 |
 |
11.06.2010 |
| AMA Motocross 2010 - Round 2 - Freestone |
2. umferðin í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Freestone. Eins og Freestone hefur verið undanfarin sumur var skuggalegur hiti og raki og reyndi það mikið á ökumennina. Samhliða 450cc og 250cc flokkunum fór líka fram 2. umferðin í WMA hjá konunum. Það var því mikil spenna í gangi í Freestone um helgina ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Freestone motocrossinu !
Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Freestone !
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
08.06.2010 |
| Motocross Ísland 2010 - 1. umferđ - Ólafsfjörđur |
Um helgina fór fram 1. umferðin í Íslandsmótinu í Motocross og var í fyrsta sinn keppt í Ólafsfirði við frábærar aðstæður. Þrátt fyrir að sólin væri ekki langt undan þá lá þokuslæða yfir firðinum allan daginn sem var nú kannski bara betra þar sem að maður hefði sjálfsagt drepist úr hita ef sólin hefði brotist í gegn. En brautin var að sjálfsögðu frábær hjá Helga Reyni og mótið allt hið besta. Það var gríðarleg barátta í öllum flokkum og nóg fyrir áhorfenda-augað ! En í 85cc flokki var það Guðbjartur Magnússon sem sigraði með hrikalegum akstri. Í B flokki var það Hinrik Jónsson sem sigraði en Haukur Þorsteins sigraði B 40+. Í MX unglingaflokki sigraði Kjartan Gunnarsson með stæl og í Kvennaflokknum var það Karen Arnardóttir sem hafði betur á undan Signý systir. Í MX2 var það svo Eyþór Reynis sem sigraði en hann endaði einnig þriðji í MX Open en þar sigraði núverandi Íslandsmeistarinn Aron Ómars með öruggum og flottum akstri !
Svo ég tali um mig þá gekk mér fínt í tímatökum og var að fíla brautina hrikalega vel en svo þegar kom að startinu í fyrsta hít í MX Open fann ég strax og ég tók af stað að kúplingin sveik mig, ég reyndi að keyra eins og ég gat en eftir nokkra hringi var næstum ekkert grip eftir í kúplingunni svo ég varð að láta þar við sitja. Ég var ekki alveg nógu sáttu við þetta enda var ég í mjög góðum gír fyrir hítið. En í seinna hítið fékk ég svo hjólið hennar Signýjar lánað og þá fann ég hvað mín kúpling var greinilega búin að vera slöpp allan daginn því þarna tók hjólið allt í einu við sér hehe ! Ég náði svosum ekki mjög sérstöku starti en ég komst vel í gegnum fyrstu beygju sem skilaði mér nokkuð vel af stað. Ég var svo að keyra eitthvað í kringum 10. sætið og var í geggjuðum fíling og endaði svo í 13. sæti ! Ágætis fyrsta MX mót í 2 ár og ég veit að ég á eitthvað inni sem ég verð að sækja fyrir næsta mót !
Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:
MX1
1. Aron Ómarsson
2. Hjálmar Jónsson
3. Eyþór Reynisson
MX2
1. Eyþór Reynisson
2. Bjarki Sigurðsson
3. Viktor Guðbergsson
Kvennaflokkur
1. Karen Arnardóttir
2. Signý Stefánsdóttir
3. Guðfinna Pétursdóttir
MX Unglinga
1. Kjartan Gunnarsson
2. Björgvin Jónsson
3. Hákon Andrason
B-flokkur 40+
1. Haukur Þorsteinsson
2. Hrafnkell Sigtryggsson
3. Sigurður Bjarnason
B-flokkur
1. Hinrik Jónsson
2. Anton Birgisson
3. Eysteinn Dofrason
85 flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Þorsteinn Helgi Sigurðarson
3. Einar Sigurðsson
Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
02.06.2010 |
| Sumarjamboree 2010 |
Þá er hið svakalega Sumarjamboree 2010 yfirstaðið og vááá hvað þetta var fáránlega góð helgi ! Hér kemur ferðasaga...
Við Arna Benný brunuðum af stað strax eftir Hardenduro-ið sem var á AK á föstudagskveldinu en fyrr um daginn hafði ég komið sleðakvikindinu á kerru með Baldri í K2M svo við gátum brunað á Micru tækinu og vorum komin á Stapann rétt eftir 3. Þar var heljarinnar hrúga af liði mætt og voru menn rétt að tínast í koju eftir stuðað kvöld. Þarna voru allir helstu kapparnir mætti, Gummi Skúla með fullt af Mósó vinum sínum, Danni og Bragi með Kidda, Elvar og Adrien, Hreggi, Hrannar og Stebbi Hregg, Rabbi, Einsi Gunn, Lexi, Ævar, Baldur og hellingur til viðbótar. Við Arna fengum að henda okkur í tjaldvagninn hans Gumma en hann gisti í bústaðnum hjá Þrándi vini sínum.
Á laugardagsmorguninn var bjart og fínt veður niðri á tjaldstæði en það var einhver skýjahula yfir jöklinum með köflum. Það hrukku þó allir í gang fyrir hádegið og við vorum komin upp á jökulháls uppúr 11. Við héldum beint upp á topp og þar var frekar skýjað og lélegt skyggni en niðri á hryggnum góða var ágætt og við Gummi tókum á því þar til allur hópurinn var mættur ! Við ákváðum svo að halda út á hinn toppinn og þar var tekið á því í góða stund, Elvari tókst meira að segja að velta og slíta beltið á Skiddanum sínum þegar hann fór í grjótabotn á hvolfi hehe ! Það var rosalegt ! Síðan var haldið niður í nesti en eftir það var sólin farin að kíkja af og til á okkur ! Ég og Arna Benný fengum Lexa til að draga okkur upp á topp á skíðum og bretti og tókum eina ferð niður og þá fylgdi okkur sólargat alla leið sem var alveg geggjað ! Við gripum svo sleðann og héldum að hópnum en þá voru strákarnir búnir að finna hengju sem var vel hægt að fíflast í ! Eftir góða stund þar var haldið í bílana og gengið frá, en svo tókum við Baldur fram fjallahjólin okkar og tókum svakalegt Downhill niður af hálsi niður á Arnarstapa, djöfull var það geggjað ! Þegar niður var komið hópuðust allir saman í grillveislu og eftir það var haldið inn á veitingastaðinn að fylgjast með Eurovision ! Síðan fór restin af kvöldinu í vitleysu með varðeld og ýmiskonar vitleysu !
Á sunnudeginum vöknuðum við um 10 og sáum að það var þykk skýjahula yfir jöklinum svo menn voru ekkert að stressa sig á lappir. Þegar það var að nálgast hádegið og enn var skýjað uppi ákváðum við Arna Benný bara að dúndra norður þar sem hún átti að mæta á fótboltaæfingu seinnipartinn og ég ætlaði að fara í Ólafsfjörð að taka Motocross æfingu ! Við pökkuðum saman og kvöddum skrílinn og brunuðum svo af stað eftir frábærann skrepp á nesið !
Ég setti alveg heilann helling af myndum í albúm hér á síðuna og þið getið tjékkað á því á myndasíðunni eða með því að smella hér ! Ég mun svo reyna sem fyrst að klippa saman video úr því efni sem við tókum upp !
Geggjað sumarjamboree þó það hafi verið tekið með styttri stæl þetta árið hjá okkur Örnu Benný ! Takk allir fyrir geggjaða skemmtun !
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
 |
 |
01.06.2010 |
| Mótorhjólinu hans Hjartar stoliđ !!! |
Sælir allir.
Ég sendi þennan póst á öll netföng sem ég fann í tölvunni minni sama hvort viðkomandi er tengdur mótorhjólum eða ekki. Í dag var Husqvarna TE410 hjólinu mínu stolið fyrir utan Ásgarð 53. Hjólið er ekki mikils virði sem söluvara, en hefur mikið tilfinningarlegt gildi fyrir mig. Hjólið er 13 ára og ef einhverjum tekst öðrum en mér að koma því í gang þá er það ónýtt strax. Því er það mér mikill akkur að hjólið finnist sem fyrst.
Ég sendi með mynd af hjólinu, en framljósið er núna svart og ekki hlífar fyrir handföngunum.
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
 |
 |
31.05.2010 |
| Hardenduro sýningin Klofinn Mótor |
Já föstudagskveldið fór fram fyrsta Hardenduro sinnar tegundar hér á landi á Akureyri og voru það kapparnir í Team Silicon sem stóðu fyrir þessu geggjaða uppátæki. Strákarnir höfðu lagt hellings vinnu í brautina og voru ýmsar skemmtilegar og flottar þrautir sem við þurftum að kljást við og má þar helst nefna staur sem lá yfir lækinn í bringuhæð sem maður þurfti að beygja sig og hjólið undir og svo ótrúlega töff vegasalt sem maður þurfti að keyra yfir ! Það var frábært veður og það voru 12 manns skráðir til leiks en aðeins 9 mættu en allir voru þeir til í slaginn og held að enginn hafi komist brautina án þess að skemmta sér konunglega !
Keppni hófst á hlaupandi deadstarti upp brekku að hjólunum en gamlinginn Gunni H fékk að byrja á brekkubrúninni og æddi því fyrstur af stað á nagladekkjunum sínum á Yamaha WR-inu ! Ég komst fyrstu upp brekkuna hlaupandi og komst næstur af stað en það var ekki lönglíf forysta þar sem ég klúðraði strax í hliðarhalla í fyrstu brekku. Gunni H var alveg hrikalegur og var gersamlega stunginn af þar til að hann kom í kaffi þá komust Bjarki og Baldvin loks framúr sem voru nú í forystunni. Mér gekk ágætlega framanaf en svo var eins og ekkert gengi upp og ég var í klúðri allstaðar ! Bjarki keyrði alveg hrikalega flott og sigraði örugglega með glæsibrag og er því "Maðurinn með eistun" !!!
Arna Benný fylgdist grannt með sýningunni og tók slatta af myndum sem ég henti í albúm hér á síðunni, tjékkið á því á myndasíðunni eða smellið hér eða á myndirnar !
Hér eru úrslitin frá Hardenduro sýningunni Klofinn Mótor:
1. Bjarki Sig, Honda 250, 7 hringir
2. Baldvin, KTM 200, 7 hringir
3. Elvar, KTM 300, 7 hringir
4. Þorsteinn, KTM 200, 6 hringir
5. Jonni, Kawasaki 250, 6 hringir
6. Gunnar lýsi H, Yamaha 290, 5 hringir
7. Helgi píka, Gas Gas 300, 4 hringir
8. Björn Ómar, Kawasaki 450, 3 hringir
Það er strax búið að ákveða að halda tvær svona sýningar til viðbótar í sumar vegna þess hve þessi gekk vel og mun næsta sýning bera nafnið "Rifin stangarlega" ! Hlakka til þess !
Takk strákar fyrir æðislega "sýningu" !
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
29.05.2010 |
| Myndir frá Harenduro í gćr ! |
Já Hardenduro-ið fór með glæsibrag fram í gær á AK og var alveg geðveikt að taka þátt í þessu ! Arna Benný tók nokkar myndir og ég ákvað að drífa þær hingað inn fyrir almúgann ! Set betri frétt inn seinna þar sem ég er á Sumarjamboree á Snæfellsnesinu í þeim töluðu ;) Smellið hér til að skoða albúmið eða á myndina !
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
 |
28.05.2010 |
| Hardenduro sýningin Klofinn Mótor - Brautin 95% klár ! |
Já hardenduro sýningin "Klofinn Mótor" fer fram í kvöld á Akureyri og er ekki laust frá því að maður sé orðinn spenntur fyrir þessu ! Ég ákvað nú ekki fyrr en í gær að keppa, en eftir að ég sá myndirnar stóðst ég ekki mátið ! Hvet alla til að mæta og taka þátt eða vera æstir á hliðarlínunni tilbúnir að aðstoða okkur þegar við verðum á rassgatinu fastir á milli kletta eða spólandi á símastaurum hehe ;) !!!!
Nokkrar myndir sem ég stal af www.teamsilicon.is:
|
 |
| Nánar / Tjá skoðun |
|
 |
|
|
|
 |