08.04.2010
 Robbie Maddison stekkur 85m yfir Corinth skurðinn á Grikklandi
Freestyle motocross kappinn Robbie Maddison gerði sér lítið fyrir í dag og stökk fyrstur manna yfir Corinth skurðinn sem skilur að meginland Grikklands og Poloponese skagann ! Skurðurinn sem var manngerður árið 1893 er 85 metrar á breidd og annað eins á dýpt ! Þetta stökk var því gríðarlega tilkomumikið !

 

Robbie þurfti að dúndra á 500cc Hondunni sinni eftir mjög svo erfiðri aðrennu með stökkum og beygjum til að ná tilhlaupi í stökkið og kom á 125 km/h á rampinn og sveif 85 metra yfir á lendingarpallinn hinum megin við skurðinn ! Í stökkinu var hann 95 metrum yfir vatnsborði skurðsins og því hrikalegt að sjá ! Robbie sagði að það erfiðasta við stökkið var að komast yfir sinn eiginn ótta, hann segir að þetta hafi þó verið tækifæri sem hann gat ekki staðist og er gríðarlega ánægður með að hafa tekist þetta ! Hann bætti svo við að það hafi jú bara verið eitt tækifæri til að ná þessu réttu ! Hrikalegt að sjá, tjékkið á videoinu hér að neðan !



Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 08.04.2010
 Preview af Supercross brautinni í Houston um næstu helgi !
Nánar / Tjá skoðun  
 08.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 10
Jæja þá er maður mættur heim á klakann aftur eftir fáránlega góða ferð til Belgíu ! Alvöru hjólapáskar í gangi !

Morguninn hjá okkur Aroni byrjaði með látum en við sváfum doldið yfir okkur og spruttum á lappir kl 10.30 og hlupum út í bíl ! Við brunuðum eins og við gátum og samkvæmt GPS tækinu áttum við að mæta rétt fyrir eitt sem átti að sleppa ef engin umferð yrði ! Við stoppuðum einu sinni á leiðinni til að taka olíu á bílinn og fá smá snæðing en annars var pedalinn í gólfinu hehe !

Við mættum svo á Schiphol flugvöllinn við Amsterdam korter í eitt og drifum okkur inn en þá var bara hrikalega löng röð að check-in borðinu hjá Icelandair og fljótlega komumst við að því að tölvukerfið var í fokki hjá þeim og allt í stöppu ! Þá tók við löööööng bið og á endanum kvöddumst við félagarnir og Aron hélt til baka ! Þvílík snilld að vera hérna og hjóla saman ! En ég semsagt beið áfram og úr varð 1 og hálfs tíma seinkun á fluginu ! Ég var svo lentur heima á fróni hálf 5 og Gummi Skúla var mættur á völlinn að sækja strákinn og kom mér í bæinn !

Svo þannig enduðu þeir páskarnir ! Vona að þið hafið haft gaman af fréttunum af mér ;)

Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 07.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 9
Við kallarnir byrjuðum daginn okkar á eggjahræru og beikoni til að fá kraft fyrir síðasta hjóladaginn minn hér í Belgíu ! Úti var ágætis veður, skýjað en alveg sjúklega heitt ! Eftir smá umhugsun ákváðum við að drífa okkur í Lommel frekar en eitthvað annað og skelltum okkur af stað á Sprinternum ! Á leiðinni var stoppað og tekið bensín og dísill á bílinn og þegar við komum til Lommel skelltum við okkur aðeins í Carrefour þar sem Aron verslaði sér í matinn fyrir næstu daga en eftir það héldum við út í braut !

 

Þegar við mættum í brautina voru rosalega fáir að hjóla og brautin alveg sjúklega góð, ekki næstum eins brutal og síðast þegar við vorum hér ! Við hentum okkur í gallana og ég hélt út að hjóla og tók vel á því og var að fíla mig hrikalega vel ! Svo þegar ég kom inn í pitt aftur var Aron þar en þá var kúplingin farin að svíkja hjá honum, hann var pínu fúll eins og sést á myndinni haha ! En fjúff hvað það var heitt að hjóla, enda yfir 20 stiga hiti og það lak gersamlega af manni svitinn ! Ég henti Aroni svo af stað á 250 hjólinu og sendi hann í 20 mín + 2 moto ! Ég tók tímann á honum og var hann með best 2.33 ! Ég skellti mér svo í moto á eftir honum og Aron tímaði mig og náði ég best 2.43 ! Aron ætlaði svo að taka næsta moto en þegar hann var bara hálfnaður kom kom hann inn því þá var aftara tannhjólið alveg gersamlega búið ! Ég hentist í að skipta um tannhjól en svo sá ég að fremra tannhjólið og keðjan sjálf var alveg í drasli líka ! Enda bara orginal keðja á hjólinu sem er nú hálfgert drasl ! En þá ákvað Aron að prufa sitt hjól aftur og sennilega var hann bara að ímynda sér þetta kúplingsvesen því ekkert virtist að hjólinu núna ! Hann keyrði fanta vel og náði best 2.30 !

 
 
 
 

Ég tók nokkrar myndir af Aroni taka á því og síðan prufaði ég 450 kvikindið aðeins og Aron smellti nokkrum myndum af mér, þekkið okkur í sundur á að ég er í brynju, hann ekki ! Það var doldið mikið öðruvísi að hjóla brautina á 450 hjólinu sumstaðar erfiðara og sumstaðar kom krafturinn sér vel ! Síðan í lokin skellti Aron sér út í síðasta moto og tók vel á því en var eitthvað ekki að fíla sig í lokin og hætti eftir nokkur kröss og svona ! Við vorum samt alveg hrikalega sáttir við daginn og pökkuðum saman og héldum á þvottastöðina að sjæna allt og græja !

 

Síðan fórum við til Domi og græjuðum allt draslið fyrir brottför, gengum frá Sprinternum og öllu dótinu hennar Signýjar inn í hann og allt dótið hans Arons í bílinn hans eða inn til Domi ! Síðan héldum við heim á leið og ætluðum að fá okkur að snæða einhversstaðar en vorum orðnir heldur seinir og búið að loka öllu ! Þannig við héldum bara heim í íbúð og græjuðum hakk og pasta og átum með bestu lyst yfir sjónvarpinu ! Síðan var tjillað í sófanum og ég pakkaði draslinu mínu niður og græjaði fyrir brottför í fyrramálið !

Við ætlum svo að bruna af stað um 8 í fyrramálið upp til Amsterdam til að vera tímanlega ef umferðin verður leiðinleg, sem gerist víst oft ! Flugið mitt fer svo kl 2 ! Snilldin ein !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 06.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 8
Eftir svakalega keppnisdaginn í gær (allavega hjá Aroni ;) þá hvíldum við okkur vel í morgun en uppúr hádeginu hrukkum við í gang ! Úti var alveg snarvangefið veður, bongó blíða og steikjandi sól svo við drifum okkur að græja dótið út í bíl og svona ! Úti voru fólkið sem Aron leigir hjá þau Martin og Domi konan hans (já hún heitir líka Domi) að græja húsbílinn sinn til að fara á heimsmeistarmótið í motocrossi á Ítalíu um næstu helgi ! Við spjölluðum aðeins við þau en svo héldum við af stað og komum við á Eat@Home staðnum þar sem Aron fékk sér pasta í svanginn !

 

Þegar við komum svo í Honda Park í þvílíkri blíðunni var brautin alveg geðveik, eins og gaurinn í hliðinu sagði 80% perfect ! Við tókum hjólin út og klæddum okkur eins lítið og við gátum því hitinn var alveg nægur ! Fórum síðan og hjóluðum alveg í drasl ! Brautin var alveg snilld, blautur sandur og djúpir röttar inni í skóginum en svo var endapallurinn svo fullkominn að það hálfa væri nóg, Aron var að taka svaðallegar vippur og við vorum alveg að fíla okkur í drasl ! Við skiptumst svo á að taka 20 mín +2 moto og tímuðum hvorn annann ! Aron tók sinn besta tíma í fyrra motoinu 1.42 en ég tók minn í seinna motoinu 1.55 og tók þann tíma 5 hringi í röð, hehe ! Aron tók svo nokkrar myndir af mér í lokin en svo þegar ég ætlaði að taka myndir af honum var klukkan orðin 6 og búið að loka brautinni, hann var allsekkert fúll, hann lofaði því ;)


Við sátum svo hinir rólegustu í sólinni áður en við pökkuðum saman og héldum á þvottastöðina hjá Domi að þrífa draslið ! Þegar allt var orðið hreint og fínt héldum við heim í íbúð og elduðum okkur svaðallegt kjúklingapasta ! Siðan var tjillað í sófanum með páskaegg og meððví frameftir kveldi !

Alger steik þessi dagur ! Þvílíkt veður, vona að ég fái svona á morgun síðasta daginn, planið er sennilega að klára sig alveg og taka á því í Lommel !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 05.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 7
Það var ræst klukkan 7 og við Aron hentum tjaldinu saman og ég brunaði út á bensínstöð til að sækja bensín ! Aron varð eftir til að passa stæðið okkar ! Þegar ég kom svo út á bensínstöð sem var rétt hjá brautinni var hún ennþá lokuð, andskotans ! Ég keyrði á allar stöðvar í nágrenninu og það var sama sagan með sjálfsalana, enginn vildi taka kortin okkar ! Klukkan var svo orðin 8 svo ég hitti Aron við brautina og hann tók FIM skírteinin okkar og fór að skrá okkur í keppnina ! Ég fór aftur og keyrði á enn fleiri stöðvar í nágrenninu ! Endaði með því að ég keyrði á stöð sem var 7 km í burtu í einhverju sveitabæ og þar var mesta krummaskuðs bensínstöð sem ég hef komið á, malarplan með tveim vinnuskúrum og bensíndælu ! En jújú, þar var ekkert mál að borga með korti og allt gekk, haha ! Þegar hjólin og brúsinn voru orðin full af bensíni brunaði ég til baka á keppnisstaðinn og þá var Aron búinn að skrá okkur og græja og gera ! Við græjuðum því bara hjólin og Kenchy greyið þurfti að henda sér á ofur hraða í gallann því æfingarnar hans voru rétt að byrja í 85 flokknum !

 

Aron hafði svo skráð mig í National MX2 og sig sjálfann í Inters Open sem er besti flokkurinn ! Æfingarnar hjá mér byrjuðu kl 10.30 og þá hélt ég út að keyra, shitt hvað þessir gaurar voru góðir ! Greinilega aðeins of góður flokkur fyrir mig því ég var laaaangsíðastur með 12 sekúndum verri tíma en næsti, haha ! Reyndar gekk mér ekkert vel í tímatökunum en það er engin afsökun ! Aron fór svo næstur út í æfingar og kom inn með 30 tímann af 31, greinilega doldið góðir gaurar þarna á ferð líka, shitt ! Brautin var frekar blaut og sandurinn var nánast eins og cement og rosalegir röttar sem mynduðust !

 

Eftir æfingarnar var góð pása hjá okkur þangað til að fyrsta hít hjá mér byrjaði kl 13.50 ! Við röltum aðeins um svæðið og horfðum aðeins á einn flokkinn keyra í brautinni ! Þegar það fór að nálgast minn flokk fór ég að græja mig og keyrði út á biðsvæðið en hvað haldiði þá, þá bannaði skoðunarnefndin mér að keppa vegna þess að það vantaði litlu keðjuhlífina yfir fremra tannhjólinu ! Pff, ég brunaði inn í pitt og við Aron reyndum að leita að Kawasaki hjólum því þessi hlíf er víst orðin öðruvísi á 2010 hjólunum og passaði ekki af Arons hjóli ! En það voru svo ekki mörg Kawasaki hjól á svæðinu nema bara í mínum flokki ! Ég reyndi að fá lánað af Súkku en það passaði engan veginn ! Svo fór flokkurinn minn af stað og ég þurfti að bíta í það súra að standa á hliðarlínunni ! Djöfull var ég pirraður ! En það þýddi ekkert annað en að komast yfir það og ég græjaði mig því bara sem mekka fyrir Aron með pit spjald og svona ! Fljótlega kom að fyrsta híti hjá Aroni og við renndum út í biðsvæðið ! Síðan var raðað upp á línu og ég reyndi að slétta línu fyrir Aron og græja ! Hann varð samt sem áður grafinn lifandi í startinu en endaði svo með að keyra í kringum 20 sætið og var á góðu tempói ! En þegar 5 mínútur voru eftir af hítinu var rauðflaggað vegna þess að það hafði einhver keyrt út úr braut og á áhorfanda sem hafði slasast ! En Aron endaði í 20. sæti af 31, sem er helvíti gott ! Núna tók við heillöng bið fram að næsta híti en það var síðasta hít dagsins kl 17.30 ! Við tjilluðum því bara og vorum búnir að græja allt klárt ! Seinna hítið fór svo af stað og Aron náði býsna góðu starti en í annarri beygju varð svaka krasshrúga og var flaggað í endurræsingu ! Þá gekk allt smurt fyrir sig nema Aron kom mun aftar út úr startinu en var svo að keyra á svipuðum stað og í fyrra hítinu og endaði aftur í 20. sæti ! Snilldin ein !

 
 
 

Eftir keppnina gengum við frá öllu og héldum tveir heim á leið en Domi og fjölskylda mættu á keppnina og Kenchy fór því með þeim heim ! Við rúlluðum því á 80 km/h heim, fengum okkur á éta á leiðinni en svo fórum við beint á þvottastöðina rétt hjá Domi og þrifum allt draslið okkar og gerðum klárt fyrir næsta dag ! Síðan héldum við heim í íbúð og tjilluðum í sófanum fram eftir kveldi !

Snilldar dagur fyrir utan klúðrið hjá mér, svoldið mikið svekk en hvað um það... ;)

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 04.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 6
Jæja, í dag var undirbúningsdagurinn mikli fyrir keppnina í Axel í Hollandi á morgun ! Við sváfum þokkalega út og tjilluðum svo frameftir degi í íbúðinni yfir tölvunum og sjónvarpinu ! Síðan héldum við til Domi að græja hjólin og flytja allt draslið okkar í Sprinterinn hans pabba því planið var að gista á keppnisstaðnum !

Við fórum og þrifum hjólin okkar alveg í spað á þvottastöðinni rétt hjá Domi og fórum svo yfir allt í skúrnum hjá Domi ! Síðan var öllu raðað í Sprinterinn og Kenchy strákurinn hans Domi fékk að fljóta með okkur þar sem Domi er í Búlgaríu á heimsmeistaramótinu í motocrossi ! Hann er nefnilega mekki hjá Diga liðinu ! Við rúlluðum svo af stað full-lestaðir rétt fyrir 9 og héldum vestur í gegnum Belgíu um 150 km til Axel ! Ferðalagið gekk heldur hægar fyrir sig en við gerðum ráð fyrir en Sprinterinn var eitthvað slappur og komst ekki mikið yfir 80 km/h ! Fjúff, það var hræðilegt fyrst en vandist svo...

 

Þegar við nálguðumst Axel ætluðum við að taka bensín á hjólin og brúsa en það gekk heldur erfiðlega ! Engar bensínstöðvar voru opnar og sjálfsalarnir vildu ekki taka kortin okkar ! Við keyrðum á allar bensínstöðvar í 10km radíus og ekkert gekk ! Við ákváðum svo að við þyrftum bara að vakna snemma og græja þetta í fyrramálið ! Við rúlluðum inn á keppnissvæðið akkurat á slaginu 11 en þá átti einmitt að loka fyrir aðgang ! Váá hvað það var mikið af húsbílum á svæðinu, alveg fáránlegt ! En svona er þetta víst á keppnum hérna, aðeins öðruvísi menning en heima ! Verðum að búa til svona stemningu heima sko ! Við fundum okkur fínt stæði nema að það var allt heldur blautt þarna og svoldil drulla ! En við komum okkur vel fyrir, hentum út fortjaldinu og græjuðum mottu yfir drulluna svo þetta var alger snilld ! Kenchy fór svo til kunningjafólks og fékk að gista í húsbílnum þeirra og við Aron komum okkur fyrir í svefnsófanum í Sprinternum ! Eftir smá nætursnarl og gláp á sandkeppni í Lierop til að hita okkur upp lögðumst við á koddann og sofnuðum !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 04.04.2010
 FIM Motocross 2010 Grand Prix - Round 1 - Sevlievo, Bulgaria
Um helgina fór fram 1. umferðin í FIM heimsmeistaramótinu í motocrossi og var keppt í Sevlievo í Búlgaríu. Keppt var í MX1, MX2 og WMX. Mikil spenna hefur verið á undirbúningstímabilinu enda eru margir topp ökumennirnir búnir að skipta um lið og komnir á ný hjól. Í MX1 eru nú topp ökumennirnir Max Nagl og Antoni Cairoli komnir í sama liðið hjá KTM og verður spennandi að sjá hvorum mun ganga betur en Nagl keyrir 450 KTM en Cairoli er á nýja 350 KTM hjólinu. Í MX2 hefur mesta umræðan verið um hinn unga Ken Roczen sem mætti inn í síðasta tímabil eftir nokkrar keppnir þegar hann var loks búinn að ná 15 ára aldri og gekk ótrúlega vel. Í WMX hafa svosum ekki orðið miklar breytingar á nema fyrir Íslandshönd þá var Bryndís Einarsdóttir ein á ráslínu um helgina en Signý systir sem ætlaði sér að keppa aftur í sumar situr því miður heima með brotna löpp. Það verður því gaman að fylgjast með þróun mála í öllum flokkunum. Næsta keppni er svo á Ítalíu um næstu helgi. Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá keppninni og "highlights" frá hverjum flokki.


Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Búlgaríu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Bulgaria !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 04.04.2010
 MX GP of Bulgaria 2010 LIVE

Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 03.04.2010
 Æfingarferð til Belgíu - Dagur 5
Sjitt hvað dagurinn í dag var góður dagur en því miður var ég svo mikill klaufi að gleyma myndavélinni heima ! Var alveg á hrikalegum bömmer yfir því í allan dag og er enn...!

En við rumskuðum um 10 og það var eitthvað fátæklegt orðið hjá okkur í ísskápnum svo við drifum okkur bara beint til Domi þar sem við þurftum að skipta hjólunum okkar yfir á sand-dekk ! Við vorum enga stund að því en á meðan við græjuðum það þá byrjaði að rigna hjá okkur ! Við heyrðum í Reyni og þeir félagar voru ekkert vissir hvað þeir ætluðu að gera og við vissum ekkert heldur ! Þegar allt var orðið klárt og komið í bílinn þá var klukkan orðin hálf eitt, svo það var orðið doldið langt að fara í brautina í Berghem svo við hugsuðum aðeins og ákváðum að bruna í braut við Veldhoven sem var bara tæpann klukkutíma í burtu ! Rétt áður en við komum að brautinni skruppum við í matvörubúð og keyptum aðeins inn og skelltum í okkur samloku á næsta veitingastað !

Þegar við komum svo í brautina hafði greinilega rignt um morguninn og leit hún helvíti blaut út ! Okkur var slétt sama um það og dembdum okkur af stað ! Þá brast á með þessu fína veðri og brautin var alveg geggjuð ! Sandurinn var blautur og þungur, nokkrir kaflar voru alveg drullupyttir en brautin var full af pöllum sem voru alveg fullkomnir ! Röttar í beygjum og bara geðveiki ! (þetta er kort af brautinni sem er á myndinni með fréttinni) Við vorum alveg að fýla okkur í drasl og eftir gott moto báðir úti skiptumst við á að tíma hvorn annan í tvö 20 mín +2 moto ! Ég byrjaði og var að fýla mig ágætlega og náði best 2.04 ! Aron fór svo út og náði 1.47 í sínum besta hring ! Í seinna moto-inu mínu datt ég í þvílíka gírinn og keyrði mig niður í 1.59 í besta hring, djöfull var gaman þá, kallinn farinn að vippa og læti og taka hrikalega á því ! Aron fór svo út í sitt annað moto og keyrði geggjað flott, tók alla palla hrikalega flott og keyrði aftur sinn besta hring 1.47 ! Eftir öll átökin var klukkan rétt að detta í 6 og brautin að loka svo við pökkuðum saman ! Þegar við vorum að henda síðustu hlutunum inn í bíl þá byrjaði að rigna á fullu, þvílík tímasetning !

Þegar allt var klárt héldum við til Reynis því hann hafði keypt límstafi fyrir Aron til að merkja hjólið sitt fyrir keppnina ! Þeir eru að fara heim á morgun og þegar við komum á gistiheimilið þeirra þá settumst við í svaka spjall og vorum ekki farnir fyrr en að verða 9 frá þeim ! Við brunuðum þá heim í íbúð og elduðum okkur veislumáltíð, kjötbollur í súrsætri sósu með núðlum ! Svo var bara tjillað í sófanum fram á kvöld !

Á morgun ætlum við að taka því frekar rólega, taka kannski útihlaup og horfa auðvitað á 1. umferðina í FIM heimsmeistaramótinu í motocross ! En svo þurfum við að græja hjólin fyrir keppnina á mánudaginn og við ætlum svo að fara á Sprinternum hans pabba að brautinni annað kvöld og gista þar svo við þurfum ekki að vakna eldsnemma og keyra !

Vonandi man ég eftir myndavélinni næst, frekar dauf frétt svona...

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annað sé tekið fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat