Það var sko geðveik keppni sem fór fram um helgina í Anaheim í öðru stoppinu þar á tímabilinu ! Ef þið eruð ekki búin að sjá þessa keppni þá mæli ég sterklega með að nælið ykku í hana. Til að mynda hef ég bara sjaldan séð jafn ljótt krass og í undanhítunum hjá litla flokknum og keppnis spennan var svo alveg að fara með mann ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
1. umferðin í Íslandsmótaröð MSÍ í Ís-Cross fer fram laugardaginn 30. janúar. Keppnisstaður fyrir 1. umferð verður Ólafsfjörður en ef veðurguðirnar verða okkur hagstæðir verður keppnin færð á Mývatn þar sem er mjög góður og traustur ís.
Skráning hefur verið opnuð hér á síðunni og stendur til miðnættis á þriðjudagskvöld samkvæmt venju. Engar skráningar eru heimilar eftir það og er keppendum bent á að skrá sig tímanlega.
Um helgina fór fram 4. umferðin í ISOC Snocrossinu í USA og þar var heldur betur barist ! Brautin var hrikalega gróf og keppendur fengu margir að kenna á því ! Kóngurinn sjálfur Tucker Hibbert tókst þrátt fyrir ótrúlega átaka keyrslu þar sem hann var á tímum hangandi með lappirnar út í loftið að landa sigri í báðum Pro flokkunum ! Þvílíkur akstur ! Í Pro Super Stock voru á eftir Tucker þeir Dan Ebert og svo Brett Bender ! Í Pro Open voru á eftir Tucker þeir Ross Martin og Tim Tremblay ! Nánari fréttir og úrslit á síðu ISOC !
Var að fá þennan grip upp í hendurnar í skiptum. Þetta er Honda CRF 150cc fjórgengis árgerð 2008, þetta er semsagt fjórgengishjól sem keppir í sama flokki og 85cc tvígengis. Þetta hjól er alveg eins og nýtt, er búið að keyra það innan við 10 tíma. Það var stelpa sem átti það en hafði svo ekki not fyrir það lengur. Það er komið með flott Renthal stýri en annars allt original, meira að segja upprunalegu dekkinn, sem segja nú mikið um það hvað það er lítið notað.
Frábært hjól fyrir strákinn, stelpuna eða jafnvel byrjandahjól fyrir konuna !
Vá, ég er búinn að vera að horfa á Salomon Freeski TV þættina frá byrjun og rakst á þetta ! Þetta er eitt það allra ógeðslegasta yfirstökk sem ég hef séð, að hugsa sér að maðurinn sé bara enn á lífi...
Það er greinilegt að þetta tímabil í supercrossinu verður ekki minna spennandi en það síðasta ef miða má við keppni helgarinnar ! Hvet alla sem eru ekki búnir að horfa á hana að næla sér í þetta úrvals sjónvarpsefni og þá er ég ekki bara að tala um stóra flokkinn þvi spennan í lites er ekki minni ! Ég ætla ekki að segja meira í bili og eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
Öss, ég var að taka eftir því núna að á laugardaginn síðasta var heimsóknarmetið rækilega slegið en það er greinilegt að allmargir hafa lagt leið sína hingað á síðuna fyrir stökkið eða eftir það ! Á laugardaginn smelltu sér semsagt 967 manns hingað inn, sem er alger snilld !
Takk fyrir að kíkja, endilega haldið því áfram !
Kv. Jonni