Winter X Games 14 eru á fullu þessa stundina og dagur 2 er búinn með þvílíkum látum ! Þau úrslit sem fóru fram í gær voru í Womens Ski SuperPipe, Snowmobile Best Trick, Ski Big Air og Snowboard SuperPipe ! Fyrir neðan eru video af öllum sigurvegurunum frá því í gær og það er vel þess virði að tjékk á þessu !
En fyrst skulum við sjá aðalatriðin frá degi 2 á Winter X Games 14 !
Winter X Games 14 - Day 2 Highlights
Winter X Games 14 - Womens Ski SuperPipe Gold - Jen Hudak
Winter X Games 14 - Snowmobile Best Trick Gold - Heath Frisby
Winter X Games 14 - Ski Big Air Gold - Bobby Brown
Winter X Games 14 - Snowboard SuperPipe Gold - Shaun White
VÍK mun halda aðra keppni í endurocrossi innanhús í Reiðhöllinni 14 febrúar næst komandi. Eins og bæði keppendur og áhorfendur upplifðu síðast, að þá var þetta hörkuspennandi keppni og afar skemmtileg. Reyndi hún meira á keppendur en þeir gerðu ráð fyrir og voru margir hreinlega búnir á því. VÍK mun auglýsa skráningu síðar á vef motocross.is þegar nær dregur og ætti það ekki að fara framhjá neinum. VÍK mun halda þessa keppni í samvinnu við Nitró, eins og síðast, enda tókst keppnin afskaplega vel.
Winter X Games 14 eru farnir af stað og fyrsti dagurinn er búinn og viti menn þar var ýmislegt að sjá ! Þvílík veisla sem þetta er og það er bara meira og betra framundan ! Þau úrslit sem fóru fram í gær voru í Snowmobile Freestyle og í Womens Ski Slopestyle ! Þar var allt að gerast sem þið getið séð í úrslita-videounum hér að neðan !
En fyrst skulum við sjá aðalatriðin frá degi 1 á Winter X Games 14 !
Winter X Games 14 - Day 1 Highlights
Winter X Games 14 - Snowmobile Freestyle Gold - Justin Hoyer
Winter X Games 14 - Womens Ski Slopestyle Gold - Kaya Turski
Þeir bræður ætla aldeilis að koma með trompi inn í snjóbrettaheiminn, en eins og þið flest vitið var Eiki Helgason valinn "Rookie of the year 2009" en nú er Halldór litli bróðir Eika búinn að feta í fótspor hans og var valinn "Rookie of the year 2010" ! Kemur svosum ekki á óvart þar sem hann er búinn að eiga parta í öllum stærstu snjóbrettamyndum ársins og er búinn að vinna helling af mótum, gekk vel í Dew Tour og er kominn inn á X-Games ásamt Eika reyndar líka ! Tjékkið á greininni frá Snowboarder Mag hérna, þar má meðal annars sjá partinn hans í einni stærstu mynd ársins "Black Winter" !
1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram á Mývatni laugardaginn 30. janúar. Vegna þess hversu mikil óvissa hefur verið með mótsstað vegna óhagstæðs veðurfars hefur verið ákveðið að framlengja skráningu um 24 tíma og stendur hún til miðnættis miðvikudaginn 27. janúar.
Rúmlega 20 keppendur eru skráðir til leiks og vonandi sjáum við bætast í hópinn áður en skráningu líkur. Samkvæmt reglum MSÍ þurfa að vera minnst 5 keppendur í flokk þannig að hann telji til Íslandsmeistara og að veitt séu verðlaun í viðkomandi flokk. Nú er um að gera að hnippa á félagana og drýfa þá með sér í keppni. Í samtali við Stefán Baðvörð á Mývatni í gær fullyrti hann að ísinn hefur sjaldan verið eins flottur, spegil sléttur og veðurspáinn hreint frábær fyrir laugardaginn.
Myndbandið segir allt sem segja þarf ! Hrikalega er nýji Ford-inn flottur hjá honum ! Það verður gaman að sjá hvernig honum gengur í sumar í Rally America og WRC, svo auðvitað X-Games líka !
Það fór aðeins framhjá fréttunum um daginn þegar Johnny Greaves setti heimsmet þegar hann stökk á Off-Road trukknum sínum yfir 300 fet heima hjá Jeremy McGrath að á sama tíma á sama palli stökk Ryan Capes lengdarstökks ofurhugi líka og setti annað heimsmet. Hann þrumaði 500cc tvígengis Kawasaki hjólinu sínu á tæplega 100 mílna hraða og stökk 290 fet og setti þar með heimsmet í "dirt-to-dirt" stökki eða frá moldar stökki að moldar lendingu ! Ryan Capes er með seríu af svakalegum stökkum planaða fyrir 2010 í samstarfi við Monster orkudrykkinn, svo maður verður að fylgjast með ! En þetta er eitthvað sem þið verðið að skoða !