18.03.2010
 Tilkynning !
Vegna skipulagsbreytinga verður lokahófið fært inn í Sel – Hótel Mývatn en ekki í Skjólbrekku. Sama prógram verður keyrt og hefst videosýning kl. 19:30 og svo matur rúmlega átta.
 
Hvanndalsbræður koma og verða með gott innslag. Einnig verður verðlaunaafhendingin á sínum stað.
 
Smærri útgáfa af Von með Magna sér við hlið mun svo koma og halda uppi stuðinu fram eftir nóttu.
 
Húsið verður svo opnað fyrir almenning eftir kl. 24:00 og verður þá 18 ára aldurstakmark og kr.1500.- inn í húsið
 
Kveðja úr Mývatnssveit
 
Yngvi R. Kristjánsson

Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 18.03.2010
 Styrktarađilar 2010
Undanfarnar vikur hafa farið mikið í undirbúning fyrir keppnistímabilin sem eru að rjúka af stað. Ég er búinn að safna að mér góðum hóp af styrktaraðilum og langar að kynna þá hér. Hægt er að lesa nánar um styrktaraðilana með því að smella á hlekkinn "Styrktaraðilar 2010" hér efst á síðunni !
 
 

 

 



Smellið á logo-in til að skoða heimasíður fyrirtækjanna !

Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 16.03.2010
 Snocross ćfingar í Kröflu um síđustu helgi
Um helgina skruppum við Arna Benný norður í sæluna, skelltum okkur í Hlíðarfjall á föstudeginum og tókum hrikalegt rennsli ! Arna var að sjálfsögðu alsæl en hún var að fara í fyrsta skiptið á bretti í ár eftir krossbandsaðgerðina !

En á laugardeginum fór ég upp í Kröflu og byrjaði að smíða snocross braut en þar leyndist alveg glettilega mikill snjór og er brautin uppi við Leirhnjúksplanið þar sem hún var fyrir 2 árum. Ég var alveg fram í myrkur að hamast á troðaranum og gerði nokkuð góðann hring. Í brautinni er stór tabletop pallur, stór vúppsakafli og supercross vúppsakafli, step-on step-off pallur, tveir stórir gap pallar, og dragonback og fullt af skemmtilegum battabeygjum, sumar tvöfaldar !

Á sunnudeginum var svo tekið til við æfingar í brautinni og Baldvin Gunnars var með mér fyrst um sinn og svo bættist Sigþór Hanness í hópinn og Gulli krútt á fjarkanum ! Við náðum góðri æfingu og menn áttu misauðvelt með að höndla brautina en hún fyrirgaf ekkert, hehe ! Gulli var svakalegur en hann kreysti allt úr fjarkanum og tók tabletop pallinn flott en hann er rúmir 30 metrar !

 
 

Við smelltum af nokkrum myndum sem ég setti í albúm á myndasíðunni en þið getið líka smellt á myndirnar eða hér til að skoða !

Ég ætla síðan að breyta brautinni aðeins fyrir keppnina um helgina en í megindráttum verður hún svipuð, ætla að laga nokkra palla og gera hana aðeins keppnisvænni !

Hlakka til að sjá alla um helgina í Mývatnsveislunni !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 15.03.2010
 Mývatn 2010
MÝVATN 2010


Dagskrá
Föstudagur 19. mars
Kl. 14:00          Samhliða brautarkeppni (skráning á staðnum kl 13:00-13:30)
Kl. 16:30          Hillcross (skráning á staðnum kl 15:30-16:00)
Kl. 18:00          Jarðböðin (láta líða úr sér eftir átök dagsins)
Kl. 20:30          Ísspyrna í flóðljósum úti á Mývatni
Kl. 21:30          Setning Mývatn 2010 úti á Mývatni
Kl. 21:40          Keppendur kynntir
Kl. 22:00          Flugeldasýning

Laugardagur 20. mars
Kl.   8:00          Íscross – skoðun hjóla (skráning eingöngu á www.msisport.is)
Kl.   9:00          Íscross – Tímatökur
Kl. 10:00          Íscross 1. móto
Kl. 11:00          Íscross 2. móto
Kl. 12:00          Íscross 3. móto
Kl. 14:00          Snocross – Tímatökur (skráning eingöngu á www.msisport.is)
Kl. 15:00          Snocross keppni hefst
Kl. 18:00          Jarðböðin (láta líða úr sér eftir átök dagsins og fyrir átök kvöldsins)
Kl. 20:00          Vídeosýning af afrekum dagsins hefst í Skjólbrekku
Kl. 21:00          Veisla kvöldsins hefst í Skjólbrekku
Kl. 21:30          Verðlaunaafhending fyrir afrek helgarinnar
Kl. 23:00          Dansleikur með hljómsveitinni Von

Mikilvægar upplýsingar
- Enn er laus gisting á Sel-Hótel, Gistiheimilinu Skútustöðum, Hótel Reynihlíð, ofl.
- Snocrossbrautin verður við Kröflu.
- Samhliðabraut og Hillcross verður í Kröflu
- Miði á lokahófið í Skjólbrekku kr 6900 (innifalið hlaðborð, skemmtun og dansleikur)
- Hvanndalsbræður koma á óvart yfir borðhaldi.
- Verðlaunaafhending fyrir allar greinar fer fram í Skjólbrekku
- Skráning í Íscross og Snocross er opin á www.msisport.is fram til miðnættis 17/3
- Allar nánari upplýsingar á www.myvatn.is

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 15.03.2010
 Sýning hjá Nítró á 2010 Kawasaki
Sýning verður í Nítró, Bíldshöfða 9 næstkomandi fimtudag frá kl. 18:00 - 20:00 en þar munu verða til sýnis 2010 árgerðirnar af Kawasaki hjólum. Einnig ætlum við að bjóða 25% afslátt af öllum vörum í verslun okkar nema af tilboðsvörum og hjólum. Kaffi og kökur verða í boði.

Leikurinn endurtekinn út á landi:
Við munum svo endurtaka leikinn næstkomandi föstudag í N1 á Akureyri milli kl. 16:00 og 18:00, þar verður einnig boðið upp á 25% afslátt af öllum Nítró vörum nema tilboðsvörum og hjólum.

Á meðal þeirra hjóla sem verða til sýnis er Kawasaki Z1000, Kawasaki Vulcan 900 custom, Kawasaki Vulcan 1700 Classic Tourer, Kawasaki Versys ásamt Kawasaki KXF 250 og KXF 450. Ekki missa af þessu!
Nánar / Tjá skoðun  
 15.03.2010
 Torrent frá Toronto Supercross
Loksins loksins ! Torrent á báða flokkana í supercrossinu í Toronto um helgina ! Live heildarútsending af öllu gamaninu !

AMA Supercross 2010 - Round 10 -Toronto  - 250 & 450 Classes
http://www.demonoid.com/files/details/2172090/5932951/

Svo er hérna linkur á torrent með Four Legends þættinum sem var sýndur á Speed um daginn um supercross hetjurnar Jeremy McGrath, Ricky Carmichael, Chad Reed og James Stewart !

Four Legends
http://www.demonoid.com/files/details/2170344/23731804/
Nánar / Tjá skoðun  
 13.03.2010
 Preview af Supercross brautinni í Toronto um nćstu helgi !
Nánar / Tjá skoðun  
 09.03.2010
 AMA Supercross 2010 - Round 9 - Daytona
9. umferðin í AMA Supercrossinu fór fram um helgina í mekka mótorsportsins, Daytona ! Það er alltaf extra gaman að horfa á Daytona því mönnum þykir mikill heiður að vinna þessa keppni og einnig eru brautirnar alltaf meira líkar motocross brautum svo það er misjafnt hvernig mönnum gengur ! Þessi keppni var engin undantekning frá fyrri Daytona keppnum því það var hörku spenna og hrikalega skemmtilegt að fylgjast með ! En eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Daytona supercrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Daytona !
Nánar / Tjá skoðun  
 07.03.2010
 ISOC Snocross 2009-2010 - Round 8 - Hayward
Núna um helgina fór fram 8. umferðin og sú næststíðasta í ISOC Snocrossinu í USA. Keppt var í Hayward í Wisconsin en þar var víst allveg stappað af áhorfendum og blíða lék við mannskapinn ! Í Pro Super Stock var það Ross Martin sem sigraði á undan Tim Tremblay og Emil Ohman ! Í Pro Open var það hinsvegar Tim Tremblay sem sigraði á undan Ross Martin og Levi LaVallee ! Síðasta umferðin í ISOC seríunni fer fram um aðra helgi í Lake Geneva og ef ég skil það rétt þá er tvöföld umferð svo menn verða að taka á öllu sínu besta ! Nánari fréttir og úrslit á síðu ISOC !


Myndir frá ISOC

Pro Super Stock - Úrslit
1 Ross Martin 837 Polaris
2 Tim Tremblay 11 Ski-Doo
3 Emil Ohman 27 Ski-Doo
4 Paul Bauerly 24 Arctic Cat
5 Cory Davis 160 Arctic Cat
6 Brett Turcotte 16 Ski-Doo
7 Dan Ebert 60 Arctic Cat
8 Levi LaVallee 108 Polaris
9 Steve Taylor 2 Ski-Doo
10 Garth Kaufman 48 Arctic Cat

Pro Open - Úrslit
1 Tim Tremblay 11 Ski-Doo
2 Ross Martin 837 Polaris
3 Levi LaVallee 108 Polaris
4 Zach Pattyn 99 Arctic Cat
5 Robbie Malinoski 4 Polaris
6 Matt Piche 51 Polaris
7 Dan Ebert 60 Arctic Cat
8 Andrew Johnstad 255 Polaris
9 Steve Taylor 2 Ski-Doo
10 Paul Bauerly 24 Arctic Cat
Nánar / Tjá skoðun  
 07.03.2010
 Press Release frá Tucker Hibbert
Fann þessa tilkynningu frá Tucker Hibbert um að hann væri á leið á heimsmeistaramótið í snocross í Svíþjóð ! Þetta á klárlega eftir að færa þessa keppni upp á nýjan stall og nær MXON enda er hugmyndin hjá þeim að gera þessa keppni að SXON ! Nú verður í fyrsta skiptið verðlaunað fyrir sigurlandið og því mjög spennandi að sjá hverjir fara heim með það ! Smellið á myndina til að stækka og lesa !

Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat