01.02.2010
 Torrent frá San Francisco Supercross
Torrent á báða flokkana í supercrossinu í San Francisco um helgina ! Bölvaður Slicknick er að baxa við að gera torrentin í HD svo við verðum bara lengur að downloada, alger óþarfi að mínu mati ! 450 flokkurinn er frá einhverjum öðrum því hann er ekki kominn með hann inn...

AMA Supercross 2010 - Round 4 - San Francisco - 250 Class
http://thepiratebay.org/torrent/5326450/

AMA Supercross 2010 - Round 4 -
San Francisco - 450 Class
http://thepiratebay.org/torrents/5325446/
Nánar / Tjá skoðun  
 01.02.2010
 Red Bull X-Fighters 2010 - Tour Schedule Announced
Í síðustu viku var gefin út dagskráin fyrir Red Bull X-Fighters túrinn 2010 og þar eru nýjir áhugaverðir staðir sem eiga vafalaust eftir að efla áhugann á Freestyle Motocross í heiminum enn meira !


2009 var ekki slæmt ár í Red Bull X-Fighters seríunni !

Red Bull X-Fighters 2010 - Tour Schedule
April 16th - Mexico City, Mexico
May 14th - Giza, Egypt
June 26th - Moscow, Russia
July 22nd/23rd - Madrid, Spain
August 14th - London, England
October 1st - Rome, Italy

Helstu breytingarnar sem hafa verið gerðar á keppninni eru þær að nú eru ekki bara boðið þeim sem dómnefndin telur að eigi að fá keppnisrétt heldur verða haldnar undanrásir fyrir hverja keppni þar sem keppendur þurfa að vinna sig inn í hverja keppni fyrir sig ! 6 efstu keppendurnir frá síðustu keppni eiga þó örugg sæti !

Þetta stefnir bara í annað geggjað tímabil !
Nánar / Tjá skoðun  
 01.02.2010
 Myndir frá Ískrossinu um helgina !
Feðgarnir Halli og Halli mættu auðvitað í sveitina um helgina á Ískrossið ! Halli yngri var í algerum sérflokki í 85 flokknum og veitti mér harða keppni í Standard flokknum sem var geggjað ! En Halli eldri stóð sveittur á hliðarlínunni og smellti af myndum sem er hægt að skoða í vefalbúminu á www.motocross.is eða með því að smella hér !


Myndir úr vefalbúmi www.motocross.is
Nánar / Tjá skoðun  
 01.02.2010
 Winter X Games 14 - Myndir frá Íslendingunum úti - Team Burandt !
Var að fá fréttir rétt í þessu af "Team Burandt" eins og þeir kalla sig núna Íslendingarnir sem eru á Winter X Games og eru á leið í ævintýri með Chris Burandt næstu vikuna ! Eins og við var að búast fannst þeim leikarnir alveg klikkaðir og sendu mér nokkrar myndir sem eru hér fyrir neðan !

Hérna er smá lína frá þeim:
Jaeja ta er x games lokid og turinn fer loks ad byrja fyrir alvoru !!!  Tucker jardadi natturulega snocrossid og adrid attu einfaldlega ekki sens.  Hann valdi alltaf bestu linurnar sem adrir virtust ekki taka eftir.  Titturinn Levi Lavalle syndi og sannadi ad hann hefur staerri hredjar en adrir og teipadi pollann a rampinn i knock out keppninni med svakalegu stokki.  Okkar madur Chris Burandt landadi silfrinu og Joe Parson i 3 saeti. 

Erum a leid i party med freestyle lidinu og Joe Duncan, og natturlega Chris.  Sidan er brottfor i fyramalid med kallinum a trailernum til hans heimabaejar Kremling.

Meira sidar

kv. team Burandt

 
Tucker að stinga Snocrossið af !                            Aðalmaðurinn Tucker Hibbert !

 
Levi LaVallee í flugtaki í KnockOut !                   Levi og Chris Burandt á spjallinu !
Nánar / Tjá skoðun  
 01.02.2010
 Winter X Games 14 - Dagur 4
Þá er síðasti dagurinn búinn á Winter X Games 14 en hann var jafnframt sá þéttpakkaðasti ! Þvílíkir leikar sem eru búnir að fara fram þessa helgina ! Greinarnar sem var keppt í í gær voru Skiier X Men's & Women's, Snowboard Slopestyle Women's, Adaptive SnoCross, SnoCross, Mono Skier X, Snowboard Slopestyle, Skiing SuperPipe, Snowmobile Knock Out og Skiing SuperPipe High Air ! Hér fyrir neðan eru video af öllum úrslitum frá því í gær fyrir utan Adaptive SnoCross ! Þvílík helgi sem er búin, geðveikt að fylgjast með þessu öllu saman !

Fyrst skulum við líta á "Rollout" video frá leikunum og "Top 10 Moments" !

Winter X Games 14 - Rollout


Winter X Games 14 - Top 10 Moments


Winter X Games 14 - Womens Skiier X Gold - Ophelie David


Winter X Games 14 - Skiier X Gold - Chris Del Bosco


Winter X Games 14 - Womens Snowboard SlopeStyle Gold - Jenny Jones


Winter X Games 14 - SnoCross Gold - Tucker Hibbert


Winter X Games 14 - Mono Skiier X Gold - Tyler Walker


Winter X Games 14 - Snowboard SlopeStyle Gold - Eero Ettala


Winter X Games 14 - Ski SuperPipe Gold - Kevin Rolland


Winter X Games 14 - Snowmobile KnockOut Gold - Levi LaVallee


Winter X Games 14 - Ski SuperPipe High Air Gold - Peter Olenick
Nánar / Tjá skoðun  
 31.01.2010
 Winter X Games 14 - Live !
ATH - Þessi frétt verður efst á síðunni þar til Winter X Games lýkur svo skrollið niður fyrir nýjar fréttir !

Live útsending af Winter X Games í boði Canal+ ! Það er náttúrulega ekkert nema geðveiki að horfa á þetta ! Hér fyrir neðan eru helstu tímasetningarnar á íslenskum tíma svo þið getið fylgst með öllu saman ! Svo nú er bara að koma sér fyrir í sófanum, smella á play, fullscreen og njóta !


Fimmtudagur 28 Jan
20.00 - Skiing Slopestyle Women's Final
02.00 - Snowmobile Freestyle Final

Föstudagur 29 Jan
23.30 - Skiing SuperPipe Women's Final
01.00 - Snowmobile Best Trick Final
02.00 - Skiing Big Air Final
02.30 - Snowboard SuperPipe Men's Final

Laugardagur 30 Jan
21.00 - Snowboard Snowboarder X Men's & Women's Final
21.30 - Skiing Slopestyle Men's Final
02.30 - Snowboard SuperPipe Women's Final
03.30 - Snowboard Big Air Final

Sunnudagur 31 Jan
17.00 - Skiing Skiier X Men's & Women's Final
19.00 - Snowboard Slopestyle Women's Final
19.15 - Adaptive SnoCross
20.00 - Snowmobile SnoCross Final
20.30 - Mono Skier X Final
21.00 - Snowboard Slopestyle Men's Final
00.00 - Skiing SuperPipe Men's Final
01.30 - Snowmobile Knock Out Final
02.30 - Skiing SuperPipe High Air Final
Nánar / Tjá skoðun  
 31.01.2010
 Winter X Games 14 - Myndir frá Íslendingunum úti !
Já það er hrikalegt gengi af sleðamönnum úti í Aspen núna að horfa á X-Games en þeir eru svo á leiðinni í svakalegt sleðaævintýri með Chris Burandt's Backcountry Adventures eftir leikana ! Freyr og Þór Kjartans voru að senda mér þessar myndir núna rétt í þessu frá æfingum í Snowmobile Knock Out og Snocross ! Þeir vildu meina að Levi LaVallee hefði átt flottustu stökkin í æfingum í Snowmobile Knock Out ! Þeir sögðu líka að það hafi verið svakaleg Íslendinga stemning í gær eftir að Halldór tók gullið í Big Air ! Allir öskrað og veifað Íslenska fánanum og ég veit ekki hvað og hvað !

Þeir ætla að halda áfram að senda mér myndir og fréttir af ferðalaginu svo fylgist með því !

 
Polaris sleðinn hans Chris Burandt                   Æfingar í Snowmobile Knock Out

 
Tucker Hibbert að rústa undanrásunum             Aðalmennirnir Levi LaVallee og Tucker
Nánar / Tjá skoðun  
 31.01.2010
 Winter X Games 14 - Dagur 3
Við erum komin að þriðja deginum á Winter X Games 14 og þeir hafa verið hrikalegir ! Bara til að hvetja þjóðarstolt okkar Íslendinga meira þessa dagana þá gerði Halldór Helgason sér lítið fyrir og sigraði Snowboard Big Air með fullu húsi stiga ! Fullu húsi já, ekki slæmt það ! En í gær fóru semsagt fram úrslit í Snowboard Snowboarder X Men's & Women's, Skiing Slopestyle, Snowboard SuperPipe Women's Final og Snowboard Big Air Final ! Fyrir neðan eru video af öllum sigurvegurunum frá því í gær og það er vel þess virði að tjékka á þeim !

En fyrst skulum við sjá aðalatriðin frá degi 3 á Winter X Games 14 !

Winter X Games 14 - Day 3 Highlights


Winter X Games 14 - Womens Snowboarder X Gold - Lindsey Jacobellis


Winter X Games 14 - Snowboarder X Gold - Nate Holland


Winter X Games 14 - Ski Slopestyle Gold - Bobby Brown


Winter X Games 14 - Womens Snowboard SuperPipe Gold - Gretchen Bleiler


Winter X Games 14 - Snowboard Big Air Gold - Halldor Helgason
Nánar / Tjá skoðun  
 30.01.2010
 Íslandsmótið í Ískross 2010 - 1. umferð
Í dag fór fram 1. umferðin í Íslandsmótinu í Ískross 2010 í frábærum aðstæðum heima á Mývatni. Mótið átti upphaflega að vera á Ólafsfirði en þurfti að færa það vegna lélegra aðstæðna þar. Mótið var keyrt snemma og hratt svo að menn gætu náð handboltaleiknum ! En þetta var alveg frábær keppni í alla staði, ísinn var harður og menn áttu misgott með að ná tökum á honum ! Ég var á videokamerunni og mun sjóða saman eitthvað gott video eins og venjulega og setja hér inn sem fyrst ! Því miður var enginn á myndavél sem ég náði tökum á og því er fréttin myndalaus í fyrstu en ég mun setja inn einhverjar myndir um leið og Sverrir Sveppagreifi setur eitthvað inn ! En hér eru top 3 úrslitin í öllum flokkum !

85cc flokkur
1. Haraldur Örn Haraldsson
2. Kristján Helgi Garðarsson
3. Óliver Örn Sverrisson

Kvennaflokkur
1. Andrea Dögg Kjartansdóttir
2. Ásdís Elva Kjartansdóttir
3. Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir

Standard flokkur
1. Daði Erlingsson
2. Anton Freyr Birgisson
3. Erling Valur Friðriksson

Opinn flokkur
1. Ásgeir Hall
2. Ragnar Ingi Stefánsson
3. Þorgeir Ólason
Nánar / Tjá skoðun  
 30.01.2010
 Winter X Games 14 - TJ Schiller gerir 1620 í Ski Big Air
Þetta er eitt það vangefnasta sem ég hef séð, við erum að tala um TJ Schiller að gera 1620 sem þýðir að maðurinn snýr sér í 4 og hálfan hring í loftinu með gripi í skíðin og lendir því fullkomið ! Enda fékk hann fullkomið skor fyrir þetta stökk en dugði þó ekki til sigurs ! Bara rugl !

Winter X Games 14 - TJ Schiller's 1620 in Ski Big Air
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annað sé tekið fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat