Rakst á þessa snilld á netinu ! Sænska netritið Fastbikes.se og sænska Snowrider tímaritið fengu tvo heimsmeistara þá Emil Öhman úr snocrossinu og Anders Eriksson úr enduroinu til að koma saman á Lynx 600 RS sleðanum og BMW G450X hjólinu og útkljá hvort væri í raun hraðara í snjónum. Þessi tæki eru með mjög svipaða hestafla tölu miðað við þyng svo um var að ræða mjög sanngjarna keppni.
Settar voru 3 þrautir fyrir þá kappana og þrátt fyrir að þetta væri allt í gamni gert þá kom keppnisskapið fljótt í ljós. Fyrsta þrautin var hringur í motocrossbraut sem var þakin djúpum snjó. Þar var Emil og sleðinn augljóslega á heimavelli en Anders og hjólið áttu doldið erfitt. Þegar kom að því að taka tímana var ákveðið til að jafna leikinn að leyfa fljúgandi start, Emil keyrði gríðarlega vel og náði tímanum 1:00.15. En svo þegar Anders rauk af stað kom hann öllum á óvart og keyrði fantavel en tíminn var þó bara 1:08.28 svo sleðinn var sigurvegari í fyrstu þraut.
Önnur þrautin var svo á ís þar sem var búið að ryðja snjónum til og mynda braut. Þar var hjólið á heimavelli á nöglunum og náði heilmiklu gripi en Emil gat nýtt sér ruðningana utan við ísinn og virtist býsna hraður. Þar sem brautin var frekar stutt voru teknir 3 hringir í tímatökunum og fljúgandi start eins og áður. Í fyrstu tímatöku var Anders með mun betri tíma 1:18.09 á móti 1:13.93 hjá Emil. Í næstu tímatöku náði Emil að skafa 2 sekúndur af hjá sér en Anders náði einnig hálfri sekúndu betri tíma. Eftir smá stopp þar sem Anders skipti um dekk og Emil fiktaði eitthvað í sleðanum voru aftur teknir tímar. Þá tókst Emil að ná mun hraðari tíma 1:12.77 en tími Anders var rétt aðeins betri 1:12.46. Í síðustu tímatökunni var keyrður öfugur hringur en það var Anders sem hélt yfirhöndinni áfram með tímann 1:10.96 á móti 1:12.13 hjá Emil. Þannig það var ljóst að Anders og hjólið væru sigurvegarar í annarri þraut.
Þriðja og síðasta þrautin var svo spyrna þar sem þeir voru hlið við hlið Anders á ís og Emil í snjó. Þeir spyrntu mörgum sinnum og það var ekki hægt að sjá mikinn mun, Emil vann nokkrar og Anders vann nokkrar. Allt virtist koma niður á fyrstu metrunum, ef annar náði forskoti í byrjun var enn sami munur eftir 100m. Að lokum var ákveðið að þetta væri jafntefli.
Niðrustöðurnar voru svo að um jafntefli væri að ræða í þrautunum og greinilegt að í dýpri snjó var sleðinn með yfirburði, á ísnum var hjólið hraðara og í spyrnunni voru tækin mjög jöfn. Kemur manni kannski ekki mjög á óvart en gaman að þessu og geggjað tækifæri til að fá tvo heimsmeistara saman að leika sér og ná flottum myndum.
Þið getið svo kíkt á þetta video sem var sett saman frá einvíginu:
Method Magazine sem eins og þið öll ættuð að vita er eitt stærsta brettablaðið í bransanum tók nýlega viðtal við einn af okkar helstu snjóbretta brjálæðingum, Halldór Helgason. Þrátt fyrir ungan aldur er Halldór kominn mjög ofarlega í sportinu og hver veit hvert ferðinni er heitið í framtíðinni...
Já það er nú ljóst að sænska snocross hetjan Emil Öhman er á leið yfir hafið til að keppa í ISOC snocross seríunni í USA ! Þetta er náttúrulega alger snilld því eins og við Íslendingar ættum að þekkja til þá er kappinn alveg fáránlega hraður og verður hrikalega spennandi að sjá hvernig hann tekur á könunum !
Hér er tilkynning sem er á síðunni hans www.emilohman.com, lauslega þýdd yfir á engilsaxneskuna:
It is now official. In winter, I will find myself in Minnesota USA to debut in the U.S. ISOC series.
As many speculated it is the Warnert racing team and Ski doo that I will be going on, I will run Pro Stock and Pro Open. This is a two year contract starting at Nov 1, 2009.
November 2, I will step onboard the airplane that will take me to USA for my next life adventure, perhaps? I have long thought about competing in the U.S. but first I wanted to collect a routine and establish myself here in Europe.
But given the large step to take now after my contract with Lynx went out. I feel ready for the challenge and I hope I can make us Swedish proude! Of course, I will come home for final competitions of World Cup and Stadium Cross races. The winter is closer than you think, it's only 47 days until i make my debut in Duluth with starting number 27 and XPS as the main sponsor.
Núna um helgina fór fram 5. umferðin í EndoCross seríunni 2009 ! Ég vona fyrir ykkar hönd að þið séuð búin að fylgjast með þessu en annars er ég búinn að pósta öllum keppnunum á undan hérna í síðustu frétt ! Þetta er svo fáránlega spennandi og skemmtilegt að horfa á þetta ! Hinn ótrúlegi KTM ökumaður Taddy Blazusiak vann fyrstu 3 keppnirnar en nú síðast var það Geoff Aaron sem hélt ofurmenninu fyrir aftan sig og sigraði, hver ætli taki þetta núna ?
Núna er bara ein umferð eftir og er hún þann 21. Nóvember í Las Vegas. Þar verður sennilega öllu flaggað og krýndur meistari árið 2009 !
Hér eru video frá öllum umferðum sem eru búnar í EnduroCross, djöfull er þetta skemmtilegt sport ! Það væri ekki leiðinlegt að geta haldi svona á klakanum, ægileg spenna og alltaf eitthvað að gerast en samt á ótrúlega litlum hraða, hehe !
Já það er ný Turnagain Hardcore mynd á leiðinni og er það sú 8. í röðinni ! Ef marka má trailerinn frá þeim þá er þetta eitthvað sem maður verður að sjá ! Tjékkið á þessum...
Hér eru myndir af 2010 sleðunum, það eru svosum engar stórvægilegar breytingar ! En þeir berjast þó alltaf við að betrumbæta eitthvað, hjá flestum eru stærstu breytingarnar nýjir demparar og svo er eitthvað svona smávægilegt !
Jæja, þetta er hræðilegt ! Hér hefur ekkert verið í gangi í alltof langan tíma ! En það voru einhverjar tilfæringar í gangi hjá þeim sem hýsa síðuna og hún var alveg í ruglinu í tvær vikur ! Þetta er loksins komið í lag og nú tökum við á því !
Það er allt að gerast, veturinn er að nálgast ! Snjórinn fer að mæta ! Nýjar sleða, snjóbretta, skíða og mx-myndir eru að koma út og alveg nóg af gleðiefni !
Ég er að hugsa um að láta loks breyta "comment-a" kerfinu hér svo að það verði þæginlegra og aðgengilegra, en ef ég geri það þá verðiði að lofa að láta ykkar ljós skína ! Díll ?
Jæja þá er MX of Nations yfirstaðið og það voru Bandaríkjamennirnir sem hirtu sína 20. dollu í sögu MXON ! Á eftir þeim urðu Frakkar og í þriðja voru Belgar. Þjóðverjar og Bretar voru svo næstir á undan Ítölum sem áttu góðan möguleika á sigri en allt fór í vaskinn með svakalegu krassi í byrjun síðasta moto-sins !
Íslendingar stóðu sig með prýði og náðu sínum besta árangri til þessa og enduðum í 30. sæti ! Aron, Gulli og Viktor voru að keyra þrælvel og stóðu fyrir sínu. Gamli var allavega nokkuð sáttu með þá ;)