 |
 |
26.08.2009 |
| AMA Motocross 2009 - Round 10 - Budds Creek |
Um helgina fór fram 10. umferðin í AMA Motocrossinu og varð margt til tíðinda. Í 250 flokknum var hrikaleg barátta en þó að stigabaráttan sé aðallega á milli Christophe Pourcel og Ryan dungey þá er alltaf spennandi að sjá hvað gerist því það getur hver sem er í þessum flokk sigrað keppni ! Um helgina var það sjálfur Jake Weimer sem sigraði með 2-1 skor en í seinna moto-inu þurfti að rauðflagga áður en keppnin var búin vegna úrhellis rigningar ! Í 450 flokknum er spennan um titilinn búin þar sem að Chad Reed tryggði sér um helgina titilinn þegar hann sigraði með 2-1 skor og það eru enn tvær umferðir eftir !
Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin úr Budds Creek Motocrossinu !
Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Budds Creek! |
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
22.08.2009 |
| Ýmislegt dót til sölu ! |
Er með ýmisskonar grams til sölu, tjékkið hvort ykkur líst á eitthvað ;)
Sólarsella til sölu:
Hef til sölu alvöru sólarsellu sem getur haldið húsbílnum, jeppanum eða öðru vel á floti. Þessi sella er frá Uni-Solar en það fyrirtæki sérhæfir sig í að framleiða sólarsellur úr efni sem þeir kalla Thin-Film, þ.e. það er ekkert gler í sólarsellunni og á hún því að þola hristing og hnjask mun betur heldur en glersellurnar hefðbundnu.
Sólarsellan er 65W en þeir hjá Uni-Solar segja að þessi sólarsella framleiði eins og 75W gler-sólarsella.
Sellan er í álramma og með góðu tengiboxi aftaná, sést ekkert á henni og er alveg í toppstandi.
Málin á henni eru 137cm x 74cm
Góðar upplýsingar um selluna á þessari síðu http://www.electricfence-online.co.uk/shopscr393.html
Verðhugmynd: 60.000 kr.
Skoða öll tilboð !
3 álkassar á toppinn til sölu :
Hef til sölu 3 álkassa á toppinn á bílnum ! Þessir kassar voru allir þrír á Ford Econoline sem við fórum á í heimsreisu hérna um árið.
Einn kassinn er breiður og stuttur og var fremst á toppnum og svo eru hinir tveir svona langir og mjóir og voru sitthvoru megin á toppnum. Kassarnir eru alveg heilir og það er alveg þrusu geymslupláss í þeim.
 Það er örugglega hægt að nota þetta á hina ýmsu bíla, t.d. var frændi minn með þennan breiða og stutta á Patrolnum sínum og reyndist mjög vel !
Verðhugmynd fyrir hvern kassa fyrir sig er 35.000 kr.
Er til í að skoða öll tilboð !
Warn M15000 spil til sölu :
Hef til sölu Warn M15000 spil, alvöru spil sem dregur hvaða bíl sem er upp !
Spilið er í skúffu fyrir tvöfalt prófíltengi en auðvitað hægt að breyta því eins og menn vilja og fjarstýringin fylgir að sjálfsögðu ;)
Verðhugmynd: 150.000 kr.
Til í að skoða öll tilboð !
Ef þið hafið áhuga á einhverju af þessu hafið þá endilega samband ! Jonni Sími: 893-9172 Mail: jonni@jonni.is
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
 |
 |
20.08.2009 |
| Red Bull Romaniacs 2009 - Final Day |
Þá er síðasta deginum lokið í Red Bull Romaniacs 2009 ! Það hefur gengið á ýmsu og sá sem stóð uppi sem sigurvegari í lokin var Þjóðverjinn Andreas Lettenbichler en hann hefur hægt og rólega verið að stíga upp röðina frá degi eitt. Annar varð svo Ný-Sjálendingurinn Chris Birch og þriðji varð Frakkinn Cyril Despres ! Geðveik keppni sem við Íslendingar verðum að fara að koma okkur í !
Video frá síðasta deginum hér:
Day 4 - Final Day
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
19.08.2009 |
| LEX Games 2009 |
29. Ágúst er dagur sem verður tileinkaður mörgum helstu jaðar og Mótorsportum á íslandi.
Þar fær hver grein stutta stund til að vera með keppnir og sýningar og kynna sitt sport fyrir almenning. Þéttpökkuð dagskrá, X-ið sér um hörku tónlist allann daginn. Síðan verður party á Sódóma Reykjavík um kvöldið þar sem Dr. Spock sér um að trilla gengið eftir daginn. 50.000kr verða í verðlaun fyrir hverja keppnisgrein. Dagskráin hefst kl 12.00.
Þarna verða sýningar og keppnir í sportum eins og:
Fjórhjólacross
Þétt ráslína af öflugum fjórhjólum sem keppa um holuskotsverðlaun (sá sem er fyrstur í fyrstu begju) og 50.000 fyrir að sigra.
Krakkakross
Ungir krakkar sem eru á námskeiðum hjá VÍK sýna getu á 65 og 85cc hjólum.
Motocross
Þar eru boðnir efstu einstaklingar í kvenna,unglinga, B- og Open síðan eru um ca 10 boðin sæti. Aðeins 1 umferð. Holuskotverðlaun og 50.000kr fyrir að sigra.
Freestyle
Sýning þar sem nokkrir aðilar sýna stökk listir á Motocrosshjólum.
Drullupyttur á fjórhjólum
Mittisdjúpur pollur með nokrum hliðum útí og stóran stall sem þarf að komast uppá. Bara skemmtun og drulla.
Downhill
Farið niður bratta brekku á svaka Downhill reiðhjólum, sá sem er með besta tímann vinnur. 50.000 kr.
Dirt Jump
BMX hjól fara í stutta braut fulla af stökkpöllum og setja saman bestu atrennuna. 50.000kr í verðlaun
BMX
Nokkrir af færustu BMX hjólamönnum landsins sýna listir sínar.
Trial
Sýning þar sem sýnt er þetta skemmtilega sport á sérgerðum Motorhjólum.
Listflugvélar
Nokkrar flottar listflugvélar verða með flotta flug sýningu.
Rally
Flottir og öflugir 4x4 Rallybílar mætast, einn stendur uppi. 50.000kr í verðlaun.
Rallycross
Góð sýning þar sem öflugir bílar syna rallycross, með öllum látunum.
Torfæra
Öflugir torfærubílar keppast í tímaþraut um hver er fljótastur. 50.000kr í verðlaun.
Allt á einum degi í Motocross brautinni í Jósepsdal, Bolaöldu, hjá Litlu Kaffistofunni á leið til Selfoss ! |
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
19.08.2009 |
| Red Bull Romaniacs 2009 - Day 3 |
Þriðji dagurinn í Red Bull Romaniacs 2009 er búinn og það snérist heldur betur staðan eftir daginn ! En sá sem leiddi keppnina, Spánverjinn Xavier Galindo-Arbones þurfti að hætta keppni vegna þess að hann fótbrotnaði. Ekki nóg með það heldur þurfti sá sem vann keppnina á síðasta ári, bretinn Graham Jarvis þurfti einnig að hætta keppni og var það útaf bilun í hjólinu. Eftir daginn var það því kunnulegt nafn Cyril Despres sem tók forystuna. En það var þó ekki hann sem vann daginn heldur var það bretinn Paul Bolton sem vann en hann er ekki neinn factory rider heldur mætti hann bara með sitt eigið KTM 250 og er heldur betur að sýna takta ! Þetta er alger geðveiki, maður þarf nú aðeins að manna sig upp áður en maður leggur í þetta...
Tjékkið á video-i frá þriðja degi keppninnar hér að neðan ! Svo er líka gaman að skoða síðu keppninnar redbullromaniacs.com en þar eru myndir og fréttir og ýmislegt fleira, mjög flott síða !
Day 3
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
18.08.2009 |
| Red Bull Romaniacs 2009 |
Jahá, þá er allra erfiðasta endúró keppni í heimi farin af stað enn eitt árið ! Red Bull Romaniacs 2009 ! Fyrsti dagurinn er rosalegur en þá fara fram undanrásir eða svokallað "prologue" í svakalega trikkí braut inni í miðbæ Sibiu í Rúmeníu. Það voru hvorki meira né minna en 9000 áhorfendur sem mættu að horfa á kappana enda hrikaleg sjón ! Dagana á eftir þessu eru eknar sérleiðir þar sem mönnum er startað með smá millibili og geta menn þurft að keyra hátt í 200 km á dag í hrikalegum þrautum !
Tjékkið á þessum video-um frá fyrstu dögum keppninnar !
Prologue
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
18.08.2009 |
| Gönguferđ í Stórurđ 09-11.08.09 |
Hér kemur enn ein ferðasagan af okkur Örnu Benný ! En í síðustu viku skelltum við okkur austur á land á Napoleon og gistum fyrstu nóttina við veginn upp í Vatnsskarð sem er á leiðinni yfir á Borgafjörð Eystri. Við komum okkur fyrir á bílaplani þar sem ein af gönguleiðunum inn í Stórurð byrjar. Stórurð er alveg einstakur staður sem er fyrir neðan Dyrfjöll.
Við rumskuðum svo um 11 leytið og tókum því afskaplega rólega. Gláptum á tölvuna og höfðum ofsalega rólegt. Úti var frekar bjart en samt doldið af skýjum. Við fengum okkur svakalega máltíð í svanginn áður en við hófum að pakka niður í göngu-bakpokana okkar. Því jú planið var að skella sér í gönguferð inn í Stórurð. Klukkan var nú að verða 6 þegar við lögðum í hann en þá var líka komið alveg glimrandi veður, glampandi sól og steikjandi blíða. Við ákváðum að labba fyrst upp eftir veginum um 2.5 km upp í Vatnsskarð og labba eftir gönguleið þaðan inn í Stórurð, sú leið er 7.5 km. Eftir um einn og hálfann tíma vorum við komin upp á hæsta punkt á leiðinni á Geldingafjalli og þar var ekkert smá útsýni. Við sáum yfir allt Út-Hérað og svo blasti við okkur norðurhlið Dyrfjalla sem gnæfði yfir þykkri austfjarðaþokunni sem var farin að læðast inn dalina.
Við röltum áfram um fjöllin þarna í átt að Stórurð og þegar við komum fram á brún var komin svakalega þykk þoka yfir urðina. Við bröltum því niður síðustu brekkuna í alveg svartaþoku. Þegar niður var komið sáum við nú móta ágætlega fyrir urðinni og þetta er alveg ótrúlegt ævintýraland. Við gengum í gegnum urðina eftir gönguleið sem fer skemmtilegann hring þarna og fundum okkur alveg fáránlega flottan tjaldstað. Þetta var lítill grasbali sem var inni á milli risa grjóthnullunga alveg við fallega tjörn sem lækur fossaðist niður í ! Við hentum tjaldinu upp og komum okkur alveg hrikalega vel fyrir. Klukkan var farin að nálgast 10 þannig við vorum 3 og hálfann tíma að rölta þessa leið. Myrkrið helltist yfir okkur þegar við hófum eldamennsku á svakalegt ostapasta. Úff það var svo gott að svolgra þessu niður með ísköldu kóki. Við Arna átum bæði alveg ótrúlegan skammt, ætluðum ekki að trúa því ! Við fengum okkur síðan kakó í eftirrétt áður en við skriðum ofaní svefnpokana, slökktum á luktinni og steinsofnuðum þarna í þessari draumaveröld.
Klukkan hringdi okkur af stað um 9 en við þorum ekki orðið annað en að stilla vekjaraklukku í útilegunum okkar þar sem við sofum alltaf eins og klettar í tjaldi Við kúrðum nú samt eitthvað áfram áður en við hörkuðum okkur út ! Það hafði rignt doldið um nóttina svo við vorum ekki alveg að nenna strax af stað. En um 11 fengum við okkur morgunmat og pökkuðum svo öllu dótinu okkar saman og græjuðum bakpokana okkar. Við ákváðum svo að rölta hringinn um Stórurð án bakpokanna svo við smelltum þeim á bakvið einn klettinn og röltum með myndavélina okkar af stað. Það var skýjað en rosa hlýtt og milt veður og nú sáum við vel um urðina og Dyrfjöllin og dyrirn í þeim blasti við fyrir ofan okkur. Það var alveg ævintýralegt að labba þarna um og við misstum okkur í myndatökum og allskonar fíflagangi.
Við skrifuðum svo í gestabókina sem er þarna í urðinni áður en við héldum að bakpokunum. Klukkan var svo að verða 1 þegar við skelltum pokunum á bakið og héldum af stað aðra gönguleið til baka. Sú gönguleið liggur niður eftir dalnum frá Stórurð og kemur beint á bílaplanið sem við höfðum skilið Napoleon eftir á. Sú leið er 7.1 km. Leiðin er frekar blaut á köflum, mýrar og drulla en eftir því sem við gengum neðar í dalinn kom alltaf meiri og meiri blíða og á endanum var komin bongóblíða og við bæði búin að bretta upp skálmarnar og alveg að stikna ! Þetta er ofsalega falleg leið og við skemmtum okkur konunglega. Okkur sóttist nú ferðin frekar vel og klukkan var rétt skriðin yfir 3 þegar við heilsuðum upp á Napoleon kappa á bílaplaninu.
Ahhh... þetta var alveg frábært og veðrið lék við okkur á meðan við gengum frá öllu í bílinn. Við ákváðum að skella okkur í bíltúr yfir á Borgarfjörð Eystri og skoðuðum hið krúttlega Bakkagerði ! Síðan var stefnan tekin inn á Egilsstaði þar sem við ætluðum í sund. Við stoppuðum auðvitað við alsjálfvirka sjálfsalann sem stendur einn og yfirgefinn við veginn í Út-Héraði en helvítið gleypti bara peninginn okkar. Við skelltum okkur svo í sund á Egilsstöðum og skoluðum af okkur skítinn.
Eftir sundið fengum við okkur sveittan kvöldmat í N1 skálanum sem við borðuðum með bestu lyst afturí Napo við brúnna við Jökulsá á meðan við gláptum á tölvuna, hehe...! Á leiðinni yfir öræfin heim var ótrúlegt veður, úrhellis rigning aðra mínútuna og svo glampandi sól og stilla hina ! Ísland í hnotskurn...
Alveg æðisleg ferð, kíkið endilega á myndaalbúmið frá ferðinni á myndasíðunni !
Jonni
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
16.08.2009 |
| AMA Motocross 2009 - Round 9 - Unadilla |
Í gær fór fram 9. umferðin í AMA Motocrossinu. Það var svakalegt Retro þema í gangi enda var keppnin í Unadilla sem er ein af elstu motocross brautunum í Bandaríkjunum. Þeir sem unnu voru greinilega með smá yfirburði því í báðum flokkum vann sami maður bæði hítin. Það verður spennandi að fylgjast með lokasprettinum ! Ég hef úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda í spennuna og horfa á keppnina...!
Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin úr Unadilla Motocrossinu !
Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Unadilla ! |
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
16.08.2009 |
| MXDN - Team Iceland 2009 |
Landsliðseinvaldurinn Stefán Gunnarsson hefur valið landslið Íslands í samráði við stjórn MSÍ til þáttöku á Moto-Cross of Nations sem fer fram á Ítalíu dagana 3. og 4. október.
Eftirfarandi ökumenn keppa fyrir Íslands hönd á MX of Nations 2009:
Aron Ómarsson #66 á Kawasaki 450 KX-F mun keppa í MX-1 flokki með númerið 88, Viktor Guðbergsson #84 á Suzuki 250 RMZ mun keppa í MX-2 flokki með númerið 89 og Gunnlaugur Karlsson #111 á KTM 505 SX-F mun keppa í MX-Open flokki með númerið 90.
Næstu vikur munu fara í undirbúning landsliðsins fyrir keppnina en MSÍ mun styrkja liðið til keppni líkt og undanfarin ár. Mikil kostnaður fellur til við keppnisferðalagið og mun liðið leyta eftir styrktaraðilum til fararinnar. Þeir sem vilja leggja liðinu til styrki eða hjálp við undirbúningin er bent á að hafa samband við Stefán Gunnarsson landsliðseinvald.
Stjórn MSÍ |
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
|
 |