08.01.2010
 Leiktćkjahátíđ í Ellingsen
Nánar / Tjá skoðun  
 07.01.2010
 Monster World Rally Team - Ken Block
Ken Block tilkynnti í gær að í samstarfi við Monster orkudrykkinn og Ford bílaframleiðandann mun hann keppa á næsta ári í WRC (World Rally Championship) og er það í fyrsta skiptið sem Ameríkani mun ætla að keppa með lið í WRC til nokkurra ára. Samhliða þessu ætlar Block að halda áfram að keppa í Rally America með hjálp frá sömu aðilum. Block mun keppa á nýjum Ford Escort í Rally America og í WRC mun hann keyra á Ford Focus RS. Tjékkið á flottri heimasíðu hjá liðinu www.monsterworldrallyteam.com og svo er hér smá kynningarmyndband fyrir neðan !

Nánar / Tjá skoðun  
 06.01.2010
 Ask me a question međ J-Law og Grant Langston
Snilldar klippa frá TWMX þar sem Jason Lawrence nýsloppinn úr fangelsinu og kappinn Grant Langston spyrja hvorn annan spurningar, frekar fyndið...

Nánar / Tjá skoðun  
 06.01.2010
 Ţáttur um Endurokrossiđ á RÚV í gćr
Í gær var sýndur þáttur á RÚV um Endurokross mótið sem fór fram í Reiðhöllinni í Víðidal 5. des síðastliðinn ! Flottur þáttur hjá Magga og co og á örugglega eftir að trekkja enn fleiri áhorfendur á næstu keppni ! Fyrir þá sem misstu af honum eins og ég þá er hægt að skoða hann á vefsíðu RÚV, beinn tengill á þáttinn er hér !

Nánar / Tjá skoðun  
 04.01.2010
 Preview af Supercross brautinni í Anaheim keppninni um nćstu helgi !
Nánar / Tjá skoðun  
 01.01.2010
 Red Bull: New Year. No Limits - Travis Pastrana
Travis Pastrana tókst heldur betur að ná markmiði sínu í nótt þegar hann flaug bílnum sínum fram af bryggjunni í Long Beach í Californiu ! Hann negldi Subaru Imprezunni sinni á rúmlega 90 mílna hraða eða 150 km hraða fram af sérsmíðuðum stökkpalli og yfir sjóinn út á flotprama þar sem hann lenti nákvæmlega 269 fetum síðar eða 82 metrum ! Hann lenti fullkomlega en svo var pramminn eitthvað sleipur sem gerði honum erfitt fyrir að bremsa og hann slammaði hliðinni inn í dekkjahrúgu í endanum, það var svosum ekki mikið mál fyrir Travis sem hljóp af stað upp lendinguna og backflippaði sér svo út í sjó ! Hann sagði að þetta hefði ekki getað verið fullkomnara nema þá að co-arinn hans hefði verið með og kallaði hann kellingu fyrir að þora ekki ! Hahaha, þvílík snilld að negla nýja árið inn með svona uppátæki ! Tjékkið á videoi af öllusaman hér að neðan !

Nánar / Tjá skoðun  
 01.01.2010
 Gleđilegt nýtt ár !
Nánar / Tjá skoðun  
 30.12.2009
 Sleđaferđ í Lofthelli 29.12.09
Í gær skellti ég Lynx tuggunni í gang og fór í smá sleðatúr og var stefnt út í Lofhelli sem er í Búrfellshrauninu austan við Mývatn, með í för voru Arna Benný, Góli frændi, Maggý frænka og Gummi Birgis og vorum við á þrem sleðum. Snjóalögin eru ekki mjög traust því þetta er þvílíkt púður sem svíkur ! Við fórum því afskaplega varlega, sem var ágætt þar sem það var nístíngskuldi og sumir fengu meira að segja kalbletti í kinnar og alles ! Það er alltaf jafn gaman að koma í Lofthelli, þetta er svo mikið ævintýraland ! Við smelltum af nokkrum myndum, nokkrar fínar hér að neðan en annars setti ég þær allar í albúm hérna á síðuna ! Tjékkið á þeim á myndasíðunni eða hér !

   
Þið getið smellt á myndirnar til að stækka eða kíkt í albúmið hér !
Nánar / Tjá skoðun  
 28.12.2009
 Johnny Greaves setur heimsmet međ 300 feta stökki á Off-Road Trukki
Off-Road meistarinn Johnny Greaves tók sig til með hjálp supercross kóngsins Jeremy McGrath og stökk á 800 hestafla afturhjóladrifna trukknum sínum 301 fet eða rétt tæpa 92 metra ! Það var semsagt á búgarði McGrath sem með hjálp Monster Energy var búinn til pallur þar sem Johnny Greaves stefndi trukknum sínum á 105 mílna hraða eða 169 km hraða á pallinn og bætti gamla heimsmetið um meira en 100 fet en gamla metið var 193 fet ! Alveg magnað, tjékkið á videoinu !

Nánar / Tjá skoðun  
 27.12.2009
 Síđasta ćfingarstökkiđ hjá Travis Pastrana fyrir nýárs...
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat