30.07.2010
 Slednecks 13 Trailer
Það er komið að því, Slednecks 13 fer að nálgast en henni verður sleppt einhverntíma í Ágúst eða September ! Þetta verður án efa ekki síðri skemmtun en hinar 12 myndirnar sem hafa sigrað hjörtu og huga svo margra ! Tjékkið á þessum magnaða trailer hér að neðan til að fá snefilinn af því sem koma skal...



Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 27.07.2010
 Heimbođ KKA um Verslunarmannahelgina
KKA í samvinnu við K2M og Nítró mun standa fyrir svokölluðu heimboði KKA um Verslunarmannahelgina á Akureyri. Dagskráin er eftirfarandi:

Laugardaginn 31. júlí:
Frítt í mótocross og endurobraut KKA. Allir að hjóla einsog engin sé morgundagurinn.

Sunnudaginn 1. ágúst:
Endurokennsla fyrir byrjendur. hefst kl: 10:00 upp við félagsheimili. Kennari Þorsteinn Hjaltason. Frítt.
Enduroferð K2M fyrir alla. ca 2-3 tímar. Mæting með hjól á kerru eða bíl upp við félagsheimili KKA kl:13:00
Torfærukeppni. á sunnudag kl. 18:00 ef stemmari og einhver fjöldi verður?

Þjónusta:
Tvö gasgrill verða uppí húsi. Fólk getur því grillað og notað húsið að vild.
Ef einhver er í vandræðum með geymslu á hjóli yfir nótt meðan á Akureyrardvöl stendur þessa helgi, þá er bara að hafa sambandi við Sigurð hjá Nítró Aku. s: 893-0409
Bakvakt verður í Nítró ef eitthvað vantar. S:893-0409

Nánari uppl: Siggi s: 893-0409, Stebbi Gull s: 662 5252 Birkir: 893 7917



Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 26.07.2010
 Motocross Ísland 2010 - 3. umferđ - Sólbrekka
Núna á laugardaginn fór fram 3. umferðin í Íslandsmótinu í Motocross og var keppt í Sólbrekku við Grindarvíkurafleggjarann. Miklar breytingar hafa verið á brautinni og um morguninn var brautin alveg frábær en hún þornaði gríðarlega mikið og hratt endar var veðrið alveg ótrúlegt, glampandi sól og brakandi hiti. Í lok dags var eitt stórt rykský yfir svæðinu á meðan keppni var í brautinni. En þrátt fyrir þetta var þetta hin skemmtilegasta keppni og fór vel fram. Í 85cc flokki var það eins og áður Guðbjartur Magnússon sem sigraði. Í B flokki var það Mývetningurinn Steingrímur Örn Kristjánsson sem sigraði en í B 40+ flokknum var það Haukur sem sigraði með yfirburðum, svo miklum að í seinna startinu byrjaði hann öfugur í starthliðinu ! En í MX Unglingaflokki voru þeir Guðmundur Kort og Kjartan Gunnarsson jafnir að stigum en Kjartan sigraði seinna hítið og sigraði því keppnina. Í kvennaflokknum var Signý systir í sérflokki og sigraði örugglega. Í MX2 var það Eyþór Reynisson sem sigraði enn og aftur. Í MX Open hélt Aron Ómars uppteknum hætti og sigraði örugglega. Ég stalst aftur í myndaalbúmið hjá Sverri af Motosport.is og mæli með að þið kíkið á flottar myndir frá honum af keppninni !


Myndir frá Motosport.is

Mér gekk ágætlega í keppninni og í tímatökum var ég að fíla brautina alveg virkilega vel og var með 3. tímann í MX2 og 10. í Open. Í fyrra hítinu var brautin svo búin að þorna og breytast mikið frá tímatökum og mér fannst ég vera alveg úti að skíta. Ég endaði 4. í MX2 og 11. í heildina. Í seinna hítinu mætti ég með allt annað hugarfar og náði góðu starti og var allan tíman í 3. í MX2 og 8. í Open og nokkuð langt í næsta mann. Þannig að í annað skiptið endaði ég í 3. sæti í MX2 og núna í 8. sæti í Open og er ég mjög sáttur með það !

Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:

MX1
1. Aron Ómarsson
2. Hjálmar Jónsson
3. Eyþór Reynisson

MX2
1. Eyþór Reynisson
2. Viktor Guðbergsson
3. Jónas Stefánsson

Kvennaflokkur
1. Signý Stefánsdóttir
2. Eyney Gunnarsdóttir
3. Ásdís Elva Kjartansdóttir

MX Unglinga
1. Kjartan Gunnarsson
2. Guðmundur Kort
3. Björgvin Jónsson

B-flokkur 40+
1. Haukur Þorsteinsson
2. Sigurður Hjartar Magnússon
3. Guðmundur Guðmundsson

B-flokkur
1. Steingrímur Örn Kristjánsson
2. Elís Bergmann Blængsson
3. Róbert Jónsson

85 flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Þorsteinn Helgi Sigurðarson
3. Alexander Örn Baldursson

Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 26.07.2010
 AMA Motocross 2010 - Round 8 - Washougal
8. umferðin af 12 í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Washougal í Washington. Það var gríðarlegur hiti um helgina en ekki jafn kæfandi raki og í síðustu keppnum sem gerði leikinn aðeins viðráðanlegri fyrir keppendur. Þessi helgi markaði fyrsta skiptið sem sami keppandi í báðum flokkum vann bæði moto-in, þið spyrjið ykkur hver það er...! Núna er komið að 2ja helga pásu í AMA Motocrossinu og næsta keppne er í Unadilla 14. ágúst ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...


Myndir frá TWMX

Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Washougal motocrossinu !

Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Washougal !

Bookmark
and Share
Nánar / Tjá skoðun  
 26.07.2010
 Red Bull X-Fighters 2010 - Madrid, Spain
Á föstudaginn fór fram fjórða viðureignin í Red Bull X-Fighters seríunni 2010 og núna var keppt á fæðingarstað seríunnar í Madrid á Spáni. Eins og áður var keppnin í hinum magnaða nautaatshring Plaza del Toro og áhorfendurnir alveg brjálaðir eins og venjulega á Spáni. Dany Torres sem vann keppnina í Madrid í fyrra var í algeru uppáhaldi hjá áhorfendum en það stöðvaði þó ekki Ástralann Robbie Maddison því hann kom sá og sigraði fyrstu keppnina sína og er greinilega búinn að uppfæra "trick" listann hjá sér því það sáust stökk sem hafa aldrei sést í X-Fighters seríunni áður ! Annar varð svisslendingurinn Mat Rebaud og í þriðja endaði Norðamaðurinn Andre Villa sem leiðir þó seríuna áfram !Næsta umferð fer svo fram 14. ágúst við Battersea raforkuverið í London í Bretlandi !


Myndir frá RedBull Photofiles

Hér er video umfjöllun frá keppninni:

Heildarúrslitin úr Red Bull X-Fighters - Madrid:
1. Robbie Maddison (AUS)
2. Mat Rebeaud (SUI)
3. Andre Villa (NOR)
4. Dany Torres (ESP)
5. Levi Sherwood (NZL)
6. Adam Jones (USA)
7. Mike Mason (USA)
8. Maikel Melero (ESP)
9. Jackson Strong (AUS)
10. Cameron Sinclair (AUS)

Stigastaðan í Red Bull X-Fighters 2010:
1. André Villa (NOR) 310 p.
2. Robbie Maddison (AUS) 265 p.
3. Nate Adams (USA) 225 p.
4. Levi Sherwood (NZL) 220 p.
5. Adam Jones (USA) 190 p.
6. Dany Torres (ESP) 145 p.
7. Eigo Sato (JAP) 130 p.
8. Mat Rebeaud (SUI) 95 p. & Jim McNeil (USA) 95 p.
9. Cameron Sinclair (AUS) 50 p.
10. Mike Mason (USA) 30 p.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 23.07.2010
 Red Bull X-Fighters undanrásirnar í Madrid
Í gærkvöldi fóru fram undanrásir fyrir Red Bull X-Fighters keppnina í Madrid en aðalkeppnin fer fram núna í kvöld ! Það var nóg að gerast í undanrásunum og sá sem endaði efstur var Norðmaðurinn Andre Villa á undan Svisslendingnum Mat Rebaud og heimamanninum Spánverjanum Dany Torres ! En það sem þótti þó mest áhugavert var þegar Ástralinn Clinton Moore tók sig til og lenti "Volt" trikkinu í fyrsta skipti í keppni en þetta er trikk sem Kyle Loza vann Best Trick á X-Games 2007 og er alveg fáránlegt ! Kíkið á video-ið og verið klár á að missa ekki af keppninni í kvöld...



Bein útsending frá keppninni er á Red Bull Web TV og byrjar útsendingin kl: 20.30 á íslenskum tíma, ekki missa af því !

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 22.07.2010
 Red Bull X-Fighters í Madrid á morgun !
Annað kvöld fer fram 4. umferðin í Red Bull X-Fighters túrnum 2010 og verður keppt í Madrid á Spáni. En það eru núna 10 ár síðan Red Bull X-Fighters fór af stað einmitt á Spáni. Í fyrra var það heimamaðurinn Dany Torres sem sigraði fyrir framan brjálaða spænska aðdáendur sem allir keppendurnir eru sammála um að séu þeir klikkuðustu !

Hægt verður að horfa "Live" á keppnina á Red Bull Web TV og byrjar útsendingin kl: 20.30 á íslenskum tíma !

Hér er smá upphitunar video í boði Red Bull...



Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 22.07.2010
 Endurocross á Neistaflugi um Verslunarmannahelgina
Endurocrosskeppni / sýning verður haldin á Neistaflugi í Neskaupstað laugardaginn 31 Júlí. Skráning fer fram í síma 868-3512 (Ísak) og á netfanginu isakfannar@gmail.com.

Keppnisgjaldið er 3000 kr. og rennur það í peningaverðlaun til keppenda.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 22.07.2010
 Motocross á RÚV í kvöld
Tekið af www.motocross.is:

Þáttur um aðra umferð Íslandsmótsins í Motocross sem fram fór á Álfsnesi þann 3. júlí síðastliðin verður sýndur í Sjónvarpinu í boði Púkans og Snæland videó, í kvöld, 22. júlí kl. 00:00 og endursýndur á laugardaginn kl. 13:00.

Bookmark
and
Share
Nánar / Tjá skoðun  
 21.07.2010
 Are You Smarter Than A Homeskooled 8th Grader ?
Monster Energy TV eru mættir aftur með Adam Cianciarulo í Kawasaki Team Green en núna ber þátturinn nafnið "Are You Smarter Than A Homeskooled 8th Grader ?" þar sem Adam er á leið í 8. bekk núna ! Í þessum þætti mætir Adam liðsfélaga sínum Nick Way...



Bookmark and
Share
Nánar / Tjá skoðun  

1  2  3  4  5  6  7  8  9  10  11  12  13  14  15  16  17  18  19  20  21  22  23  24  25  26  27  28  29  30  31  32  33  34  35  36  37  38  39  40  41  42  43  44  45  46  47  48  49  50  51  52  53  54  55  56  57  58  59  60  61  62  63  64  65  66  67  68  69  70  71  72  73  74  75  76  77  Næsta síđa 
Jónas Stefánsson - info@jonni.is - © Allt efni nema annađ sé tekiđ fram
© 2007 Uppsetning og hönnun Hýsir.is
webstat