12.01.2010
 AMA Supercross 2010 - Round 1 - Anaheim 1
Það var engin smá spenna í loftinu í Anaheim um helgina þegar fyrsta umferðin í AMA Supercrossinu fór fram árið 2010 ! Ég er búinn að forðast allar mögulegar síður á netinu til að sjá ekki úrslitin þangað til ég gat horft á keppnina. Loksins í kvöld var safnast saman í sófanum og rúllað af stað og ég get sagt ykkur sem eigið eftir að sjá þetta að þetta er alveg stútfullur pakki af keppnisspennu í topp klassa. Öll helstu nöfnin komu og sýndu sitt, James Stewart, Chad Reed, Ryan Villopoto, Ryan Dungey, Andrew Short, Kevin Windham og hver haldiði að hafi labbað út með 25 stig í vasanum ? Í litla flokknum var spennan ekki síðri, þar voru mættir allir kapparnir, Trey Canard, Jake Weimer, Ryan Morais, Josh Hansen og fleiri til að sjá og sigra, hvernig fór ? Þið ráðið hvort þið kíkið á það hér að neðan eða bíðið þar til þið sjáið það með ykkar berum...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Anaheim 1 supercrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Anaheim 1 !
Nánar / Tjá skoðun  
 10.01.2010
 Torrent frá Anaheim 1 Supercross
Loksins loksins loksins ! Helvítis Pirate Bay er búinn að liggja niðri og ég er búinn að vera að bilast að bíða eftir supercrossinu í allan dag en núna rétt í þessu fann ég loks link þar sem félagi vor "Slicknick" hefur sent inn torrent, þvílíkur guð þessi náungi sem færði okkur allt síðasta SX tímabil á netið ! Smellið á linkinn hér að neðan til að fara á torrent síðuna !

AMA Supercross 2010 - Live 450 & 250
http://www.torrentbox.com/torrent_details?id=739857
Nánar / Tjá skoðun  
 10.01.2010
 ISOC Snocross 2009-2010 - Round 3 - Rio Tinto
Um helgina fór fram 3. umferðin í ISOC Snocrossinu í USA og nú um helgina var keppt í Rio Tinto Stadium í Sandy, Utah ! Það var greinilega mikið af áhorfendum sem komu sér fyrir við þessa flottu braut og létu ekki lítið heyra í sér ! Tucker Hibbert byrjaði kvöldið á að taka holuskotið og sigra Pro Super Stock örugglega en á eftir honum voru Tim Trembley og Dan Ebert ! Þegar Pro Open skaust af stað var það Ross Martin sem tók holuskotið en Tim Tremblay komst fljótlega framúr honum, Tucker Hibbert kom út úr startinu í þriðja og gekk ekki vel að nálgast hina keyrarana, svo gerðist það sem gerist sjaldan að Hibbert krassaði ! Það var því Tim Tremblay sem sigraði með flottum akstri í Pro Open, Ross Martin varð annar og Robbie Malinoski endaði þriðji ! Nánari fréttir og úrslit á síðu ISOC !


Myndir frá ISOC

Pro Super Stock - Úrslit
1 Tucker Hibbert 68 Arctic Cat
2 Tim Tremblay 11 Ski-Doo
3 Dan Ebert 60 Arctic Cat
4 Zach Pattyn 99 Arctic Cat
5 Ross Martin 837 Polaris
6 Levi LaVallee 108 Polaris
7 Garth Kaufman 48 Arctic Cat
8 Steve Taylor 2 Ski-Doo
9 Robbie Malinoski 4 Polaris
10 Andrew Johnstad 255 Polaris

Pro Open - Úrslit
1 Tim Tremblay 11 Ski-Doo
2 Ross Martin 837 Polaris
3 Robbie Malinoski 4 Polaris
4 Cory Davis 160 Arctic Cat
5 Garth Kaufman 48 Arctic Cat
6 Dan Ebert 60 Arctic Cat
7 Tucker Hibbert 68 Arctic Cat
8 Ryan Simons 67 Arctic Cat
9 Zach Pattyn 99 Arctic Cat
10 Steve Taylor 2 Ski-Doo
Nánar / Tjá skoðun  
 10.01.2010
 Fréttin af Stöđ 2 komin á Youtube
Ég vill þakka þeim sem tók sér tíma í að senda fréttina frá Stöð 2 á Youtube ! Nú geta allir séð þessa snilld !

Nánar / Tjá skoðun  
 09.01.2010
 Met heimsóknarfjöldi í gćr á síđuna !
Í kjölfarið á öllum auglýsingunum í kringum stökkið í dag fyrir Ellingsen þá hefur fólk greinilega verið duglegt að kíkja á síðuna en í gær voru hvorki meira né minna en 496 heimsóknir yfir daginn ! Vona að fólk haldi bara áfram að kíkja hérna inn reglulega og ekki verra að skilja eftir sig "comment" ef ykkur finnst bloggið áhugavert !

Takk fyrir þetta öllsömul !
Nánar / Tjá skoðun  
 09.01.2010
 AMA Supercrossiđ 2010 fer af stađ í kvöld í USA
Maður er orðinn svo spenntur fyrir þessu tímabili miðað við hvað síðasta tímabil í Supercrossinu var alveg fáránlega skemmtilegt og hélt manni límdum við skjáinn helgi eftir helgi ! Þetta verður forvitnilegt að sjá ! Hér eru nokkrar myndir af þremur helstu köppunum að ég tel ! Samt aldrei að vita hvernig fer ! Hvað haldið þið ?


Ég mun pósta link á torrent á keppnina um leið og það kemur á netið !
Nánar / Tjá skoðun  
 09.01.2010
 Live útsending frá ISOC Snocrossinu í Roi Tinto, Utah !
Í dag fer fram 3. umferðin í ISOC Snocrossinu í USA og auðvitað er bein útsending á netinu af öllu saman ! Það er þétt pökkuð dagskrá í allan dag en Final-in og LCQ í stóru flokkunum fara í gang klukkan 2 í nótt ! Mæli með að menn kíki á þetta, það er snilld að sjá askjónið sem er í gangi þarna !

Nánar / Tjá skoðun  
 09.01.2010
 Stökkiđ búiđ og tókst vel !
Jííííhaaa ! Á slaginu tvö þá negldi ég af stað á Lynx kvikindinu á rampinn og flaug yfir flóðgarðana fyrir framan ótrúlegan fjölda af fólki, geðveikt gaman að sjá alla mæta ! Ég lenti svo í sjónum og var lendingin aðeins harkalegri en ég bjóst við en ég stóð sleðann og náði að fleyta áfram um 6m áður en mótorinn gafst upp á sleðanum og hann drap á sér og sökk ! Björgunarsveitarmenn frá Ársæli voru mættir um hæl og drógu mig upp í bátinn og skutluðu mér í land við mikinn fögnuð áhorfenda ! Geðveiiiikt !!!

Allir helstu fjölmiðlar voru á svæðinu og er strax búið að birta grein um þetta á www.mbl.is !


Mynd frá www.mbl.is

Síðan fóru kafarar í það að finna sleðann og koma honum á flot og í land þar sem kranabíll hífði hann upp ! Heyrist mér að fjöldi manna hafi boðið í sleðann og er þetta greinilega nýjasta sölutrikkið í bransanum !

Svo er bara að fylgjast með fréttunum en þetta verður víst sýnt í fréttunum á bæði RÚV og Stöð 2 ! Ég mun pósta videoi af atburðinum um leið og ég get !

Takk fyrir að mæta allir !

Kv. Jonni
Nánar / Tjá skoðun  
 08.01.2010
 Rampurinn fćddur og bara spenna framundan !
Jæja, í dag var ég með fríðu föruneyti að smíða rampinn sem ég ætla að stökkva á nákvæmlega klukkan 2 á morgun ! Ég tók tvær myndir af þessu á símann minn, ekki bestu gæðin en gefa góða hugmynd, ein í dag þegar smíðarnar voru í gangi og hin þegar hann var fullklár og gamla sleða kvikindið orðið uppstillt og fínt !

 
 

Allir að mæta á morgun, stundvíslega ! Stökkið verður klukkan 14.00 !
Nánar / Tjá skoðun  
 08.01.2010
 Hvađ ćtli gerist ?
Ætli þetta fari svona hjá mér á morgun ? Vona ekki en alltaf gaman ef fólk fær að hlæja ekki satt ?

Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat