10.05.2010
 Torrent frá Las Vegas Supercross
Torrent á báða flokkana í síðasta supercrossinu í Las Vegas um helgina ! Live heildarútsending af öllu gamaninu !

AMA Supercross 2010 - Round 17 - Las Vegas - 250 & 450 Classes
http://thepiratebay.org/torrent/5548616/

Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 09.05.2010
 FIM Motocross 2010 Grand Prix - Round 4 - Agueda, Portugal
3. umferðin í FIM heimsmeistaramótinu í motocrossi fór fram um helgina í Agueda í Portúgal. Um helgina voru keyrðir MX1 og MX2 flokkarnir ásamt WMX (kvennaflokk). Það rigndi þó nokkuð yfir helgina sem gerði mörgum erfitt fyrir og gekk á ýmsu. Næsta umferð fer svo fram á Spáni strax um næstu helgi ! Minni á það að á www.freecaster.tv er hægt að horfa á endursýningu frá hverjum flokki.


Myndir frá MotocrossMX1.com

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Grand Prix í Portúgal !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from the Grand Prix of Portugal !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 06.05.2010
 Preview af Supercross brautinni í Las Vegas um nćstu helgi !


Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 05.05.2010
 AMA Supercross 2010 - Round 16 - Salt Lake City
16. umferðin í AMA Supercrossinu og sú næst síðasta fór fram um helgina í Salt Lake City og þar voru sko erfiðar aðstæður því það snjóaði í vikunni og meðan keppninni stóð slyddaði ! Brautin blotnaði vel en varð þó ekki að neinu drullusvaði, ökumönnunum gekk misvel að komast brautina og kljást við hindranirnar og var mjög gaman að fylgjast með ! Um helgina mættu West Lites kapparnir í sína síðustu umferð og Jake Weimer sennilega sigurstranglegastur til að fara heim með titilinn ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Salt Lake City supercrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Salt Lake City
!

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 04.05.2010
 Smá video frá brautinni á Klaustri 2010
Sverrir Sveppagreifi var að enda við að skella inn video til að sýna smá af brautinni fyrir Klaustur 2010 og það kyndir sko vel í manni, hrikalega lítur þetta svæði vel út ! Tjékkið á þessu hér að neðan !


Bookmark and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 03.05.2010
 Torrent frá Salt Lake City Supercross
Torrent á báða flokkana í supercrossinu í Salt Lake City um helgina !

AMA Supercross 2010 - Round 16 - Salt Lake City - 250 Class
http://thepiratebay.org/torrent/5528672/

AMA Supercross 2010 - Round 16 - Salt Lake City - 450 Class

http://thepiratebay.org/torrent/5528029/

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 02.05.2010
 1. umferđin í Enduro um nćstu helgi
1. umferð Íslandsmótsins í Enduro Cross-Country fer fram laugardaginn 8. maí í Jósepsdal. Jósepsdalur er við Bolaöldu, akstursíþróttasvæði VÍK sem flestum er kunnugt um. Ekki hefur verið haldin keppni áður í Jósepsdalnum en svæðið bíður upp á mjög skemmtilega braut og verður B brautin létt og fær öllum keppendum á 85cc – 650cc hjólum. A brautin verður sú sama og B brautin en það verða smávægilegar viðbætur með heldur meira krefjandi þrautum.

Íslandsmótið í Enduro tekur breytingum frá fyrri árum en lagt verður upp með brauti sem verða ekki með ílla færum torfærum líkt og hefur tíðkast síðustu ár og keppnishaldið færist meira í átt að svokölluðu Cross-Country. Í sumar verða 3 umferðir til Íslandsmeistara og helsta breytingin er sú að aðeins verður ekin ein umferð á keppnisdag. Meistarflokkur og Tvímenningur aka í 2,5 klst. (150 mín) en Baldursdeild ekur í 85 mín. B brautirnar verða öllum keppendum færar og verður vonandi að við sjáum keppendur á 85cc hjólum og konurnar mæta þar sem brautirnar eiga að vera vel færar. Skráning mun hefjast á laugardaginn og standa til miðnættis á miðvikudaginn 5. maí.

Keppndum er bentá að skrá sig tímanlega og þeir sem eiga eftir að fá keppnisnúmer þurfa að byrja skráningarferlið ekki síðar en mánudaginn 3. maí.

Uppfærðar reglur MSÍ um Íslandsmótið í Enduro Cross-Country verða birtar á msisport.is um helgina ásamt keppnisdagskrá.

Stjórn MSÍ


Hér er tímaplan fyrir Enduro 2010:



Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 30.04.2010
 Teddy Berr 50m Naked frontflip !!!
Þetta er nú eitt það kappalegasta sem ég hef séð lengi hahaha ! Pro freeskíðarinn Teddy Berr tekur á því á Nine Knights mótinu 2010 ! Tjékkið á þessari klippu þið munuð drepast úr hlátri hahahaha !



Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 30.04.2010
 1. umferđ Íslandsmótsins í Enduro verđur í Bolaöldu
Fyrsta og önnur umferð Íslandsmótisins í endúró verða haldnar á Bolaöldu svæðinu eftir rúma viku, þann 8. maí. Nánari upplýsingar koma hér á vefnum fljótlega og skráning byrjar á vef MSÍ einnig innan skamms.

ALLIR SLÓÐAR Á SVÆÐINU ERU LOKAÐIR FRAM AÐ KEPPNI


Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 30.04.2010
 Preview af Supercross brautinni í Salt Lake City um nćstu helgi !


Bookmark and Share
Nánar / Tjá skoðun  

Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat