23.02.2010
 Snæfellsjökull 20-21.02.10
Á laugardaginn eftir Ískrossið skelltum við okkur nokkrir saman vestur á Snæfellsnes til að sleðast á sunnudeginum ! Lentum reyndar í smá bið þar sem einhver bölvaður þrjótur braust inn í bílinn hans Gumma Skúla á föstudags nóttinni og braut rúðu ! Því var reddað með pappakassa og nauðgarateipi ! Þannig að ég, Gummi Skúla, Gummi Rauði og Bjarki Dóra skelltum okkur vestur í bústaðinn hans afa með þrjá sleða en seinna um kvöldið komu Einsi Gunn, Danni Kidda, Bragi og tveir vinir hans ! Þar til að þeir komu gerðum við ýmislegt skemmtilegt af okkur, skoðuðum bæjarlífið í Ólafsvík, kíktum á Hótel Hellissand á barinn og lentum svo í svakalegri samkomu í kjallaranum hjá Rúnari í Ólafsvík ! En svo hentum við okkur í rúmið og hvíldum okkur fyrir átök sunnudagsins !


Það var ræst um 9 og við drulluðumst nokkru seinna af stað fyrir nes og upp á Jökulháls Arnarstapa megin ! Það var hífandi rok þegar við keyrðum upp á háls en það reyndist ekki vera neitt hrikalegt þegar við komum upp ! Rúnar fór aðeins í að laga troðarann en við hættum ekki á að gera neitt með honum þar sem undirlagið var frekar hart ! Við vorum með 6 sleða og var farið í að rífa af og græja sig ! Það var ágætis nýsnævi sem hafði safnast fyrir í giljum og brekkum og við fundum okkur helling að gera, fullt af stökkum og tókum vel á því ! Fengum sól og frábært veður ! Um þrjú leytið kom svo eitthvað ský og varð skyggnið þá frekar lélegt en þá voru allir orðnir ágætir og héldum við býsna sáttir niður í bíl og gengum frá ! Það var eitthvað tekið minna af myndum en videokameran var á lofti allann tímann og mun ég klippa eitthvað fínt úr því !

  

Ég henti þeim myndum sem voru teknar í albúm á myndasíðunni eða smellið hér ! Svo kemur video fljótlega !
Nánar / Tjá skoðun  
 23.02.2010
 Preview af Supercross brautinni í Atlanta um næstu helgi !
Nánar / Tjá skoðun  
 23.02.2010
 AMA Supercross 2010 - Round 7 - Indianapolis
7. umferðin í AMA Supercrossinu fór fram um helgina í Indianapolis og var þetta fyrsta keppnin á tímabilinu sem er á austurströndinni og því fyrsta skiptið sem við sjáum East Lites flokkinn ! Það er alltaf spennandi að sjá nýju andlitin mæta og sjá hver fer flottastur af stað, margir sem komu til greina eins og fyrrverandi meistarinn í East Lites Christophe Pourcel, keppinautur hans Austin Stroupe og svo má ekki gleyma nýliða undrabarninu Justin Barcia sem gerði allt vitlaust í sumar í Motocrossinu á sínu fyrsta tímabili og keppir nú sitt fyrsta tímabil í Supercrossinu ! Í stóra flokknum er svo allt í járnum í stigabaráttunni en fyrir keppnina voru Josh Hill og Ryan Dungey jafnir að stigum og Ryan Villopoto aðeins 3 stigum á eftir ! En eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Indianapolis supercrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Indianapolis !
Nánar / Tjá skoðun  
 23.02.2010
 ISOC Snocross 2009-2010 - Round 7 - Hiawatha
Um helgina fór fram 7. umferðin í ISOC Snocrossinu í USA í Hiawatha í Ontario í Kanada ! Þarna eins og á Ólympíuleikunum var frekar snjólaust og þurfti að ferja fleiri hundruð vörubílshlöss að til að gera brautina ! Í Pro Super Stock var það Tim Tremblay sem sigraði en Svíinn Emil Öhman varð annar og Andrew Johnstad varð þriðji ! Í Pro Open sigraði Ross Martins eins og síðast en Levi LaVallee varð annar og er langt síðan hann komst á pall ! Emil Öhman tók sig svo til og endaði þriðji ! Næsta keppni fer fram eftr tvær vikur í Hayward ! Nánari fréttir og úrslit á síðu ISOC !


Myndir frá ISOC

Pro Super Stock - Úrslit
1 Tim Tremblay 11 Ski-Doo
2 Emil Ohman 27 Ski-Doo
3 Andrew Johnstad 255 Polaris
4 Garth Kaufman 48 Arctic Cat
5 Robbie Malinoski 4 Polaris
6 Levi LaVallee 108 Polaris
7 Brett Bender 19 Polaris
8 Cory Davis 160 Arctic Cat
9 Ross Martin 837 Polaris
10 Dan Ebert 60 Arctic Cat

Pro Open - Úrslit
1 Ross Martin 837 Polaris
2 Levi LaVallee 108 Polaris
3 Emil Ohman 27 Ski-Doo
4 Garth Kaufman 48 Arctic Cat
5 Andrew Johnstad 255 Polaris
6 Zach Pattyn 99 Arctic Cat
7 Dan Ebert 60 Arctic Cat
8 Robbie Malinoski 4 Polaris
9 Iain Hayden 93 Yamaha
10 Matt Piche 51 Polaris
Nánar / Tjá skoðun  
 23.02.2010
 Torrent frá Indianapolis Supercross
Torrent á báða flokkana í supercrossinu í Indianapolis um helgina ! Live heildarútsending af öllu gamaninu !

AMA Supercross 2010 - Round 7 - Indianapolis - 250 & 450 Classes
http://thepiratebay.org/torrent/5381056/
Nánar / Tjá skoðun  
 22.02.2010
 Íslandsmótið í Ískross 2010 - 2. umferð
Á laugardaginn fór fram 2. umferðin í Íslandsmótinu í Ískrossi og var þetta í fyrsta skiptið sem Ískross keppni kemur suður yfir heiðar ! Flott braut var sett upp á Leirtjörninni og fengum við alveg frábært veður ! Ísinn var þó farinn að láta vel á sjá þegar leið á keppnina og komnir góðir pollar ! Keppnin var alveg frábær í alla staði og mikil spenna í öllum flokkum ! Hér eru top 3 úrslitin í öllum flokkum ! Svo er video á leiðinni !


Myndir frá Sverri - www.motosport.is

85cc flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Haraldur Örn Haraldsson
3. Victor Ingvi Jacobsen
Kvennaflokkur
1. Andrea Dögg Kjartansdóttir
2. Ásdís Elva Kjartansdóttir
3. Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir
Standard flokkur
1. Gunnar Sölvason
2. Benedikt Helgason
3. Pálmar Pétursson
Opinn flokkur
1. Gunnlaugur Karlsson
2. Þorgeir Ólason
3. Steinn Hlíðar Jónsson

Heildarúrslit má sjá hér !
Nánar / Tjá skoðun  
 18.02.2010
 MXsport - Vantar þig flottan hjólagalla ?
Frá MXsport.is:

Við erum að vinna í pöntun á Answer fatnaði + hlífðarbúnaði þessa dagana (já það er sko allt að gerast í MXsport.is :)  Answer er með stútfullan 2010 bækling af mjög flottum fötum og vörum. Þeir eru að sjálfsögðu með James Stewart Collection fatnaðinn, Rockstar línuna og síðan Alpha, Ion og Syncron línurnar. Ef þig langar að sérpanta eitthvað sérstakt þá getur þú sent okkur tölvupóst á sala (hjá) mxsport.is með nafni á vörunni ásamt vörunúmerinu (sex stafa númer). Við munum síðan verða í sambandi til að staðfesta tiltækileika. Hafðu samband sem fyrst því við þurfum að fá pöntunina frá þér fyrir laugardaginn 28. febrúar til að ná í sendinguna :)

Ath. greiða þarf helming inná sérpöntun til að staðfesta hana.
Nánar / Tjá skoðun  
 16.02.2010
 Íslandsmótið í Ískross 2010 - 2. umferð verður í Reykjavík
2. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram laugardaginn 20. febrúar við Leirtjörn v/ Úlfarsfell, Reykjavík.

Skráning fer fram á www.msisport.is og er skráning opin til miðnættis á fimmtudagskvöld 18. febrúar.

Mæting keppenda er kl. 10:00, tímatökur hefjast kl: 11:00 en keppnin sjálf kl: 12:00.

Allur akstur á Leirtjörn er bannaður fram að keppni.



Öll umferð á tjörninni er bannaður á keppnisdag  fyrir utan keppendur og starfsmenn.
Áhorfendum er bent á bílastæði við vestur enda tjarnarinnar og gott útsýnissvæði við suð-vestur endan. Áhorfendur og keppendur eru beðnir að leggja bílum þannig að ekki hljótist ónæði fyrir aðra vegfarendur.

Leirtjörn og umhverfi er í eigu Reykjavíkurborgar og er svæðið mikið notað til útivistar og biðjum við alla sem leggja leið sína á keppnina að ganga vel um og skilja ekki eftir drasl á svæðinu.
Nánar / Tjá skoðun  
 16.02.2010
 Preview af Supercross brautinni í Indianapolis um næstu helgi !
Nánar / Tjá skoðun  
 16.02.2010
 AMA Supercross 2010 - Round 6 - Anaheim 3
6. umferðin í AMA Supercrossinu fór fram um helgina og var keppt í Anaheim í þriðja og síðasta skiptið á tímabilinu ! Eins og síðustu ár hefur "bleika" þemað verið allsráðandi í Anaheim 3 en þá er keppt til styrktar brjóstakrabbameini og er ýmislegt gert til fjáröflunar ! Keppendur mæta líka margir í allskyns bleikum gír og mikið gert úr þessu ! En að keppninni, þá var þetta alveg mega keppni og það er gaman núna að enginn er öruggur sigurvegari þar sem topp ökumennirnir eru allir frekar jafnir og þarf ekki nema smá mistök og þá er allt fyrir bí ! En brautin var rosalega flott, teknísk og virtist erfitt að taka framúr í henni ! Þessi keppni var sú síðasta í langan tíma fyrir West Lites flokkinn en nú taka við 8 keppnir í röð hjá East Lites áður en West Lites strákarnir fá að spreyta sig í 2 síðustu keppnunum ! En eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Anaheim 3 supercrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Anaheim 3 !
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annað sé tekið fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat