umferðin í Íslandsmótinu í Motocross í Sólbrekku. Þar var brautin víst alveg með besta móti og voru keppendur himinlifandi. Veðrið lék nú ekki beint við mótsgesti en þó fór fram hörku keppni og mikil spenna ! Ég stal nokkrum myndum af Kleó enda alveg geggjaðar ! Tjékkið á albúminu hennar með því að smella á nafnið hennar hér að neðan !

Myndir frá Kleó

Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:

MX Open:
1 66 Aron Ómarsson 75 25 25 25
2 11 Eyþór Reynisson 62 18 22 22
3 4 Einar Sverrir Sigurðarson 62 22 20 20

MX2:
1 11 Eyþór Reynisson 75 25 25 25
2 84 Viktor Guðbergsson 66 22 22 22
3 900 Heiðar Grétarsson 60 20 20 20

MX-Unglinga:
1 670 Bjarki Sigurðsson 75 25 25 25
2 274 Kjartan Gunnarsson 60 20 20 20
3 212 Hákon Andrason 56 22 18 16

MX-B:
1 273 Ernir Freyr Sigurðsson 50 25 25
2 617 Eysteinn Jóhann Dofrason 40 18 22
3 426 Eiríkur Rúnar Eiríksson 38 20 18

MX-B +40:
1 10 Haukur Þorsteinsson 50 25 25
2 707 Sigurður Hjartar Magnússon 44 22 22
3 50 Hrafnkell Sigtryggsson 40 20 20

85cc flokkur:
1 99 Guðmundur Kort 50 25 25
2 367 Ingvi Björn Birgisson 44 22 22
3 102 Guðbjartur Magnússon 38 20 18

Opinn Kvennaflokkur:
1 132 Karen Arnardóttir 50 25 25
2 209 Sandra Júlíusdóttir 42 22 20
3 31 Aníta Hauksdóttir 40 18 22

85cc Kvennaflokkur:
1 523 Ásdís Elva Kjartansdóttir 50 25 25
2 235 Guðfinna Gróa Pétursdóttir 44 22 22

Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is
Nánar / Tjá skoðun  
 08.08.2009
 Nitro Circus - Season 2 - hefst 27. ágúst !!!
Jíhaaa ! Season 2 af Nitro Circus þáttunum hefst þann 27. ágúst á MTV ! Alger snilld ! Tjékkið á þessum trailer, lítur vel út hehe...

Nánar / Tjá skoðun  
 04.08.2009
 2009 Red Bull: New Year. No Limits. - verður með Travis Pastrana !
Jahá ! Það er búið að tilkynna hvað verður á döfinni hjá Red Bull um næstu áramót í New Year No Limits dæminu þeirra ! Jebb, Travis Pastrana ætlar sér að bæta lengdarmetið í að stökkva á bíl ! Tjékkið á þessum video trailer...

Nánar / Tjá skoðun  
 04.08.2009
 X-Games 15 gengnir hjá...
Þá eru enn einir X-Games leikarnir gengnir yfir og shit hvað það er alltaf gaman að fylgjast með þessu ! Þvílíkur viðburður ! Það er svo ótal margt sem er hægt að nefna sem var hrikalegt að ég ætla nú varla að þora að demba mér út í það... Það má t.d. nefna geggjað run hjá Bilko í freestyle ! James Stewart datt út eftir aðeins vippu keppnina ! Josh Hansen vann í annað sinn Moto X ! Ashley Fiolek vann kvenna Moto X ! Kyle Loza vann mjög tvíræddan sigur í Moto X Best Trick ! Klikkað Skate Park run hjá Rune Glifberg og næstum enn svalara í BMX park hjá Scotty Cranmer ! Geðveikt Rally þar sem Travis skeit uppá bak og svo má lengi telja !

En ég mæli með að þið tjékkið á þessu videoi frá ESPN sem sýnir að þeirra vali "Top 10 Moment's" frá leikunum ! Svo er alveg ógrynni af myndböndum sem eru enn að hrúgast inn á www.freecaster.tv sem er vel vert að kíkja á !

Nánar / Tjá skoðun  
 04.08.2009
 Unglingalandsmót UMFÍ 2009 - Motocross
Eins og flestir ættu nú að vita fór Unglingalandsmót UMFÍ árið 2009 fram á Sauðárkróki um helgina og var þetta að eigin reynslu alveg frábært mót ! Ég og Arna Benný skelltum okkur þangað á föstudaginn og fylgdumst með litla bróður hennar keppa í frjálsum íþróttum og fótbolta, við þurftum reyndar að fara aftur heim á laugardeginum til að vinna og náðum því ekki að fylgjast með motocrossinu þar sem Signý systir var að keppa ásamt öllum helsu upprennandi stjörnunum okkar í hjólasportinu ! Þetta var alveg frábært mót í alla staði og það eina sem setti strik í var þá helst frekar léleg skráning í stúlknaflokkana en aðeins voru 2 skráðar í 85cc flokkinn og 2 í 125cc flokkinn. Það var því brugðið á það ráð að keyra stelpurnar og strákana saman sem öllum fannst að ég tel mjög skemmtilegt.

En í 85cc flokki stráka var það Guðmundur Kort sem sigraði en hann er einnig efstur að stigum í Íslandsmótinu í þessum flokki. Í 85cc flokki stúlkna var það alveg nýtt nafn Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir sem sigraði ! Í 125cc flokki stráka sigraði Eyþór Reynisson með yfirburðum en stúlknaflokki var það Signý systir sem sigraði og varð meira að segja 4 í strákaflokknum ! Glæsilegt það !

Hér eru heildarúrslitin úr öllu flokkum:

85cc flokkur drengja:
1. Guðmundur Kort
2. Hinrik Ingi Óskarsson
3. Guðbjartur Magnússon
4. Einar Sigurðsson
5. Haraldur Örn Haraldsson
6. Gylfi Þór Héðinsson
7. Kristján Daði Ingþórsson
8. Þorsteinn Helgi Sigurðsson
9. Benedikt Benediktsson
10. Finnur Ingi Jónsson
11. Hákon Ingi Þórisson
12. Eyþór Óskarsson
13. Þorgils Snorrason
14. Ingólfur Jónsson

85cc flokkur stúlkna:
1. Hafey Viktoría Hallgrímsdóttir
2. Ásdís Elva Kjartansdóttir

125cc flokkur drengja:
1. Eyþór Reynisson
2. Bjarki Sigurðsson
3. Hákon Andrason
4. Gylfi Andrésson
5. Pálmi Freyr Gunnarsson
6. Steingrímur Örn Kristjánsson
7. Jón Bjarni Einarsson
8. Friðgeir Óli Guðnason
9. Arnór Þorri Þrastarson
10. Daníel Freyr Árnason
11. Sævar Knútur Hannesson
12. Fannar Logi Kolbeinsson
13. Rúnar Ingi Pétursson
14. Brynjar Birgisson
15. Stefán Freyr Thordersen
16. Aron Berg Pálsson
17. Hafsteinn Alfreð Hallgrímsson
18. Benedikt Almar Bjarkason
19. Guðjón Þórólfsson
20. Benedikt Óskarsson

125cc flokkur stúlkna:
1. Signý Stefánsdóttir
2. Andrea Dögg Kjartansdóttir
Nánar / Tjá skoðun  
 03.08.2009
 FIM Motocross 2009 Grand Prix - Round 12 - Lommel, Belgium
Um helgina mættu allir kapparnir aftur til leiks í FIM heismeistaramótið í Motocross í Lommel í Belgíu ! Það er mánuður síðan síðasta keppni hjá þeim var og hefur myndast mikil spenna á þeim tíma um hverjir komi sterkari inn aftur og hverjir ekki. Það var allavega þrusu aksjón í báðum flokkum og gaman að sjá hverjir náðu topp sætunum núna ! Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá keppninni og "highlights" frá hverjum flokki.

Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Belgíu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Belgium !
Nánar / Tjá skoðun  
 30.07.2009
 Jeppaferð í Hveragil
Á mánudaginn ákváðum við Arna Benný að skella okkur í smá jeppatúr inn í Hveragil við Kverkfjöll. Við skelltum því öllu nauðsynlegu drasli út í Wranglerinn og smelltum okkur af stað um hádegið. Það var nú ekki spáð neinni blíðu en okkur var slétt sama um það !

Við brunuðum inn í Herðubreiðarlindir og það var nú frekar grátt og blautt á leiðinni en alltaf jafn gaman að ferðast um landið okkar. Það var t.d. hvítt niður í miðjar hlíðar á Herðubreið og ég veit ekki hvað og hvað. Við fórum svo yfir Jökulsá á Fjöllum og yfir í Krepputungu, inn í Hvannalindir og inn á slóðann inn í Hveragil. Vorum 3 og hálfann tíma á leiðarenda á efra bílaplaninu við Hveragilið. Strax ofan við Hvannalindir var farin að grána jörðin og þegar þarna uppeftir var komið var jörðin bara alhvít og snjókoma ! Í JÚLÍ ! Við ákváðum að tjalda bara strax svo við ættum það ekki eftir um kvöldið, grilluðum okkur pylsur og skelltum okkur svo í hlífðarföt til að ganga niður í gilið.

Fyrir þá sem ekki vita þá er Hveragil sérstakt fyrir þær sakir að áin sem rennur um það er heit og það heit að vel er hægt að baða sig í henni. Í henni myndast líka svakalega flottir hylir sem mynda fínustu potta og í ánni eru ótrúlega flottar kísílmyndanir, algert ævintýraland !

En við lögðum semsagt í hann í göngutúr og einhvernveginn var ég með þá vitleysu í höfðinu að aðal staðurinn í ánni væri mjög ofarlega í gilinu og við lögðum í svakalega fjallgöngu um snarbrattar skriður og vitleysu og kom svo í ljós að staðurinn var í raun bara miklu neðar í gilinu. Við löbbuðum því bara aftur til baka niður gilið og Arna Benný las auðvitað á milli línanna í vitleysunni minni og fann rétta staðinn ! Við skelltum okkur svo niður rosalega flott þvergil sem byrjaði bara rétt við bílaplanið sem Wrangler var á og þaðan gátum við gengið upp að fossinum fræga í ánni þar sem flottustu baðstaðirnir eru. Þannig eftir 7 tíma göngutúr sem hefði ekki þurft að vera meira en 30 mínútur skelltum við okkur á baðfötin og smelltum okkur út í ánna. Ahhh... það var notalegt og við busluðum í fleiri fleiri klukkutíma þarna í ánni, klöngruðumst alveg upp að fossi og skoðuðum alla hyli á leiðinni. Fundum svo alveg fyrirtaks rennibraut í einum fossinum sem við skemmtum okkur konunglega í ! Loks ákváðum við að harka okkur í fötin aftur og löbbuðum upp í bíl. Fengum okkur svo að borða áður en við skriðum upp í rúmið og við rétt náðum að renna svefnpokunum saman áður en við steinsofnuðum !

Við vöknuðum svo ekki fyrr en að verða 1 og höfðum þá sofið alveg fáránlega vært í fína tjaldinu. Eftir smá morgunsnarl gengum við frá öllu saman og nú hafði greinilega hlýnað aðeins svo það var ekki hvít jörð lengur hjá okkur, en frekar blautt og grátt ennþá. Við renndum svo af stað til baka rétt um 3 og héldum niður í Hvannalindir. Við ákváðum svo að fara í þetta skiptið niður í Möðrudal á þá leiðina heim. Við jeppuðumst því eftir þessu ótrúlega landslagi þarna og yfir Kreppu og brunuðum niður í Möðrudal þar sem við stoppuðum á klárlega flottustu bensínstöð á landinu til að pumpa í dekkin ! Síðan brunuðum við bara eftir þjóðveginum heim í Mývatnssveitina sátt með góðan túr !

Ég smellti góðu safni af myndum í myndaalbúm hér á síðuna, endilega kíkið á það á myndasíðunni !

Jonni
Nánar / Tjá skoðun  
 30.07.2009
 Jeppaferð í Hveragil 27-28.07.09

 29.07.2009
 Stefán Gunnarsson landsliðseinvaldur !
Stjórn MSÍ hefur falið Stefáni Gunnarssyni stjónarmanni MSÍ að leiða landslið Íslands í Moto-Cross til keppni á MX of Nations sem að þessu fer fram í byrjun október á Ítalíu.

Stefán Gunnarsson landsliðseinvaldur mun skipa lið Íslands eftir 4. umferð Íslandsmótsins í Moto-Cross sem fram fer í Sólbrekku 8. ágúst.

Stjórn MSÍ mun leggja liðinu til fararstyrk en gera má ráð fyrir að landsliðið haldi til Ítalíu í lok september og verði við æfingar ytra vikuna fyrir keppnina sem fram fer á Ítalíu dagana 3. og 4. október.
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annað sé tekið fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat