 |
 |
29.11.2009 |
| Gladiator Games 2009 - Prague - Czech Republik |
Svokallaðir Gladiator Games eru í fullum gangi í Prag í Tjékklandi og er þetta svakaleg Freestyle MX veisla ! Það er greinilegt að það er allt að gerast þarna en nú þegar er Chuck Carrothers búinn að backflippa Harley Davidson hjóli og svo er búið að lenda tvímenntu backflippi í fyrsta skiptið !
Tjékkið á þessu...
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
25.11.2009 |
| Endurokross í Reiđhöllinni 5. des - Í fyrsta skipti á Íslandi |
Tekið af www.motocross.is:
Nítró og Vélhjólaíþróttaklúbburinn bjóða til mótorsportveislu laugardaginn 5. desember í Reiðhöllinni í Víðidal. Þetta er fyrsta skipti á Íslandi sem keppt verður innanhúss í Endurokrossi þar sem hver hindrun verður áskorun!
Skemmtun fyrir áhorfendur og pressa á keppendur.
Nokkrir velkunnir reynsluboltar í sportinu hafa lagt fram krafta sína í hönnun á braut sem getur flokkast undir fjölbreytta eðalblöndu af enduro, trial og mótorcrossi. Keppendur geta því átt von á alls kyns spennandi hindrunum; staurabreiðum, stórgrýti, hleðslusteinahrúgum, risadekkjum, kubbagryfjum, vatnstjörn og mörgu fleira.
Hörð og spennandi keppni
Allir bestu torfæruhjólaökumenn landsins munu væntanlega mæta til keppni hungraðir að ná titli í þessari fyrstu keppni en áform erum að halda samtals þrjár svona keppnir í vetur ef vel tekst til með þá fyrstu. Keppt verður í riðlum og komast fyrstu menn í hverjum riðli áfram í lokariðillinn þar sem allt verður lagt undir. Búast má við harðri keppni og mikilli skemmtun enda verða áhorfendur mjög nálægt brautinni og hjólunum og ættu því nánast að finna fyrir átökunum á eigin skinni.
Glæsileg verðlaun
Sigurvegara keppninnar vera verðlaunaðir með glæsilegum verðlaunum bæði í formi og góðra gripa og peningaverðlauna en öll keppnisgjöld renna óskipt til þeirra sem keppa í lokariðlinum.
Endurokrosskeppnir af þessu tagi njóta mikilla vinsælda í Evrópu og Bandaríkjunum. Veðrið spillir oft fyrir keppnishaldi hér á landi og því hafa ekki skapast tækifæri áður til halda keppni af þessu tagi á Íslandi. Með samkomulagi við forráðamenn Reiðhallarinnar er þessi keppni að verða að veruleika og við erum mjög bjartsýnir á keppnin heppnist vel.
Öllum sölu og þjónustuaðilum býðst ennfremur að vera með kynningu á vörum og þjónustu í anddyri Reiðhallarinnar þannig að það verður margt á sjá í húsinu þennan dag.
Takið laugardaginn 5. desember frá – þið viljið ekki missa af þessum viðburði!
Skráning keppenda hefst fljótlega hér á vefnum, takmarkaður fjöldi kemst í keppnina og keppnisstjórn áskilur sér rétt til að velja og hafna keppendum. |
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
22.11.2009 |
| Endurocross - Round 6 - Las Vegas |
Um helgina fór fram lokaumferðin í Endurocrossinu í USA ! Þrátt fyrir að Taddy Blazusiak væri nánast búinn að tryggja sér titilinn þá þurfti hann samt að mæta og ljúka keppni en svo var auðvitað mikil spenna um hver myndi sigra síðustu keppnina !
En hér er video frá síðustu keppninni, tjékkið á þessari geðveiki...
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
 |
|
|
 |
 |
10.11.2009 |
| Kraftur 2009 - Reiđhöllin Svađastađir |
Útivistar- og sportsýningin Kraftur 2009 verður í Reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók laugardaginn 14. nóvember frá kl. 10-18. Til sýnis verða jeppar, mótorhjól og snjósleðar, byssur og bogar, kajakar og skúta að ógleymdum tækjum og tólum björgunarsveitanna.
Aðgangseyrir kr. 1000 fyrir 12 ára og eldri – frítt fyrir yngri en 12 ára.
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
08.11.2009 |
| Paris Rosen 88ft frontflip ! |
Þann 30. okt tókst Paris Rosen að lenda lengsta frontflip-i í heimi, þar með sannaði hann að hann átti alveg sitt sæti á X-Games í sumar skilið en þar ætlaði hann að lenda frontflip-inu en mistókst ! Tjékkið á videoinu, þetta er doldið töff !
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
 |
|
|
 |
 |
30.10.2009 |
| Gotland Grand National 2009 - Á morgun !!! |
Eins og allir alvöru áhugamenn um enduro ættu að vita fer stærsta endurokeppni heims fram á ári hverju á eyjunni Gotland við strendur Svíþjóðar og verður hún ræst í fyrramálið. Þessi keppni er alveg ótrúlega skemmtileg en við pabbi fórum þarna fyrir 2 árum og ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel. Hrikaleg rigning og drulla og bara himnaríki ! Pabbi fór svo bara einn í fyrra og stóð sig hrikalega vel !
Í ár eigum við Íslendingar tvo keppendur og eru það hvorki meira né minna en hún móðir mín í tilefni af fertugsafmælinu sínu og pabbi með henni ! Mamma verður í kvennaflokki á KTM 250 fjórstrók og pabbi gamli er á splunkunýju 2010 GasGas 300 tvístrók, já það eru sko alvöru græjur sem eru látin undir þau. Öllu reddað af hinum mikla öðlingi og vini okkar Marcus Olsen !
Það hafa aldrei verið jafn margir skráðir í keppnina eins og nú eða alls 2406 keppendur ! Bara í pabba flokki sem heitir Motion 40-49 år eru alls 624 keppendur ! Þannig að í fyrramálið munu þau þeysast af stað eftir skothvell úr skriðdreka og reyna að sigra drulluna, tréræturnar, kalksteinsklappirnar, drullupollana og eitt er víst að það verður ekkert nema brosið á þeim eftirá !
Svona gæti þetta litið út i morgen...
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
|
 |